Eftir prófið fór ég svo í strætó útá seltjarnarnes til að læra stærðfræði hjá Auði Stellu, hún er sko æðislegur stærðfræði kennari, annað en sumir (þeir taka það til sín sem eiga) En ég reyndar þurfti að stoppa á hlemmi í 13 mín og ákveð aðeins oð kíkja í búðir:) á 10 min keypti ég mér tvo boli...Ég er er nú ekki lengi að eyða peningum. Enda segir mamma að það er eins gott að ég verði forstjóri í fyrirtæki eða eignist allavega mann sem á aura...Auglýsi kannski bara hér með með honum. Það er reyndar einn svona sem að ég veit að á alltaf pening og ekki spillir útlitið....en æji shit ég nenni ekki að pæla í svona strákum núna.
Ég fékk ansi skemmtilegt símtal áðan, mjög gleðilegt, Skinkan mín,(gummi,www.mummi.blogspot.com) var að fá vinnu í Frankfurt, ef þið lesið síðasta bloggið hans þá sjáiði alla söguna..Ohh ég er svo stolt af honum..vinna sem eikkað markaðstjóri evrópumála hjá icelandair, Eða guð má vita hvað, en ég er samt stolt af honum!!
Ég er að gleyma að segja ykur aðalfréttina maður! Sem er að ég fór í sund í morgun kl 7 ýkt dugleg, synti og allt. Ég og gamlingjarnir skemmtum okkur alveg ljómandi vel og ég er ekki frá því að ég hafi bara fengið lit í kinnarnar og nokkrar nýjar frekknur hafi látið sjá sig..
Ég er kveð þá að sinni en ég ætla að reyna að setja inn myndir af mér og einhverjú fólki. ble
ég veit ekki og mig langar reyndar ekki að vita hvað inga Rós er að reyna að gera við mig á þessari mynd:S
ég og Inga Rós sæta
ég nýkomin inn af bretti eða eikkað, fallegt?
æji ég nenni ekki að setja fleiri myndir inn núna...en ekki örvænta, ef einvher vill fá myndir af ser á bloggið sitt þá bara hafiði samband...:)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli