28.2.07

How do you like Iceland?

Ég á ekki eitt aukatekid ord yfir thessum rosalega tepruskap og hálfvitagangi sem hefur verid í gangi á Íslandi sídustu vikur.
Klámfólkinu hreinlega neitad um gistingu? Hvad er thad?
Af hverju mátti thetta fólk ekki koma hingad eins og hverjir adrir túristar, skoda gullfoss og geysi og drekka brennivín eins og allir hinir sem koma til Íslands? Ef ad thetta fólk hefdi titlad sig "Kínaforseti", "Gorge Bush" eda jafnvel "Osama bin Laden" thá hefdi thetta verid i lagi og fólkid fengid allt thad besta. En af thví ad ordid "klám" fer eitthvad fyrir brjostid a sumum tha var greyid fólkinu neitad um gistingu og ætlar aldrei ad koma til Íslands. Theim finnst oryggi sínu ógnad og og ég skil thad vel. Frábær landkynning thad, vona ad thid séud ánægd.
Ég er ekki ad segja ad mér finnist klám eitthvad ædislegt og frábært, alls ekki. En thad er svo margt annad sem skiptir svo miklu miklu meira máli en typpi og píkur...

20.2.07

Krónprinsessa Íslands kveður netið

Er farin úr netheimum í bili.
Ástæðan er einföld, tölvuleysi.
Tölvan mín er ónýt og ég get ekki pínt hana lengur. Slekkur á sér, slekkur á internetinu og lokar öllum gluggum, svona eftir eigin henntisemi. Það er ekki hægt að vera á msn, ekki hægt að vera í word, ekki hægt að blogga og ekki hægt að vera innaní internetinu.
Skólatölvurnar eru danskar og skal veðja að þið nennið ekki að lesa dönsk blogg eða tala við mig á dönsku í gegnum eitthvað glatað web-msn.
Reikna með að kaupa mér nýja tölvu um það bil árið 2010, en það er þá sem að ég sé fyrir endan á náminu mínu og verð farin að þéna meira en 2.500dkk á mánuði.
En ég fæ allavega ekki tölvuvírus á meðan :)
Sjáumst í kjötheimum. Vonast eftir mörgum bréfum, þýðir ekki að senda E-mail.


Kristín Alma Bergmann Sigmarsdóttir
Skovglimt 38
8700 Horsens
Danmark
gsm: 20 95 46 55

P.S. Pabbi/Þóra. Nennið þið að senda mér vísakortið mitt. Það er í drekanum. Þeinkjú.

Bolledag på dansk..

Ójá.
Það er alltaf jafn skemmtilegt að fara í skólann á bolludaginn þegar að maður býr í Danmörku. Það er nefninlega eitt sem að er alls ekki kennt í þessi 5 ár sem maður "lærir" dönsku á Íslandi. Það er að "bolle", er ekki bara eitthvað sem maður kaupir hjá bakaranum, heldur líka eitthvað sem maður getur gert með bakaranum. "Bolle", þýðir nefninlega líka að stunda kynlíf (þori ekki að segja ríða, það gæti sært foreldra, ömmur, afa og feminista, en bolle er beisiklí okkar ríða) .
Dönunum finnst alltaf jafn skemmtilegt að heyra það á leiðinlegum mánudegi að þetta sé í raun og veru Bolledag og finnst enn skemmtilegra að heyra að þessi dagur er bara einu sinni á ári. Einn strákur í bekknum mínum sagðist núna skilja afhverju ég flutti til Danmerkur, fattaði greinilega ekki djókinn.

Annars fékk ég bollur í gær, bakaðar. Arna sá til þess.
Núna er sprengidagur og ég þrái ekkert heitar en Salkjöt og baunir. Helst á S1, hjá ömmu og afa. Best að gleyma því bara strax og hugsa um rúgbrauð með makríl í staðinn, danskur matur sýgur!

19.2.07

Tölvulaus Froskur

Ég á afmæli eftir minna en mánud. Verd eldgömul. Thess vegna finnst mér rétt ad ég bidji um eitthvad dýrt í afmælis gjöf.
Mig langar í svona kvikindi. Thví sæti gaurinn í apple búdinni sagdi ad hún væri fullkomin fyrir mig. Mér finnst thad líka.










Mamma og pabbi segja ad madur eigi ad færa rök fyrir máli sínu, thannig ad thad er best ad ég geri thad. Ef ad ég fæ ekki thessa tölvu, thá get ég thví midur ekki haft samband vid umheimin, lesid blogg og verid á msn. Og heldur ekki lært. Svo ef thid viljid halda áfram ad heyra í mér og lesa thessa sídu til dæmis, thá er um ad gera ad rífa upp veskid og slæsa í eitt hvítt kvikindi fyrir froskinn.
Tölvan mín lést í gær, langt fyrir aldur fram, enda PC.

18.2.07

The Sukkerfrees

Það eru ekki allir sem eru heima og borða brauð með súkkulaði klukkan 3 á djammnóttu. En súkkulaði påleggið frá thoms svíkur fáa.
Auglýsingarnar frá Thoms eru reyndar soldið tristar, ef að maður er Íslendingur. En ég er búin að vera of lengi í Danmörku þannig að mér finnst þær alveg drepfyndnar. Komst að því í kvöld að ég hef eytt of miklum tíma af ævinni hérna úti. Er fljótari að skrifa sms á dönsku en Íslensku. Það tekur mig korter að skrifa "góðan daginn" á íslensku. Geri aðrir betur.
Finnum okkar innri dana og horfum á þessar líka skemmtilegu sjónvarpsauglýsingar.

Versgú:


I lommen på dig

Drops

Tyggegummi

17.2.07

Í gær var púki í mér og ég skellti mér á djammið, eftir svefnlausa nótt og 12 tíma ferðalag frá Íslandi til nýju Reykjavíkur hérna í Danaveldi. Það var gaman á djamminu og allt það, en klukkan 01.30 gat ég ekki meira og hringdi í Joð Pé og grátbað hann að ná í mig svo ég kæmist heim að sofa. Djöfull var gott að komast heim og uppí rúm.
Núna sit ég niðrí mosa, með ársbirgðr af brjóstamjólk í pela, 8 kílóa ungabarn og eina pregelgju. Þorrablót Íslendingafélagsins í Horsens er nefninlega í kvöld, og líka Kim Larsen tónleikar í Forum Horsens þannig að ég var bókuð í þetta pössunargigg í desember, þegar að ungabarnið sem ég er að passa var varla fætt. En það er fínt, þau eru voða góð og sæt, greyin :)
Langar samt að sjá Larsen. En hann kemur aftur, hann er fastagestur í Forum.

Uhh, tilgangslaust blogg, ég ætti kannski bara að byrja að skrifa dagbók?

15.2.07

Var vakin í morgun og vinsamlegast beðin um að fara út og keyra nýja bílinn hans pabba. Bílinn sem er búinn að vera í eigu hans í þrjá mánuði og ég hef varla fengið að vera farþegi í. Þegar ég á í hlut þá er bíllinn bara notaður "spari" eins og til að keyra mig útá flugvöll eftir Íslandsdvalir.
Í morgun fór ég út á kagganum með Sölkuna í baksætinu. Mér leið eins og lítilli pabbastelpu í versló.
En djöfull var gott að keyra bíldrusluna.
Örvænting.
Hvað er nú það?

Mig langar ekki neitt í blóm hvort eð er!!

14.2.07

Here i go again on my own..


Prísa mig sæla að búa ekki í Bandaríkjunum í dag. Leiðinlegasti dagur ársins er einmitt haldinn hátíðlegur í dag, með sykurplómum, candyfloss og hvítum dúfum. Já börnin góð, það er kominn Valentínusardagur. Dagurinn sem fær mig til þess að kasta upp eins og kona sem er á áttundu viku meðgöngu. Dagurinn sem fær Amor sjálfann til þess að vilja hengja sig.
Kaninn er ruglaður, en voðalega hlýtur það að hafa verið veruleika firrt manneskja sem ákvað að hafa einn dag í febrúar til að halda uppá ástina. Í minni sveit er talað um að ef að maður er ástfanginn þá er það eitthvað sem að manni þykir vert að halda uppá á hverjum degi. En ég er kannski bara gamaldags?
Fyrir mér er Valentínusardagurinn bara eitthvað til að minna einhleypa fólkið á að það er einhleypt. Allavega upplifir maður það þannig í US and A. Bara svona dagur sem er skylda að vera þunglyndur.
Ég er búin að undirbúa mig fyrir þetta. Deginum verður eytt uppí sófa, með kíló af ostapoppi, Titanic og kleenex.

13.2.07

Kvöldstund á Íslandi - Hent útaf Prikinu

Þegar að ég kem til Íslands þá þykir mér ótrúlega skemmtilegt að setjast inná gott kaffihús, með góðum vinkonum, slúðra og drekka kaffi. Oft er eini tíminn sem að við finnum til að hittast á kvöldin, eftir að ég er búin með heimsóknarkvóta dagsins og þær heimavinnuna.
Um ellefu leytið í kvöld ákváðum við Linda og Helga að henda okkur inná kaffihús og spjalla aðeins. Í þetta skiptið var Prikið fyrir valinu. Við löbbuðum inn, afgreiðslustúlkan brosti, bauð gott kvöld og við plöntuðum okkur í sæti á efri hæðinni. Sitjum þar í nokkrar mínútur og förum svo niður að ná í kaffi."Eruð þið með skilríki" spyr afgreiðslustúlkan. Ég rétti henni ökuskírteinið mitt, enda er ég orðin sjálfráða og 11 mánuðum betur. "Það er tuttugu ára aldurstakmark eftir klukkan níu á kvöldin" sagði afgreiðslustúlkan. Við urðum nú frekar hissa og sögðumst nú ekki ætla að fá neitt sterkara en kaffi, en það skipti víst ekki máli. Við máttum gjöra svo vel að yfirgefa staðinn. Strax.

Hvenær fullorðin?

Sjálfræðisaldurinn á Íslandi er 18 ár. Ekki erfitt að skilja þetta orð, maður ræður sér sjálfur. En þannig er það reyndar ekki alveg.
Þegar að maður verður 18 ára má maður taka lán, fá sér vísa, kaupa sígarettur, gifta sig og spila í spilakössum. Maður ræður sjálfur hvenær maður kemur inn á kvöldin og þarf ekki lengur að fylgja útivistareglunum. Skítt með það að maður megi ekki kaupa áfengi og megi ekki fara inná skemmtistaði. Skiptir mig engu máli.
Samkvæmt lögum mátti ég byrja að stunda kynlíf þegar að ég var 14 ára gömul, í mínu tilfelli var það mánuði áður en ég var tekin í fullorðinna manna tölu.
15 ára mátti dæma mig í fangelsi.
17 ára mátti barnið ég fara útí umferðina á stórhættulegu tæki og leggja líf mitt og annara í stórhættu.
18 ára má ég borða nammi á þriðjudögum og vaka til 5 á næturnar, ef ég vil. Má gifta mig en ekki drekka kampavín. Ég má kjósa.
18 ára og 11 mánaða má ég ekki sitja á kaffihúsi og drekka latte, en hey, ég má kjósa hverjir stjórna landinu.

12.2.07

Dagur 1 á Íslandi

Barkabólga og dýrar kjúklingabringur.

A slice of Iceland..

..stóð á matarbakkanum sem ég fékk í flugvélinni. Þegar að ég opnaði dýrðina blasti við mér Prins Póló í mjög svo pólskum umbúðum og Gordon blue. Íslenskt já, takk.
Ég át þetta ekki. Enda vissi ég að það væri hægt að treysta á pabba. Í Kórsölum beið mín íslensk dómínós flatbaka og íslenskt kók..

Galli við að koma heim til Íslands á nóttunni. Salka og Katla eru sofandi. Þóra reyndar líka, en efast um að hún sé búin að stækka og þroskast mikið síðan ég sá hana síðast.

Núna ætla ég að skríða í neðri kojuna til Sölku og lúlla þar í nótt.

