9.5.04

næturgöltur...:P

hæj hæj, ég er að hugsa um að vera duglegri að blogga hérna á þessa síðu. Röggi var að reyna að segja mér að það væru leiðbeiningar til að setja linka hérna inní template, en ég skil það nú bara ekki. En inga var að segja mér frá hvernig hún lætur á sína, svo að ég ætla að tékka á hvort að það virki hér jæja sjáum til hvað gerist, annars verð ég bara að láta hann rögga blogga hjá mér líka, eins og sumir

Annars hefur ekki mikið gerst síðan í síðast, ég talaði við hann Almar stora frænda, (bróðir hans pabba og á heima í Lundúnum) þar bíða allir spenntir eftir litla hellisbúanum, sem er væntanlegur í þennan harða heim á morgun. Ég verð að viðurkenna að það er nettur spenningur í gangi hérna, alltaf gaman að verða stóra frænka.

En það er víst þannig að þegar að nýtt líf byrjar þá endar annað, og það er sorglegt. Amma Dúdda dó núna fyrir stuttu (langamma). Þannig að ég fór í jarðarför á föstudaginn eftir dönskuprófið. Það er svo sorglegt að fara í jarðarfarir, ég hef reyndar ekki farið í margar, reyndar bara eina,(fyrir utan þessa) þegar langamma bíbí dó, og þá var ég bara 1o eða 11 ára. En ég man samt eftir því, ekki gaman, erfiðast er að sjá alla gráta. og svo þegar að það koma svona sorgleg lög eins og ave maria.
En ég get huggað mig við það að þær báðar eru komnar á betri stað og líður betur.

Anýhú, back with my nose in the books...

Kristín no-life:)

Engin ummæli: