25.8.12

Góð þjónusta!

Ég ELSKA þegar ég fæ góða þjónustu. Talaði um frábæra þjónustu sem ég fékk í Macland hér svo ég ætla að halda áfram að skrifa um svona fína þjónustu sem ég fæ hér og þar.
Um daginn talaði ég um armband sem ég fékk í skírnargjöf og langaði að setja lengri keðju á. Fór með armbandið í ónefnda skartgripaverslun í Kringlunni og fékk ekki góð svör þar svo ég leitaði annað. Fór með armbandið í Hringa á laugarveginum og málinu var reddað á núll einni eða allavega á einum degi. Gat sótt armbandið daginn eftir og þurfti ekki að selja úr mér líffæri til að eiga fyrir þessu.
Mæli með þessari búð. Ótrúlega fallegar vörur þarna og frábær þjónusta!!

Uppáhalds úr og uppáahlds armband



22.8.12

Fyrir Rut..

Ég ætlaði að reyna fyrir mér sem matarbloggari. Taka fínar myndir af hráefninu og öllu ferlinu. Er bara með svo hræðilegan athyglisbrest að það gekk bara í svona 10 mínútur, svo var ég bara farin að gera eitthvað annað meðan súpan mallaði í pottinum og mundi svo eftir að ég ætlaði að taka myndir af öllu ferlinu þegar ég settist niður til að éta loka afurðina :)



Mexíkósk kjúklingasúpa

Kjúklingur (eftir smekk - oft gott að nota afganga)
Olía 1msk
Plómutómatar  6stk
Blaðlaukur 100gr
Rauð paprika 1stk
Grænt chili 1stk
Parikuduft 2.tsk
Tómatpúrra 3msk
Kjúklingasoð 1,5l 
Sweet chili sósa 2dl
Rjómaostur 100gr

Aðferð: 

Kjúklingur, blaðlaukur, paprika, grænt chili og plómutómatar skorið í litla bita og steikt á pönnu uppúr olíunni.

Bætið svo við tómatpúrrunni og paprikuduftinu. 

1,5 líter af vatni soðið með kjúklingateningum.

Innihaldinu á pönnunni bætt útí pottinn með soðinu og látið sjóða í 15 mínútur.

Sweet chilisósunni og rjómaostinum hrært útí súpuna.

Gott að bera fram með góðu brauði og sýrðum rjóma.


Allt hráefnið, nema blaðlaukur - átti hann ekki til

Kjúklingur, notaði 3 bringur í þetta skipti.

Chili, tómatar og paprika skorið í litla bita
Svo fyllist eldhúsið mitt af íkornum...

Voða góð súpa og pönnubrauð

Njótið vel..!

Vanillukaffi

Sá svo sniðugt á Pinterest um daginn. Vanillusprittkerti í stjaka/skál sem var fullur af kaffibaunum. Þar sem ég er kaffi, vanillu og kertasjúk mátti ég til með að prufa. Og nú þegar kertatímabilið er að skella á þá var tilvalið að græja þetta núna. Ég á lítil sprittkertaglös úr Ikea sem ég fyllti af kaffibaunum og skellti svo einu vanilluprittkerti (líka úr Ikea) ofaní. Stillti þessu svo upp í gluggakistunni og kveikti á kertunum. Mjög góð vanillukaffilykt sem kemur af þessu og mér fannst eiginlega of mikið að vera með kveikt á fjórum í einu í stofunni. Myndi hafa kannski svona tvö næst.
Mæli með að þið prufið..


Kósý í gluggakistunni minni :)

20.8.12

Insta..

Nokkrar af Instagram...
Eitt af eldri verkum pabba..
Hrappur fékk sér rúnt
Svunta með nafninu mínu. 
Eldhúsborðið fékk makeover
Mánudagsmatarboð
Bestu skórnir
Fínar bollakökur sem Auður skreytti
Kjúklingasúpa með sweet chilli sósu


Bömmer

Ohh, fórum með þvottavélina okkar í viðerð fyrir helgi. Nú var viðgerðarkarlinn að hringja og segja að það kosti 50.000 krónur að gera við hana. Þar fór flugmiðinn minn..



Flug

Af hverju þarf þetta alltaf að koma eftir á? Var svo kát með að finna flug á rúmlega 30.000 krónur báðar leiðir en svo bættist bara milljón ofaná!
Fann líka fínt flug á Wowair en þar þurfti ég svo að borga 6.000 krónur fyrir að taka með mér ferðatösku. Segir sig sjálft að ég fer ekki ferðatöskulaus til útlanda þar sem ég gæti fundið H&M með fínum fötum sem kosta ekki augun úr..