P.S. Ég verð á landinu fram á föstudag. Þið náið í mig í gamla númerinu mínu. 848-5313



11.2.07

Ferðalag

Ég er farin í ferðalag.
Fyrsti áfangastaður er Kaupmannahöfn.
Hvert ferðinni er heitið eftir það er ekki alveg víst.
Eyja í norður Atlantshafi kemur jafnvel til greina.

Blæjó

8.2.07

Mette Thomsen: "Plastic"

Barbie og Ken elsker på tæppet foran pejsen, det er et Kelimtæppe, og selv om det er varmt der, så sveder de slet ikke. Pludselig går Barbies arm af, og den ruller hen ad gulvet, hen foran Aalto-vasen med plastictulipaner med en lille lyspære i hver, men det gør ikke noget, den sætter vi bare på igen. Og de behøver ikke at bruge kondom, for de har ikke aids, og de kan heller ikke få børn.
Faktisk har de slet ikke nogen kønsorganer, Barbie og Ken, hverken hule eller bule, så det er en helt speciel form for sex, steril og uden kropskontakt overhovedet, men det gør heller ikke noget.
For de er så pæne, og lyset falder lige præcis, som det skal på deres kroppe, så der ikke dannes nogle uhyggelige skygger.

5.2.07

Ég er lifandi.
Meira að segja alveg sprell.















froggiebergmann.is þakkar Silvíu Nótt fyrir lánið á svipnum.
Og ég vil ekki heyra neinn brandara um gleraugun mín, þau eru kúl, þau eru Dolce

22.1.07

Þá er að koma að því sem að foreldrar mínir hafa hlakkað til síðan ég leit dagsins ljós fyrir nokkrum árum síðan. Litla barnið ég er að fara að flytja að heiman. Reyndar ekki alveg á morgun, en þetta er allt í fæðingu. Undirbúningstímabilið er að byrja og hef ég nú þegar eldað kvöldmat, boðið vinkonum mínum í matarboð, sett í þvottavélar, tekið úr uppþvottavél og hvað eina. Það sem er líka gert á undirbúningstímabilinu er að sanka að sér allskonar drasli í búið. Fyrsti hluturinn kom reyndar þegar að ég var 4 ára á einhverri plastboxa kynningu með móður minni og fékk hveitiskóflu. Síðan þá hefur eitt og annað safnast í búið. Ég á allavega nóg af glösum, þar sem að ég hef lagt það í vana minn að stela flottu bjórglösunum á Koks síðan einhvern tíman á síðasta ári. Og einhverntíman fyllti ég glasaskápinn í Kórsölum með ferlega ljótum glösum með myndum af svínum á. Endurspeglar heimilisfólkið. Þess má geta að þessi glös voru ekki keypt því það vantaði glös, heldur vegna þess að ég nennti ekki að vaska upp.
Áðan kíkti ég svo aðeins í bæinn til að kíkja á útsölurnar. Fannst ég vera orðin smá klikkuð þegar að ég var búin að fara í 4 búðir til að leita af Rosendahl hvítlauskpressu eins og amma og afi eiga.

20.1.07

Uppáhaldslagið mitt í dag.

sexy beast - Toggi og Drengjakórinn.


I know
you don't like to be used
you're not a toy
but let's face it you're such a pretty boy

and when you walk, you hardly touch the ground
and all the girls follow you around
and all the boys really want to break you down

Ooooooohhhhhh
Lalalalalalalalalalalalalalalalalalalalalalala

I know
That beauty leaves a bruise
I feel your pain
all pretty boys start crying when it rains

and boy, your voice has the sweetest sound
like all the girls, I follow you around
and all the boys really want to break you down

Ooooooohhhhhh
Lalalalalalalalalalalalalalalalalalalalalalala

You know, you've got my heart in your hands
you know, I simply adore your black leather pants
you make me weak in the knees (hell yeah, I love it!)
and I'm begging you please (please love me)

