27.5.04

Jæja Lömbina mín!!

Hæ hæ krúttin mín! það er allt gott að frétta af mér held ég bara, ekkert merkilegt búið að gerast síðan síðast.

Það er bara allt að skýrast með húsið okkar hérna á Ægisgrundinni, eða það er að við erum bara á fullu að sýna fólki og svoleiðis þannig að ég má ekki vera heima á meðan og það er eiginlega bara stöðug umferð heima, þannig að eg er bara búin að vera heima hjá pabba, og að passa allan tíman.

Síðasti skóladagurinn er svo á morgun, og það er BARA eitt próf sem gildir einhver 20 eða 30 prósent í íslensku, Bókmenntir, og ég á eftir að lesa sögurnar aftur og gera ritgerð útúr þeim, en ég er reyndar búin að lesa þetta allt þannig að ég er í Góðum málum. Svo er líka að skila einhverjum 10 verkefnum í stæ, sem að ég á eftir að klára og svo er það vinnubók í íslensku!
Svo er bara munnlegt próf í ensku sem að verður ekkert mál og svo er bara CHILL!!! jeij langþráð frí alveg að fara að skella á og það eru 5vikur þangað til að við förum út!! Það verður ótrúlega gott að komast út í sólina í mánuð áður en að skólinn byrjar, hann byrjar of snemma reyndar eða í byrjun ágúst. Bara sex vikna sumarfrí í Danmörku, Sem er ekki kostur!

En jæja ætli ég noti ekki tímann og segi skoðun mína á greinarkorninu hennar Brynju um Rúv, mín skoðun er Brynja mín að Rúv er elsta sjónvarpsstöðin, og þess vegna er hún kannski bara enn að reyna að höfða sem mest til síns "markaðshóps" sem er eldra fólk. O þó mamma dettur oft inní einhverja breska og danska þætti og mamma er nú ekki nema 33 ára. En það sem að ég held líka er að Ruv er bara með öðruvísi sjónvarpsefni heldur en stöð tvö. Rúv er t.d með meira af fræðsluefni og þess háttar heldur en skemmtiefni, auðvitað er ég ekki að reyna að verja RUV fyrir að hafa eldgamlar disney myndir og svoleiðis, síður en svo, við verðum bara kannski líka að gera okkur grein fyrir því að Stöð Tvö er meira með skemmtiefni en fræðsluefni Stöð tvö var líka stofnað bara um sviðpað leiti og við tvær Brynja mín, thíhí En já, ég er ekki viss um að ég sé að koma með raunhæfan punkt því að ég er svo fjandi þreytt.

En jæja ef að þetta er einhver steypa að þá bara kem ég með eitthvað viskulegra næst.
ég er farin að læra.

Leifum kertum að loga, því að stundum getur lífið verið svo grimmt við litla og varnarlausar verur.

Engin ummæli: