19.8.07

Happy feet

Ef ég fer EKKI út að hlaupa í fyrramálið klukkan 05.45 þá gef ég ykkur öllum 1000 kr. Öllum.
Það er samt bannað að koma heim til mín og afstilla vekjaraklukkuna.

Mjög sniðugt að segja þetta. Nú verð ég að fara út að hlaupa því að ég á ekki 350.000kr sem ég má missa :)

Ég hef líka heyrt að maður verði glaður ef maður hreyfir sig. Ég verð þá kannski jákvæð á morgun.

Edderkoppegrisebassemand...

Mig langar að fara á Simpsons myndina á dönsku bara til að heyra Spiderpig atriðið. Því spiderpig er sagt; Edderkoppegrisebassemand á dönsku. Það er fyndið.


Edderkoppegrisebassemand

18.8.07

Næturblogg

Ég get ekki sofið. Ég var að horfa á Harry Potter í sleik. Ég get svarið fyrir það, ég hefði frekar viljað horfa á mömmu og pabba í sleik heldur en þetta. Vandræðalegt. Ef hann fær sér að ríða í næstu mynd ætla ég ekki að sjá hana. (Er sko ekki búin að lesa bók nr 6)

Ég er ógeðslega bitur útí Danmörku þessa dagana. Mjög slæmt þar sem ég bý víst hérna. Danskt nammi er ógeð, danskur matur er viðbjóður, dönsk hús eru asnaleg, danskt skólakerfi er útí hött, ætla ekki einu sinni að ræða tungumálið og veðrið er fáránlegt. Síðan ég kom er búið að vera GRENJANDI rigning eina mínútuna og svo alveg GLAMPANDI sól hina mínútuna. Svona skiptist þetta á ALLAN daginn. Þreytandi.
Þetta lagast samt, ég vildi bara fá að vera aðeins lengur á Íslandi. Ég var eins og ég væri á leið í aftöku þegar ég var að fara í skólann í síðustu viku. Kannski ekki skrítið því að við erum bara búin að vera í einhverjum leikskóla leikjum alla vikuna. Bygholm Park í ratleik og svo kíktum við í Danish Crown - eitt stærsta sláturhús í Evrópu og sáum hvernig grísir eru slátraðir svo við getum nú fengið flæskesteg.

Hvað get ég sagt ykkur fleira neikvætt?

Ég er að taka endajaxla - ENNÞÁ! Er með verk frá góm uppí kinnbein og þaðan uppí eyru. Ég er öll alveg stökk bólgin í kjaftinum og er að fatta það núna að það er örugglega þess vegna sem ég er svona hrottalega bitur og geðvond. Ætti kannski að finna mér tannlækni..
Ég þarf að fara í klippingu. Hvert sinn sem ég geri tilraun til þess að vera með slegið hár, þá fæ ég köfnunartilfinningu, án gríns. Of mikið hár, ég er komin með hár lengst niður á bak og er ekki að nenna svona síðháraleik - sérstaklega ekki þar sem sléttujárnið mitt er á Íslandi og hárblásarinn död. Svo ég er skiljanlega með crazy hair.

Hugs hugs hugs.

Klukkan er orðin alltof margt. Ég þarf að vakna með barnið í fyrramálið. Hann heppinn að fá að eyða morgninum með ósofinni systur sinni. Þeir skilja það sem hafa lennt í að þurfa að vera í 5km radíus við mig fyrir hádegi :)

17.8.07

Andskotinn

Fiskar: Samkomur sem þú skipuleggur nú takast mjög vel. Þú gætir fengið vinnu út á það. Í kvöld er sá sem þú ert að hugsa um, líka að hugsa um þig. Hringdu.

Ohh, ég man ekkert um hvern ég var að hugsa í kvöld. Enda búin að horfa á 3 chick flick myndir með unglingi B.
En svona vegna þess að ég klikkaði, er sá sem var að hugsa um mig í kvöld til í að hringja bara? Ég er svo forvitin.

(+45) 20 95 46 55

Damn. Klukkan orðin 02.00 - Ég á aldrei eftir að vakna í þennan djöfuls spinning tíma sem ég ætlaði í í fyrramálið.

16.8.07

Nokkrir góðir dagar án..Mömmu

Jæja, þá er maður fluttur aftur heim. Reyndar bara yfir helgina því ég er með unglingana í minni umsjá meðan kynmóðir okkar er í saumaklúbbaferð í Amsterdam. Ekkert djamm fyrir mig um helgina. Bara gera eitthvað sem húsmæður gera.
Ég er alveg komin með to do lista og allt.
  • Ryksuga
  • Viðra hundinn
  • Þrífa skjaldbökubúrið - hefur víst ekki verið gert síðan í maí að mér skilst
  • Þvo þvott
  • Þrífa heima hjá mér
  • Fara í genbrug
  • Gera eitthvað skemmtilegt og uppbyggjandi með unglingunum
Spennandi helgi frammundan eins og þið sjáið. En hvað gerir maður ekki fyrir yfirvaldið.

Ég hefði kannski átt að hafa hærra um það að ég eldi ekki. Tók mig til í gær og eldaði þessa líka dýrindis máltíð fyrir okkur systur. Hafði einfaldlega ekki í mér að bjóða unglingnum (Unglingur B er í næturgistingu) uppá serjós í kvöldmatinn. Þannig að það var skundað útí Rema 1000 og keypt kjúlla og eitthvað sem ég gat hugsað mér að malla með. Þegar heim var komið var þetta steikt, sullað í eldfast mót og hálftíma seinna var komin þessi líka dýrindis réttur. Maður er ekki lengi að hrissta kræsingarnar fram úr erminni þegar maður tekur sig til. Ónei.
Mamma heldur að ég hugsi ekki nógu vel um systkini mín þegar að ég er með þau svona í nokkra daga í einu. Þess vegna tók ég video og myndir til þess að sanna að ég leggji mig virkilega fram í að vera góð við þau greyin.
Ég kann ekki að setja myndbönd á netið þannig að myndirnar verða að duga.


Kveikt á kertinu góða


Að fá sér


Afvelta


Fróði vildi ólmur smakka

Annars vil ég bæta því við að Móðir mín í föðurætt á afmæli og vil ég nýta tækifærið og senda henni hamingjuóskir í tilefni dagsins. Orðin heilum 9 árum eldri en ég. Geri aðrir betur.
Hún ákvað að svara ekki símum í tilefni dagsins, eða allavega ekki svara mér svo kveðjan er netvæn í ár.


Pabbi og afmæliskonan

14.8.07

Íslensk Kjötsúpa

Myndi gefa annan handlegginn ef ekki meira fyrir venjulegan heimilismat núna. Ég held svei mér þá að ég hafi ekki fengið almennilega eldaða máltíð í meira en mánuð. Svona ef maður telur ekki sveittu borgarana og fýlu pullurnar sem var étið í Eyjum með. Enda var það nú ekki matur fyrir 5 aura.
Mér dettur samt ekki til hugar að elda mér eitthvað. Frekar held ég áfram að éta túnfisk í dós og Cheerios-ið sem ég hafði mikið fyrir að taka með frá Íslandi. Get líka alveg hætt að tuða. Allur veturinn framundan á þessu mataræði, svo það er bara eins gott að maður fari að venjast þessu.

Annars langar mig að vita eitt. Af hverju þurfa fartölvur að vera svona marglitar alltaf. Ég þoli það ekki. Aldrei hægt að fá alveg svartar tölvur, verður allt að vera með gráu lyklaborði, hvítum ramma og einhverjum krúsídúllum.
Annað, er ekki hægt að fá töff fartölvutöskur? Allar ljótar, eða bara svona venjulegar. Mig til dæmis langar ekki í svarta venjulega. Var búin að finna eina frá Samsonite, en hún er auðvitað uppseld núna. Blehh

Geng í málið á morgun. Ætli ég endi ekki bara með skræpótta tölvu og svarta tösku..

13.8.07

Hver er Alli?

Það hefur nú ýmislegt á daga mína drifið síðan ég fékk hugmyndina hér að neðan. Ég er til að mynda hætt að vinna í Samskip. Það var alveg hrottalega fínt að ganga þaðan út í síðasta skipti. Enda er þetta búið að vera mitt annað heimili í sumar og ég komin með snert af ógeði.
Á föstudaginn skellti ég mér svo í útilegu á Snæfellsnes með Svanhvíti, Stjána, JP, VP, Ásdísi systur þeirra og famelíu. Og reyndar einhverju öðru fólki líka. En við vorum samt svo ógeðslega hress að við þurftum ekkert á öðru fólki að halda.
Ég var reyndar löngu búin að ákveða að vera bara heima með Pabba gamla á föstudaginn, en síðan ákvað ég að láta undan hópþrýstingi og kíkja með. Þetta var eiginlega þannig að Svanhvít bara ruddist inn heima hjá mér, tók undir handlegginn á mér, bar mig útí Prinsinn og brunaði af stað. Ok, kannski ekki alveg, en þetta hefði getað verið þannig.
Eníveis það var mjög gaman í þessu litla roadtrippi okkar og skemmtilegt að fara svona í útilegu líka. Varðeldur, Gítar, hefði verið nikka líka ef einhver hefði ekki beilað, áfengi, skemmtilegt fólk og frábært veður.
Brunað í bæinn um hádegi á laugardag til þess að geta eytt deginum með fjölskyldunni. Á gaypride.
Það var reyndar helvíti fínt. Katla kippti sér ekkert upp við þetta, en sölku fannst þessi ganga æði. Einhverra hluta vegna hélt hún að þetta væri Skátaskrúðganga og skátafánar og skátalög. Síðan fórum við að reyna að útskýra þetta fyrir henni að þetta væri gaypride gangan og jaríjarí. En hún nennti ekkert að hlusta á það. Bara hélt áfram að horfa á skátana og drotninguna..krúttrassgat þetta barn.
Pabbi fór svo með okkur Sölku á Fridays í Smáralind þar sem mér tókst að hrynja á rassgatið fyrir framan staffið þar. Þeim til gleði og yndisauka. Mér fannst þetta takmarkað fyndið og fékk marblett.
Þetta kvöld var svo allt mjög hræðilegt. Dó næstum úr sjálfsvorkun þegar að ég var að pakka. Svo að kveðja alla. Það var viðbjóður og grenjaði ég alveg hellings þá.
Síðan var haldið útá flugvöll og hangið þar í því gleðilandi til kl.01.00 þá fórum við í loftið. Ætlaði aldeilis að sofa, enda sama og ekki neitt sofið nóttina áður, en nei. Voru ekki öll heimsins organdi ungabörn í flugvélinni og þar á meðal eitt við hliðiná mér sem sparkaði ítrekað í mig og lét öllum illum látum.
Skil ekki hvað fólk er að pæla með að taka börnin sín með sér í svona næturflug.. auðvitað sofa þau ekkert bara allan tíman þegar búið að er rótast svona með þau. Síðan voru þau orðin alveg trítilóð þegar að við vorum að ná í töskurnar og bætti það ekki að seinu danirnir gátu ekki komið töskunum á bandið fyrr en að verða 2 tímum eftir lendingu. Þá átti ég eftir 3 tíma lestarferð, gat ekkert sofið þar heldur svo ég var orðin VEL pirruð þegar ég komst loksins heim til mín. Svaf þá í 21.klst nánast samfleytt.

Í morgun vaknaði ég svo, mjög hress en var komin hálfa leiðina í skólann þegar að ég gerði mér grein fyrir að ég hefði ekki stillt klukkuna á danska tímann og var því ekki nema 2 tímum of sein fyrsta daginn. Gaman af því.

8.8.07

Fékk þá frábæru hugmynd að taka strætó frá Samskip uppí Rúv, eftir að faðir minn hafði læst mig úti og skilið bílinn eftir heima.
Var fljót að hætta við þegar ég sá á Bus.is að það myndi taka mig 56 mín. og kosta mig 280kr.

Af hverju velja ekki fleiri þennan frábæra ferðamáta?

7.8.07

Vegna fjölda áskorana hef ég ákveðið að blogga um helgina.
En samt bara á morgun.

Þangað til.. "HVAR ER PER??"

(Það er eitthvað lítið um myndir vegna rafhlöðuleysis. Þannig að orð verða að duga)

2.8.07

Artífartí Þjóðhátíð

Sjáiði hvað ég er sjúklega frumleg og artý á Myspace. Var að breyta til. Snjóhúsið var ekki alveg að gera sig og ég ákvað að skipta yfir í egg vegna þess að ég er nú einu sinni að vinna í þessu yndislega mötuneyti í Samskip. Love my job!!
Jájá, þetta er svona gaman af þessu.
Allt að verða klárt fyrir Þjóðhátíð 07. Ég er búin að vera óþolandi þessa vikuna, ekki búin að tala um annað og búin að blasta "Í brekkunni" 24/7. Miða við hversu mikið og hátt þessi diskur hefur verið spilaður í Kórsölum eru nágrannarnir eflaust líka bara komnir í Þjóðhátíðargírinn.
Faðir minn röflaði yfir þessari tónlist í nokkur skipti. Síðan tilkynnti hann mér að hann ætli að koma "með" til eyja. Segist vera að fara að vinna, en ég trúi því ekki. Gæti reyndar verið að hann sé bara svona hræddur um frumburðinn, rúllandi fullann í brekkunni..
Ég skreið um háaloftið hjá ömmu og afa í gær og fann til sjógalla (ekki nema 8 sett) og annan nauðsynlegan búnað. Síðan er bara að henda gúmmítúttunum og lopasokkunum í tösku og þá er maður klár. Móðir mín búin að fara í ríkið fyrir mig og þar með búin að garentera að ég verði þunn fram í september.
Ég gerðist voðalega séð og fékk símadömurnar í Samskip til þess að hnýsast aðeins fyrir mig hverjir frá fyrirtækinu væru að fara á Þjóðhátíð. Þar sem ég þarf að mæta í vinnuna á þriðjudag og miðvikudag eftir Þjóðarann þá vil ég vita hversu mikið ég get gert af mér og hversu mikið ég get drukkið. Ætla ekki að vera búin að hrauna yfir forstjórann og síðan kemur hann í mat á þriðjudaginn. Vandræðalegt.
Símakonurnar eru hins vegar ekki að standa sig. Þær eru búnar að hafa alla vikuna til þess að finna þetta út, en einungis búnar að segja mér frá einum strák sem er að fara. Fyrir vissi ég um einn ungann mann og einhverja pjakka úr vöruhúsinu. Þetta er nú allt karlkyns, svo ekki fer ég að ræða við svoleiðis, hversu drukkin sem ég nú verð.

Annars er planið samt að haga sér vel, enda er það ég sem þarf að hafa vit fyrir Stjána, JP og helvítis útlendingnum.
Vona að ég komist lifandi frá þessu öllu saman, annars bið ég ykkur bara vel að lifa, þetta hefur verið skemmtilegur tími hérna á jörðinni og ykkur er öllum boðið í jarðaförina.

Bless.

31.7.07

Búin að finna sjálfa mig

Það virðist vera mikið í tísku að fara og finna sjálfan sig. Fólk er að taka árs leyfi frá skóla, ferðast og leika sér. Allt á þeim forsendum að finna sjálfan sig.
Ég þurfti ekki að fara lengra en í Samskip í nokkrar vikur. Ég er Control freak.
Hef bara aldrei tekið eftir þessu áður. Skrýtið. Ég sem er alltaf svo ljúf og góð :)

29.7.07

Fundinn og Ferming

Mikilvæg skilaboð til eina myndarlega karlmansins á Íslandi:

Ég sá þig í bænum á laugardagskvöldið en þorði ekki að tala við þig. Þú varst klæddur í brúnan leðurjakka og hvíta converse skó.

Hringdu: 848-5313

Eða msn-aðu: kristinalma@hotmail.com

Og ef þið lesendur góðir hafið séð þennan mann, vitið hver hann er eða hafið einhverjar upplýsingar um hann þá megið þið líka vera í bandi.

Annars var ógeðslega gaman á staffadjammi BabySam á laugardagskvöldið. Takk kærlega fyrir frábært kvöld, stelpur. Þið bættuð nokkrum stigum við geðheilsu mína.

"Who the fuck is Kormákur?"

---

Systur mínar, Vilborg Unnur og Sigríður Soffía fermdust í dag. Vil óska þeim innilega til hamingju með það.


Man eftir því þegar ég fermdist að ég hló þegar ömmurnar og afarnir komu til mín eftir atöfnina og sögðu mér að þau hefðu bara ekki getað haldið aftur tárunum, þetta var allt svo fallegt og þeim fannst svo stutt síðan að ég var ósjálfbjarga ungbarn í vögg og eitthvað jaríjarí.


Ég held að ég hafi verið sú eina sem grenjaði í kirkjunni. Finnst hræðilegt að þær séu orðnar svona stórar. Reyndar táraðist ég mest þegar ég kom inn í andyrið á Garðakirkju og sá þær standa þar. Svo glæsilegar og fallegar.

Eníveis, þá er ótrúlega fyndið hvað þær eru ólíkar. Mamma talar alltaf um að þær séu ólíkastar af okkur 5 systkinunum. Sem er rétt. Bæði í útliti og persónuleika. Til að mynda var önnur þeirra í strigaskóm í dag og hin í hælum ;)

Veislan var ótrúlega skemmtileg. Ingibjörg Elín, litla systir okkar söng og veitingarnar ekki af verri endanum. Enda er það yfirleitt ekkert slor þegar Óskar er annars vegar. Hérastubbur félagi minn sá svo um kökurnar, sem voru ekki þessar týpísku marsípan ógeðskökur, heldur bountykökur. Sjúkt gott.

Frábær dagur.









26.7.07

Vó

Voðaleg sprengja varð allt í einu inná síðuna. Næstum 200 fleiri heimsóknir í gær heldur en aðra daga. Er ég að missa af einhverju?
Var amma Stína að læra á refresh takkan?

25.7.07

Þetta er dásamlegt.
Nú bíð ég bara eftir að það komi frétt um það að ég sé að passa kisuna þeirra.

(Stal þessu frá DiscoDóra)

23.7.07

Dáin

Hafiði lent í að segja eitthvað sem á að vera ógeðslega fyndið við manneskju sem misskildi djókinn og horfði á ykkur eins og þið væruð holdsveik, en ekki bara ófyndin? Og ykkur langaði að deyja? - Kom fyrir mig í morgun.
Ég lendi oft í þessu (er ekki fyndin manneskja og á ekki að reyna að segja djóka, hvað þá ef mér finnst þeir fyndnir..), en aldrei fyrr virkilega reynt að snúa mig úr hálslið til að komast útúr aðstæðunum.

Hafiði lent í því að segja eitthvað ógeðslega asnalegt eða hallærislegt við einhvern, vegna þess að þið frusuð á staðnum þegar viðkomandi yrti á ykkur? - kom fyrir mig áðan.
Lendi líka stundum í þessu - frekar óþægilegt.

Ég er farin að strauja á mér tunguna.

20.7.07

Í fréttum er þetta helst:

Flíspeysumálið ógurlega: Peysan fannst loksins eftir að hafa verið týnd í 3 vikur. Þóra fann hana í skottinu á bílnum hennar SóleyjarTó. Ég hef ekkert verið að væflast þar, þannig að þetta er dáldið dularfullt mál.

Þjóðhátíð: Búið að borga í dallinn, förum út á föstudeginum og komum "uppá land" á mánudeginum. Íris og Garðar eru búin að beila þannig að ég verð eina stelpan. Hópurinn samanstendur af: Mér, Stjána, JP, Danska gaurnum og Villa bróðir (held ég). Verður áhugavert. Ég er búin að pannta að sofa í miðjunni - og núna er ekki hægt að setja mig í annað herbergi..
Þetta verður feiknar fjör og er mikil tilhlökkun. Ég og sá danski erum að fara í fyrsta skipti svo þetta verður þvílíkt ævintýri fyrir okkur, túristana.
Kvíði reyndar pínu fyrir einu og það er að miða við hvað strákarnir eru búnir að tala mikið um hvað þeir ætla að gera í Eyjum er ég hrædd um að ég komi lesbísk heim. Það á nefninlega að fara í Dalinn og finna sér KJÉLLINGAR. Ég verð annað hvort að gjöra svo vel að fara með, þar sem að ég er kjúklingur og þori ekki að vera ein í kringum svona fullt fólk sem ég þekki ekki eða bara vera heima í tjaldi og prjóna. Því ekki fer ég á fyllerí eða kallafar, (Er það orð til?) Geri ekki svoleiðis.

