3.8.12

Ferðalag

Við erum að fara í fyrstu og síðustu útilegu sumarsins. Mig langar á Þjóðhátíð en gamli minn er ekki eins spenntur fyrir því svo við verðum bara einhversstaðar sem sólin skín og hundar eru velkomnir. Ætlum að leggja af stað snemma í fyrramálið og bruna fyrst í höfuðborgina. Hrappur er að fara í klippingu í hádeginu og á meðan hann er þar ætlum við skötuhjúin að skella okkur í Álftaneslaugina eins og við gerum gjarnan meðan prinsinn er í yfirhalningu. Síðan þurfum við aðeins að útrétta og bruna svo út úr bænum að hitta góða vini á tjaldsvæði. Spennandi! Verð samt pínu grenjandi um helgina yfir því að vera ekki að fara á þjóðhátíð. Verður skrýtið þar sem ég hef farið á hverju ári síðan 2007 og í öll skiptin með Villa mági mínum. Jebb hef oftar tjúttað í Herjólfsdal með honum en manninum mínum - reyndar er maðurinn minn ekki mikið í tjúttinu. Á eftir að sakna Villa um helgina!

2.8.12

Myndataka

Amma hennti okkur barnabörnunum í myndatöku um daginn. Það gekk svona...

25.7.12

Garðsala!!

Við vinkonurnar ætlum að selja af okkur spjarirnar í garðinum heima hjá mér (Hrannarstígur 4) á laugardaginn. Fullt af fínum fötum, skóm, skarti og fleira á mjög góðu verði.
Garðurinn opnar kl 13.00 og verður opinn eitthvað frameftir degi. Tilvalið að rölta við á leiðinni niður á hátíðarsvæði :)

24.7.12

Hrappur

Mér finnst þessi vera sá allra sætasti. Hann er svo mikill karakter og algjör óþekktarangi, en samt svo blíður og góður.

21.7.12

Kökur

Kökur eru eitt mitt helsta áhugamál. Veit fátt skemmtilegra en að baka og skreyta kökur.
Hér eru nokkrar sem ég hef gert..

20.7.12

Símablogg..

Er komin með blogger í símann. Haldiði að það sé munur!

Set inn mynd af litla hundabarninu mínu með uppáhalds leikfangið sitt. Plútó!

If your dreams don't scare you, they're not big enough..

Var svo glöð þegar ég heyrði þessa setningu um daginn. Ég er nefninlega svo skíthrædd við mína drauma að mig langar mest að hætta við allt saman og verða bara stöðnuð húsmóðir hér á Hjara. En það þýðir ekkert og nú er best að horfast í augu við þetta allt saman og stíga eitt stórt skref út fyrir þægindahringinn. Hlýt að geta það með þessi orð í farteskinu :)

19.7.12

Frænkur

Fæ þessar frænkur til mín í pössun í ágúst því foreldrar þeirra eru að fara í brúðkaup hérna á Hjara veraldar. Við JP ætlum að dúllast með litlurnar á meðan. Hötum það ekkert og erum búin að plana allskonar þó ég viti að Auður er góð ef hún fær að hitta Hrapp og borða köku og Björg verður örugglega bara hress ef hún fær pela og dót að slefa á.
Verður gaman að fá Gumma og Kristínu í heimsókn líka - eins gott að taka það fram ;)

Mynd frá Kristínu

Hárvangaveltur

Ok, er ekki enn búin að finna útúr þessu með myndirnar, þarf kannski bara að fá mér tölvu. Langar í hvíta Macbook, (sé enn eftir að hafa ekki keypt mér þannig 2007 þegar ég keypti mér HP tölvu sem entist í tvö ár) en skilst að svoleiðis sé ekki í boði lengur. Get allavega sagt ykkur að ég fæ mér lítinn krúttlegan makka. En að öðru. Er búin að vera velta fyrir mér hárvörum. Þurrsjampó: er þetta algjör snilld og hvaða merki er best? Sléttujárn: ég ælta að fjárfesta í einu góðu, er með eitt frá Tigi í sigtinu en datt í hug að heyra frá ykkur áður en ég punga út fyrir því ef það skildi leynast einhver önnur snilld þarna úti. Annars er ég svo trygg Tigi að ég ætti að vera á prósentum hjá þeim. Við JP notum hárvörur frá þeim og Hrappur litli líka - enda lyktar hann eins og bláberjamöffins alla daga ;) Ipad vill ekki leyfa mér að hafa greinaskil í færslunum mínum, svo það verður bara að vera eins og ég skrifi allt í einni runu..

16.7.12

Ætlaði að koma með svaka myndablogg en iPad og blogspot virðast ekki vera vinir svo ég verð bara að sína ykkur (efast reyndar um að það fari margir hérna um þessa dagana) fínar myndir seinna. Annars á ég tvo tíma eftir af (fimmtu!) næturvaktinni og er þá komin í tveggja daga frí og spáin er góð. Halló sólgleraugu, spf 30 og Yrsa Sigurðardóttir! Ps - er komin á bloglovin, örugglega bylting fyrir stóra lesendahópinn minn :)

15.7.12

Bloggarinn mikli fra Kasmír

Ég fæ seint verðlaun fyrir að vera virkur bloggari en fæ kannski smá kredit fyrir að reyna og koma af og til með miklar yfirlýsingar um meira og betra blogg :)
 En að öðru og fallegu, mig hefur lengi langað í nafnahálsmen en aldrei fundið neitt sem hefur heillað mig, þau eiga til að vera svo klunnaleg. En ég rambaði inní Hringu á laugavegi um daginn og sá þar þetta hálsmen sem mér fannst hæfilega fíngert fyrir mig. Myndi reyndar vilja gyllt og bara hafa Kristínar nafnið, held að 'KristínAlma' sé of mikið. Nú þarf ég bara að bíða eftir góðu tilefni til að panta það og önnur tilefni til að geta verslað mér margt annað fallegt í þessari búð. Ég er víst algjör lumma að vilja fá svona hálsmen núna þar sem þetta var í tísku fyrir nokkrum árum en mér finnst þetta fallegt - enda ber ég alveg einstaklega fallegt nafn ;)
 Talandi um nöfn þá á ég gullarmband með nafninu mínu sem ég fékk í skírnargjöf fyrir ansi mörgum árum. Mig langar að láta setja lengri keðju í það - mælið þið með einhverjum góðum gullsmið sem er hægt að leita til með svoleiðis? (já ég ætla að eiga armband og hálsmen með nafninu mínu!)
 Mikið er þetta skemmtileg færsla...

11.3.12

Gamalt Iittala

Fæ stundum að gramsa í geymslunni hjá ömmu og afa. Oft hægt að finna allskonar fjarsjóði þar. Datt heldur betur í lukkupottinn um helgina þegar amma gaf mér gamlan Iittala vasa. Mér finnst hann voða fínn, þarf bara að þvo hann með lopasápu, setja í hann blóm og þá verður hann sko eins og nýr :)


6.3.12

Gamlar myndir





Þessi mynd er einmitt tekin rétt eftir að ég borðaði bílinn...

5.3.12

Iittala

Fallegir hlutir frá Iittala sem mig langar í (ég á afmæli í næstu viku). Ég er reyndar alveg Iittala sjúk, held ég hafi ekki séð hlut frá þessi merki sem mér finnst ekki flottur. Vildi stundum að ég væri að vinna í verksmiðjunni við að setja litla rauða miða á þessa dásamlegu hluti.


Kaffið getur bara ekki bragðast illa í svona múmínmömmubolla












Festivo stjakarnir eru bara fallegir. Tengdamamma mín á svona stjaka frá því hún byrjaði að búa fyrir "nokkrum" árum. Svo gaf hún mér minn fyrsta festivo stjaka núna um jólin. Er sko byrjuð að safna þeim núna :)





Alvar Aalto vasarnir eru ótrúlega fallegir. Túlípanar eru sérlega fallegir í svona vasa. Verst að ég á mjög erfitt með að ákveða mig hvernig lit ég vil






Flottur bakki, ég elska bakka

27.2.12

Litlir lampar á lækjarbakka..

Ég er alveg ótrúlega laumu skotin í þessum lömpum sem fengust í Kisunni hérna í "denn". Fást víst núna í GK Reykjavík - kannski maður ætti að fara þangað og kíkja á þessi krútt. Veit samt ekki hvort mér finnist þetta vera eitthvað sem ég myndi kaupa og hafa í stofunni, en þeir eru alveg dásamlegir inní barnaherbergi. Ef ég ætti börn þá væri sennilega heill her af bömbum og sveppum í herberginu hjá þeim. Kannski Hrappur fíli svona lampa... ;)


Fín kanína






Auðvitað fann ég frosk, mjög viðeigandi






Sveppur myndi sóma sér vel í glugga






Ég er með uglusýki, sjáið bara þessa fallegu snæuglu :)






Bambi litli








Myndirnar eru fengnar í láni hjá google.

26.2.12

Endurvinnsla

Sá þetta hér um daginn hjá þessari nýju spreyvinkonu minni og fannst þetta frábær hugmynd. Ég var með krukku undan ilmkerti sem ég var búin að þvo og langaði að nota í eitthvað en vissi ekki alveg hvað. Svo datt mér í hug að blúnduspreyja krukkuna og nota sem sprittkertastjaka.




Þannig að ég fann til krukkuna góðu.



Fann svo til blúndubol sem ég átti og var frekar lítið notaður, skil það ekki.. :)



Tróð krukkunni í ermina, klippti til og bjó mig undir að skokka útí bílsskúr að spreyja. En..



Svo var þetta eitthvað bara svo sætt saman að ég ætla að hafa krukkuna með blúnduerminni á í smá tíma. En engar áhyggjur, þetta verður spreyjað - bara svona þegar ég nenni að fara útí kalda bílskúrinn minn :)

23.2.12

Gamalt verður nýtt

Ég er sjúk í uglur. Finnst þær eitthvað svo fallegar og auðvitað viskulegar. Mér áskotnuðust þessar litlu krúttuglur fyrir ekki svo löngu en vissi ekki alveg hvað ég gæti gert við þær - fílaði ekki alveg litinn á þeim. Þær voru með rauð augu þegar ég tók þær að mér en ég var nú búin að tússa með svörtu yfir það :)

Skellti þeim á gamla mogga sem ég var búin að breiða út á eldhúsgólfið - bílskúrinn henntar sennilega betur í svona verkefni en hann var svo fullur af bíl að ég nennti ekki að vesenast þar fyrir þetta smáræði. Smá svart sprey og voila!





Allt annað að sjá þær greyin. Nú fá þær líka að kúra á einhverjum góðum stað þegar þær eru orðnar þurrar :)






27.9.10

Nýtt upphaf?

Komst inn á blogger í annari tilraun. Myndi segja að það væri afrek þar sem ég hef ekki farið hérna inn síðustu 9 mánuði eða svo.

Veit ekki hvort ég kunni enn að blogga, en ætla að reyna.

Héðan af Hrannarstígnum er allt í góðum gír. Húsbóndinn vinnur fyrir heimilinu með því að veiða fisk útá sjó 5-6 daga vikunnar, ég sjálf er að vinna á dvalarheimili og í Lyfju ásamt því að hugsa um Hrapp litla, sem við fengum um jólin síðustu. Hann er vissulega hundur en heldur sjálfur að hann sé mannsbarn, gæti mögulega verið því við foreldrarnir höfum tekið þessu nýja hlutverki okkar af aðeins of mikilli alvöru og hugsum um grey hundinn eins og um kornabarn væri að ræða.

Verður spennandi að sjá hvort að ég hendi inn annari færslu á næstu 9 mánuðum. Stay tuned.

5.6.10

Hrappur