16.8.12

Heimsókn

Amma Ragga, amma Alma og Hafdís frænka kíktu í heimsókn í dag. Amma Ragga 96 ára þaut upp stigann hjá mér eins og ekkert væri og fannst ekkert mál að skella sér í dagsferð til Grundarfjarðar. Hafði reyndar á orði að hún hefði aldrei komið hingað áður svo það væri ekki seinna vænna. Hjördís tengdamamma mín kom líka við í smá stund og hafði þá á orði við ömmu Röggu hvað ég og pabbi værum lík henni. Þá svaraði sú gamla "Æj, æj, aumingja þau". Hún drepur mig. Vona að ég verði svona mikill húmoristi þegar ég verð 96 ára.
Hún bað um að það yrði komið handrið við stigann hjá okkur næst þegar hún kæmi. Það væri líklegt að hún þyrfti að styðja sig við eitthvað næst þegar hún kæmi upp. Yndisleg.



14.8.12

Systur í heimsókn

Litlurnar mínar eru í heimsókn og fengu L200 lánaðan hjá Byggingarfræðingnum..



Síðan er von á góðum gestum á morgun. Amma Alma (eða Alma Alma eins og við barnabörnin höfum flest kosið að kalla hana á fyrstu æviárum okkar), Hafdís systir hennar og síðast en alls ekki síst, aldursforsetinn, sjónvarpsstjarnan og mesti töffarinn.. langamma Ragga. Mikið hlakka ég til að fá mér kaffi og kökusneið með þessum fínu og flottu konum.

13.8.12

Helgin..

Helgin var góð. Við fengum litlar dömur í næturpössun til okkar og foreldrarnir þeirra fengu að sofa í gestaherberginu þegar þau komu heim úr brúðkaupi. Ótrúlega gaman að fá að dúllast með þessum litlu skottum. Og í góðu lagi að vakna kl 6:40 við hjalandi ungbarn. Ég, freka guðmóðirin er svo búin að panta annað næturpass í september.
Ég stóð mig líka á myndavélinni í þetta skiptið og tók nokkrar myndir. Enda ekki annað hægt þegar maður er með svona fallegt myndefni. Hægt er að smella á myndirnar til að fá þær stærri. Njótið..

Ég og Björg að gera krem á muffins
Auður á kantinum
"Kristín Alma, við erum nú meiri kökukonurnar" 

Auður á framtíðina fyrir sér í kökuskreytingum



Kökubros



Vinka mömmu

Svefngalsi


Morgunleikfimin





Kíkt á barnaefnið

Rigning!


12.8.12

Gleðilega hátíð..

Fyrir ári síðan kom Vilborg litla systir mín (aðeins 18 ára) út úr skápnum. Ég er óendanlega stolt af henni og er svo ánægð með hvað hún er ótrúlega hamingjusöm og lífsglöð í dag með henni Jessicu sinni.

Ég komst ekki í gleðigönguna í ár, en mæti hress að ári..!



9.8.12

Þessi tími árs..

Hér er allt á hvolfi. En við Byggingarfræðingurinn erum búin að vera á fullu að græja ýmislegt sem hefur setið á hakanum hér heima. Allt frá því að setja upp parketlistana (bara 3 ár síðan við keyptum íbúðina og parketlögðum..) niður í að spreyja bleikan myndaramma hvítan.
Verst er bara að við erum bæði með ADHD á háu stigi svo það gengur frekar hægt að strika yfir verkefnin á listanum, ég er með svona þrjú verkefni í gangi akkúrat núna til dæmis og er samt í tölvunni að blogga. Alveg normal. Markmiðið er að klára þessa litlu hluti sem fyrst því það stefnir allt í stórframkvæmdir hér á næstu mánuðum.

Við fáum annars góða gesti um helgina. Get ekki beðið. Vona bara að hér verði ekki allt eins og í bragga þegar þau koma greyin..





Flott!!

Ég væri alveg til í að eignast svona úr. Þetta er úr rósagulli (rose gold) og er frá Michael Kors. Mér finnst rósagull alveg einstaklega fallegt en finnst eins og búðir hér á Íslandi séu ekki sammála mér. Hef allavega lítið séð af svona skarti hérna á klakanum.



8.8.12

Palli var einn í heiminum..

Ég held ótrauð áfram í að blogga fyrir sjálfa mig. Sem er líka allt í lagi.
Var að taka til í tölvupóstinum mínum og fann þar póst frá 2008 sem ég hafði skrifað Jóni Pétri (okkar samskipti fóru mestmegnis fram gegnum tölvupóst og msn 2008-2009, gífurleg stemmning í því!) um það að þann daginn hefðu 4.000 manns litið við inná þetta blogg. Vissi alveg að það voru mjög margir að kíkja hérna við á þessum tíma en trúi eiginlega ekki að það hafi verið svona margir! Mikið ofboðslega hef ég verið skemmtileg í denn. Núna hefur náttúrulega dregið úr mér, verandi orðin stöðnuð húsmóðir á Hjara veraldar og allt það.
Gaman að þessu..

7.8.12

Innilega..

Plönin breyttust aðeins. Við brunuðum til Reykjavíkur, fórum með hundabarn í klippingu, fengum okkur að borða, keyptum tölvu, fórum í ríkið og bónus komum útí bíl og ákváðum að fara bara ekkert í útilegu. Ákváðum frekar bara að slaka á tvö saman um helgina á S1 og hafa það kósý. Sem við gerðum. Ótrúlega gott, kannski pínu nauðsynlegt því að við höfum ekki sést mikið í sumar.
Fórum í matarboð, pottinn, sund, út að borða, bíó, bæjarrölt og göngutúra um Seltjarnarnesið með Hrapp í broddi fylkingar. Yndislegt.
Langaði að kíkja á Þjóðhátíð á sunnudeginum en ákvað svo að ég myndi alveg örugglega lifa af að sleppa því einu sinni. Og það gekk eftir, þjóðhátíðin er búin og ég á lífi.

Ég er annars alltaf að æfa mig í að taka myndir. Ekki að læra taka einhverjar pro myndir heldur bara að vera dugleg að taka myndir. Tók nokkrar um helgina en þær eru ekki upp á marga fiska en dúndra þeim samt hingað inn. Það er hvort eð er bara mamma sem sér þetta.. :)


Óklipptur og nýklipptur Hrappur
Þessi er alltaf svo spakur í verslunarferðum

Nýtt dót

Ég bauð JP í Bauhaus á leiðinni heim.

Hrappur lærði að synda. Kominn tími til að hann læri það!


4.8.12

Instagram

Ég er alveg að verða búin að læra á þetta blessaða instagram og finnst það bara nokkuð skemmtilegt. Að því tilefni tók ég mynd í gær þegar við hjúin vorum í matarboði hjá Gumma frænda og Kristínu.  Auður litla sá um desertinn sem var ekki af verri endanum, súkkulaðikaka með rjóma. En hún Auður mín er ein mesta kökukerling sem ég þekki. Fyrir utan sjálfa mig :)




Macbook

Var að fá mér tölvu svo nú þarf ég ekki að vera í stríði við iPadinn í hvert skipti sem ég ætla að setja færslu hingað inn. Þarf bara að læra á þessa nýju græju því ég hef ekki átt makka áður. Það hlýtur að koma.
Mæli annars með Macland ef þið eruð í tölvuhugleiðingum. Fékk mjög góða þjónustu þar þegar ég fór þangað í gær og góðar útskýringar á því sem ég var að vandræðast með :)

3.8.12

Ferðalag

Við erum að fara í fyrstu og síðustu útilegu sumarsins. Mig langar á Þjóðhátíð en gamli minn er ekki eins spenntur fyrir því svo við verðum bara einhversstaðar sem sólin skín og hundar eru velkomnir. Ætlum að leggja af stað snemma í fyrramálið og bruna fyrst í höfuðborgina. Hrappur er að fara í klippingu í hádeginu og á meðan hann er þar ætlum við skötuhjúin að skella okkur í Álftaneslaugina eins og við gerum gjarnan meðan prinsinn er í yfirhalningu. Síðan þurfum við aðeins að útrétta og bruna svo út úr bænum að hitta góða vini á tjaldsvæði. Spennandi! Verð samt pínu grenjandi um helgina yfir því að vera ekki að fara á þjóðhátíð. Verður skrýtið þar sem ég hef farið á hverju ári síðan 2007 og í öll skiptin með Villa mági mínum. Jebb hef oftar tjúttað í Herjólfsdal með honum en manninum mínum - reyndar er maðurinn minn ekki mikið í tjúttinu. Á eftir að sakna Villa um helgina!

2.8.12

Myndataka

Amma hennti okkur barnabörnunum í myndatöku um daginn. Það gekk svona...