1.5.04

Jamm og jæja

hæ hæ, ég er í aðeins skemmtilegra skapi núna en á miðvikudaginn. En þá einmitt gleymdi ég að segja frá hvað ég gerði á þriðjudaginn, svo að hér kemur það.

Eftir skóla á þriðjudag fór ég bara heim en kom svo aftur kl 4 vegna þess að það var sýning kl 6. Þessi sýning var mjög svo skemmtileg, og heppnaðist bara nokkuð vel.
Eftir sýningu var farið heim og nærst, en svo var hladið í keilu í öskjuhlíðinni með öllum leiklistarhópnum eins og hann lagði sig. Það var sko ekkert smá mikið stuð í keilunni, og ég sýndi öllum hvað ég er sterk á þessu sviði með því að taka keilukúlu og sveifla henni aftur fyrir mig (til að ná góðum hraða) en þetta tókst ekki elveg sem skyldi og ég missti kúluna afturfyrir mig á næstu braut, en ég hló svo mikið að ég pældi ekkert í hvert kúlan hefði farið , svo leit ég í kringum mig, þá var Árni að ná í kúluna lengst inná sinni braut...hehe.
ég man ekki hver vann keiluna en hverjum er ekki sama? Eftir keiluna var svo kíkt niður á select og gleypt í sig pulsu (þeir sem vildu) og svo ákváðum við nokkur að labba heim úr keilu. Það vorum við dugnaðarforkarnir: ég, Árni, Ingi, Eydís, Hilmir,Berglind og Silja Rut. Þetta var frábær gönguferð,í frábæru veðri og ekki var félagsskpurinn síðri. Snilldarumræðuefni líka, DRAUGAR. en við stúderuðum drauga alla leiðina frá öskjuhlíð uppí hamraborg, en þar beið mamma Árna og Inga eftir okkur og keyrði ekkur í Garðabæinn.

Á Fimmtudaginn fór ég til tannlæknis og fékk dótið upí mig sem ég held að ég hafi sagt ykkur frá í síðasta pistli. Það var sárt,og ég er svona að venjast þessu, en ég tala mjög óskýrt og get voðalega lítið borðað, nema vera búin að taka gegt mikið íbúfen...

En svo í gær og í dag er ekki mikið merkilegt búið að gerast nema ég hef lært og lært og lært og passað. því að í gær var ég að passa tvíburana (Lovísu Huld og Árna Fannar) og þau fóru nú bara uppí rúm um leið og ég kom,þannig að ég var bara að horfa á friends og IDOL og hafa það kosý. En mér fannst snilld þegar að Hrund(mamma þeirra)sagði að Lovísa Huld vildi alltaf hlusta á klassíska píanótónlist þegar hún sofnaði..Sem og hún gerði og hún steinsofnaði eftir að ég setti það í tækið..

Í dag er ég svo búin að vera hér heima hjá honum pabba að læra í dag, og Sindri er reyndar líka búinn að vera heima en hann er svo góður að hann fór bara út að leika og á fóbó æfingu og svoleiðis.

En í kvöld verður svo djammað feitt með stúlkunum, hehe. Við ætlum allavega að fara og gera eitthvað skemmtilegt saman. hvað sosem verður gert.
ég er búin að bulla nóg hérna í bili, blæblæ

Engin ummæli: