Ég held ótrauð áfram í að blogga fyrir sjálfa mig. Sem er líka allt í lagi.
Var að taka til í tölvupóstinum mínum og fann þar póst frá 2008 sem ég hafði skrifað Jóni Pétri (okkar samskipti fóru mestmegnis fram gegnum tölvupóst og msn 2008-2009, gífurleg stemmning í því!) um það að þann daginn hefðu 4.000 manns litið við inná þetta blogg. Vissi alveg að það voru mjög margir að kíkja hérna við á þessum tíma en trúi eiginlega ekki að það hafi verið svona margir! Mikið ofboðslega hef ég verið skemmtileg í denn. Núna hefur náttúrulega dregið úr mér, verandi orðin stöðnuð húsmóðir á Hjara veraldar og allt það.
Gaman að þessu..
8.8.12
7.8.12
Innilega..
Plönin breyttust aðeins. Við brunuðum til Reykjavíkur, fórum með hundabarn í klippingu, fengum okkur að borða, keyptum tölvu, fórum í ríkið og bónus komum útí bíl og ákváðum að fara bara ekkert í útilegu. Ákváðum frekar bara að slaka á tvö saman um helgina á S1 og hafa það kósý. Sem við gerðum. Ótrúlega gott, kannski pínu nauðsynlegt því að við höfum ekki sést mikið í sumar.
Fórum í matarboð, pottinn, sund, út að borða, bíó, bæjarrölt og göngutúra um Seltjarnarnesið með Hrapp í broddi fylkingar. Yndislegt.
Langaði að kíkja á Þjóðhátíð á sunnudeginum en ákvað svo að ég myndi alveg örugglega lifa af að sleppa því einu sinni. Og það gekk eftir, þjóðhátíðin er búin og ég á lífi.
Ég er annars alltaf að æfa mig í að taka myndir. Ekki að læra taka einhverjar pro myndir heldur bara að vera dugleg að taka myndir. Tók nokkrar um helgina en þær eru ekki upp á marga fiska en dúndra þeim samt hingað inn. Það er hvort eð er bara mamma sem sér þetta.. :)

![]() |
| Óklipptur og nýklipptur Hrappur |
![]() |
| Þessi er alltaf svo spakur í verslunarferðum |
| Nýtt dót |
| Ég bauð JP í Bauhaus á leiðinni heim. |
![]() |
| Hrappur lærði að synda. Kominn tími til að hann læri það! |
4.8.12
Ég er alveg að verða búin að læra á þetta blessaða instagram og finnst það bara nokkuð skemmtilegt. Að því tilefni tók ég mynd í gær þegar við hjúin vorum í matarboði hjá Gumma frænda og Kristínu. Auður litla sá um desertinn sem var ekki af verri endanum, súkkulaðikaka með rjóma. En hún Auður mín er ein mesta kökukerling sem ég þekki. Fyrir utan sjálfa mig :)
Macbook
Var að fá mér tölvu svo nú þarf ég ekki að vera í stríði við iPadinn í hvert skipti sem ég ætla að setja færslu hingað inn. Þarf bara að læra á þessa nýju græju því ég hef ekki átt makka áður. Það hlýtur að koma.
Mæli annars með Macland ef þið eruð í tölvuhugleiðingum. Fékk mjög góða þjónustu þar þegar ég fór þangað í gær og góðar útskýringar á því sem ég var að vandræðast með :)
Mæli annars með Macland ef þið eruð í tölvuhugleiðingum. Fékk mjög góða þjónustu þar þegar ég fór þangað í gær og góðar útskýringar á því sem ég var að vandræðast með :)
3.8.12
Ferðalag
Við erum að fara í fyrstu og síðustu útilegu sumarsins. Mig langar á Þjóðhátíð en gamli minn er ekki eins spenntur fyrir því svo við verðum bara einhversstaðar sem sólin skín og hundar eru velkomnir.
Ætlum að leggja af stað snemma í fyrramálið og bruna fyrst í höfuðborgina. Hrappur er að fara í klippingu í hádeginu og á meðan hann er þar ætlum við skötuhjúin að skella okkur í Álftaneslaugina eins og við gerum gjarnan meðan prinsinn er í yfirhalningu. Síðan þurfum við aðeins að útrétta og bruna svo út úr bænum að hitta góða vini á tjaldsvæði. Spennandi! Verð samt pínu grenjandi um helgina yfir því að vera ekki að fara á þjóðhátíð. Verður skrýtið þar sem ég hef farið á hverju ári síðan 2007 og í öll skiptin með Villa mági mínum. Jebb hef oftar tjúttað í Herjólfsdal með honum en manninum mínum - reyndar er maðurinn minn ekki mikið í tjúttinu. Á eftir að sakna Villa um helgina!
2.8.12
26.7.12
25.7.12
Garðsala!!
Við vinkonurnar ætlum að selja af okkur spjarirnar í garðinum heima hjá mér (Hrannarstígur 4) á laugardaginn. Fullt af fínum fötum, skóm, skarti og fleira á mjög góðu verði.
Garðurinn opnar kl 13.00 og verður opinn eitthvað frameftir degi. Tilvalið að rölta við á leiðinni niður á hátíðarsvæði :)
Garðurinn opnar kl 13.00 og verður opinn eitthvað frameftir degi. Tilvalið að rölta við á leiðinni niður á hátíðarsvæði :)
24.7.12
Hrappur
Mér finnst þessi vera sá allra sætasti. Hann er svo mikill karakter og algjör óþekktarangi, en samt svo blíður og góður.
21.7.12
Kökur
Kökur eru eitt mitt helsta áhugamál. Veit fátt skemmtilegra en að baka og skreyta kökur.
Hér eru nokkrar sem ég hef gert..
Hér eru nokkrar sem ég hef gert..
20.7.12
Símablogg..
Er komin með blogger í símann. Haldiði að það sé munur!
Set inn mynd af litla hundabarninu mínu með uppáhalds leikfangið sitt. Plútó!
Set inn mynd af litla hundabarninu mínu með uppáhalds leikfangið sitt. Plútó!
If your dreams don't scare you, they're not big enough..
Var svo glöð þegar ég heyrði þessa setningu um daginn. Ég er nefninlega svo skíthrædd við mína drauma að mig langar mest að hætta við allt saman og verða bara stöðnuð húsmóðir hér á Hjara. En það þýðir ekkert og nú er best að horfast í augu við þetta allt saman og stíga eitt stórt skref út fyrir þægindahringinn. Hlýt að geta það með þessi orð í farteskinu :)
19.7.12
Frænkur
Fæ þessar frænkur til mín í pössun í ágúst því foreldrar þeirra eru að fara í brúðkaup hérna á Hjara veraldar. Við JP ætlum að dúllast með litlurnar á meðan. Hötum það ekkert og erum búin að plana allskonar þó ég viti að Auður er góð ef hún fær að hitta Hrapp og borða köku og Björg verður örugglega bara hress ef hún fær pela og dót að slefa á.
Verður gaman að fá Gumma og Kristínu í heimsókn líka - eins gott að taka það fram ;)
Verður gaman að fá Gumma og Kristínu í heimsókn líka - eins gott að taka það fram ;)
Mynd frá Kristínu
Hárvangaveltur
Ok, er ekki enn búin að finna útúr þessu með myndirnar, þarf kannski bara að fá mér tölvu. Langar í hvíta Macbook, (sé enn eftir að hafa ekki keypt mér þannig 2007 þegar ég keypti mér HP tölvu sem entist í tvö ár) en skilst að svoleiðis sé ekki í boði lengur. Get allavega sagt ykkur að ég fæ mér lítinn krúttlegan makka.
En að öðru. Er búin að vera velta fyrir mér hárvörum.
Þurrsjampó: er þetta algjör snilld og hvaða merki er best?
Sléttujárn: ég ælta að fjárfesta í einu góðu, er með eitt frá Tigi í sigtinu en datt í hug að heyra frá ykkur áður en ég punga út fyrir því ef það skildi leynast einhver önnur snilld þarna úti. Annars er ég svo trygg Tigi að ég ætti að vera á prósentum hjá þeim. Við JP notum hárvörur frá þeim og Hrappur litli líka - enda lyktar hann eins og bláberjamöffins alla daga ;)
Ipad vill ekki leyfa mér að hafa greinaskil í færslunum mínum, svo það verður bara að vera eins og ég skrifi allt í einni runu..
16.7.12
Ætlaði að koma með svaka myndablogg en iPad og blogspot virðast ekki vera vinir svo ég verð bara að sína ykkur (efast reyndar um að það fari margir hérna um þessa dagana) fínar myndir seinna.
Annars á ég tvo tíma eftir af (fimmtu!) næturvaktinni og er þá komin í tveggja daga frí og spáin er góð. Halló sólgleraugu, spf 30 og Yrsa Sigurðardóttir!
Ps - er komin á bloglovin, örugglega bylting fyrir stóra lesendahópinn minn :)
15.7.12
Bloggarinn mikli fra Kasmír
Ég fæ seint verðlaun fyrir að vera virkur bloggari en fæ kannski smá kredit fyrir að reyna og koma af og til með miklar yfirlýsingar um meira og betra blogg :)
En að öðru og fallegu, mig hefur lengi langað í nafnahálsmen en aldrei fundið neitt sem hefur heillað mig, þau eiga til að vera svo klunnaleg. En ég rambaði inní Hringu á laugavegi um daginn og sá þar þetta hálsmen sem mér fannst hæfilega fíngert fyrir mig. Myndi reyndar vilja gyllt og bara hafa Kristínar nafnið, held að 'KristínAlma' sé of mikið. Nú þarf ég bara að bíða eftir góðu tilefni til að panta það og önnur tilefni til að geta verslað mér margt annað fallegt í þessari búð. Ég er víst algjör lumma að vilja fá svona hálsmen núna þar sem þetta var í tísku fyrir nokkrum árum en mér finnst þetta fallegt - enda ber ég alveg einstaklega fallegt nafn ;)
Talandi um nöfn þá á ég gullarmband með nafninu mínu sem ég fékk í skírnargjöf fyrir ansi mörgum árum. Mig langar að láta setja lengri keðju í það - mælið þið með einhverjum góðum gullsmið sem er hægt að leita til með svoleiðis? (já ég ætla að eiga armband og hálsmen með nafninu mínu!)
Mikið er þetta skemmtileg færsla...