Ferming: Nú er famelían mín öll komin til landsins og fermingarstúlkurnar þylja trúarjátninguna, faðirvorið, ritningarorðin og boðorðin alveg útí eitt, bæði á Íslensku og dönsku. Fermingarfötin eru tilbúin og allt að verða klappað og klárt.
Ég reyndar get ekki með nokkru móti fundið föt á mig. Mér finnst allt ljótt og asnalegt, enda eru þessar heimsku útsölur í gangi núna og bara eintómt drasl á þeim eins og vanalega. Ég er búin að þræða hverja einustu búð í bænum og finn ekki neitt. Þetta hlýtur að reddast.

Vinnan: Það er svona líka þrælskemmtilegt í vinnunni alltaf hreint. Eða ég lýg því að mér að minnsta kosti. "Góðan daginnnn Gjössoveeeeel" Okkur Óskari semur alveg fínt, ennþá allavega. Konurnar í vinnunni duglegar að ota að mér sonum sínum og segja mér frá hvað þessi Siggi í Innflutningi sé agalega huggulegur og á lausu. Fengu svo taugaáfall þegar ég sagði að ég væri nú meira fyrir hann Gunna í landflutningum. Þá hljóðuðu þær upp yfir sig að hann væri að verða þrítugur og væri fráskilinn. Baneitraður greinilega.

Fjölskyldan: Það dró aldeilis til tíðinda í gær. Litli frændi minn Almarsson fékk nafn. BALDUR FREYR. Baldur í höfuðuð á afa og Freyr er víst bara Freestyle að mér skilst.
Gaman að segja frá því að ef að ég hefði verið strákur þá hefði ég verið skírð Baldur. Ég hefði orðið góður Baldur. En litli frændi ber þetta nafn svo sannarlega vel, enda er hann miklu myndarlegri en ég.
Til hamingju með þetta fallega nafn.

Helgin: Frænkufyllerí á morgun, hlakka mikið til. Síðan er það afslöppun útí eitt.

Þessi færsla: Er alveg ógeðslega leiðinleg. Með þeim leiðinlegri, enda er löngu komin háttatími á mig og ég er því ekki alveg í sambandi í hausnum.

Ble

19.7.07

17.7.07

Mánudagur til..mæðu?

Mér finnst að það ætti að vera mynd af mér við orðið "heppni" í orðabókinni. Einnig fyndist mér réttast að það væri mynd af mér við orðið "kaldhæðni."

Það er einhver sem er farinn yfir móðuna miklu sem er að bögga mig alveg hræðilega. Síðan ég kom til Íslands fyrir tæpum mánuði síðan þá hafa ótrúlegustu hlutir horfið, sporlaust.
Byrjaði voða saklaust, fyrst fann ég ekki sokkana mína, hárspennur, húslykla og þess háttar. Þá var mér sama. En manni finnst þetta lélegur djókur þegar að splunkuný cintamani peysa sem kostaði ekki nema rúmar 12.000 kr týnist og fleira af svona stærri og dýrum hlutum (sé samt mest eftir fu.. peysunni, nú dey ég úr kulda í Eyjum).
Þetta bara gufar upp, gjörsamlega. Einn daginn eru hlutirnir á sínum stað og svo bara búmm, horfnir.

Ekki láta ykkur bregða þó að ég hverfi bráðum, miða við áhuga þessa "félaga" míns á dótinu mínu þá hlýtur hann að fara að taka mig með sér bráðum.

16.7.07

Mánudagur

Í dag er mánudagur. Um helgina var gott veður, það er nokkuð ljóst. 90% af fólkinu sem ég er búin að hitta síðan ég vaknaði klukkan 06:15 er eins og það hafi lennt í sinueldinum á Grundartanga.
Þekkja Íslendingar ekki sólarvörn?

15.7.07

Á morgun fáum við úr því skorið hvort ég sé góð í að keyra bíl. Ökumatið ógurlega og ég kvíði svo fyrir að ég þarf næstum að æla.
Æfði mig pínu í dag með að keyra Lincolnin hennar ömmu útum allt í dag. Hann talar við mann, voða fínt fyrir fólk eins og mig sem á enga vini ;)

Má ekki vera að því að blogga, þarf að fara að læra munin á hægri og vinstri..