11.3.12
Gamalt Iittala
Fæ stundum að gramsa í geymslunni hjá ömmu og afa. Oft hægt að finna allskonar fjarsjóði þar. Datt heldur betur í lukkupottinn um helgina þegar amma gaf mér gamlan Iittala vasa. Mér finnst hann voða fínn, þarf bara að þvo hann með lopasápu, setja í hann blóm og þá verður hann sko eins og nýr :)
6.3.12
5.3.12
Iittala
Fallegir hlutir frá Iittala sem mig langar í (ég á afmæli í næstu viku). Ég er reyndar alveg Iittala sjúk, held ég hafi ekki séð hlut frá þessi merki sem mér finnst ekki flottur. Vildi stundum að ég væri að vinna í verksmiðjunni við að setja litla rauða miða á þessa dásamlegu hluti. 

27.2.12
Litlir lampar á lækjarbakka..
Ég er alveg ótrúlega laumu skotin í þessum lömpum sem fengust í Kisunni hérna í "denn". Fást víst núna í GK Reykjavík - kannski maður ætti að fara þangað og kíkja á þessi krútt. Veit samt ekki hvort mér finnist þetta vera eitthvað sem ég myndi kaupa og hafa í stofunni, en þeir eru alveg dásamlegir inní barnaherbergi. Ef ég ætti börn þá væri sennilega heill her af bömbum og sveppum í herberginu hjá þeim. Kannski Hrappur fíli svona lampa... ;)
Fín kanína

Auðvitað fann ég frosk, mjög viðeigandi

Sveppur myndi sóma sér vel í glugga

Ég er með uglusýki, sjáið bara þessa fallegu snæuglu :)

Bambi litli

Myndirnar eru fengnar í láni hjá google.

Myndirnar eru fengnar í láni hjá google.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)