Ooooooohhhhhh
Lalalalalalalalalalalalalalalalalalalalalalala

17.1.07

Al-heilsa 2007

Nú heilsa 2007 er komin á fullt skrið, fannst ég þurfa að sinna skyldum mínum sem meðlimur í Kórsalagenginu og taka þátt í heilsuátaki, óbeint. Geri þetta eiginlega mín vegna samt, því að ég veit að þegar að ég kem til íslands næst, þá má ekki borða sælgæti eða drekka gos í sama sveitarfélagi og faðir minn er staddur í á þeirri stundu. Ef einhver vogar sér að stinga uppí sig einhverju sem er ekki lífrænt ræktað og með spelti í þegar hann er í heilsuátaki verður hann önugur og jafnvel fer í fýlu. Svo þetta er best fyrir mig að stunda heilbrigt líferni þangað til að heilsuátakið í Kórsölum gengur yfir. Bara svona uppá fjölskylduandann.
Nú þangað til að það gerist þá hef ég tamið mér betri og bættan lífstíl. Nú er hér stundaðir hnefaleikar af kappi, þar svitnar maður þangað til að allur vökvi er búinn í líkamanum. Svo eru hlaupin langhlaup í tíma og ótíma, en það erum við Fróði sem að stundum það hérna seint á kvöldin þegar að það sér okkur örugglega enginn. Þess á milli eru ávextir og grænmeti innbyrgt í óhóflega miklu magni ásamt vítamínum og nokkrum lítrum af vatni á dag. Maður hefði haldið að maður myndi sofa betur eftir að heilbrigði lífstíllinn var tekinn upp, en svo er ekki. Manni kemur varla dúr á auga, enda er pissublaðran undir ótrúlega miklu álagi með allt þetta vatn í kropnum. Þetta þarf að fara út og það verður að sjálfsögðu að vera á meðan maður sefur, eða gerir tilraun til þess.
Nú líkamleg heilsa er ekki það eina sem að þarf að rækta heldur er það blessaða geðheilsan líka. Til þess að gera það hef ég reynt að koma fjármálunum svona á nokkurnvegin réttan kjöl. Borga gamlar skuldir og þess háttar. Finna aðferðir til að spara, eins og kaupa nýtt Wildcard, en þá fæ ég afslátt af lestarmiðum. Grófar brauðsneiðar með ógurlegri hollustu sem álegg, vatn í flösku, bananar, vínber og agúrkur hafa fengið að fljóta með í skólann, enda dýrt og óhollt að éta skólamatinn. Einnig hefur mér tekist að spara fleiri þúsundir á e-bay. Keypti nefninlega Gucci töskuna frægu á mun lægra verði en gengur og gerist. Á von á að fá hana í hendurnar eftir viku. Maður verður nú að verðlauna sig þegar að maður er í svona miklu átaki.
Áfengi hefur ekki komið inn fyrir mínar varir og hef ég ekki djammað síðan á gamlárskvöld. Gæti verið að maður kíki aðeins í bæinn annað kvöld og á föstudaginn, en þá verður maður keyrandi og með vatn í flösku.
Til þess að fullkomna heilbrigða lífernið hefur lestur bóka verið mikilvægur þáttur í daglega lífinu, nú er farið uppí rúm klukkan 22.30 og lesið smá í góðri bók. Svo eru ljósin slökkt klukkan 23.00 og Bubbi spilaður þangað til að maður svífur inní svefninn.

Svona hefur þetta gengið í 2 vikur núna. Ég spái því að ég endist fram á föstudag, þetta er nefninlega alltof langt, vanalega hef ég haldið út í 2 tíma í mesta lagi.

Eina sem er eftir af áramótaheitunum er að læra að elda, hvernig ég á að kenna sjálfri mér hver munurinn er á sleif og steikarpönnu er mér enn hulin ráðgáta. Hjálp, einhver?!

Danir og Tölvur

Í næstum 3 ár hef ég búið í Danmörku. Eða eiginlega bara 2 því að ég fékk ævintýraþrá í eitt ár og skrapp út að skoða heiminn. En eftir þennan tíma þá er maður búin að kynnast ýmsu hérna í Danaveldinu og líkar flest vel. Það ver vel hugsað um mann og kerfið hérna býður uppá það að skólafólk geti sinnt náminu án þess að hafa áhyggjur af því hvort þeir eigi fyrir mat þegar að búið er að borga reikninga, leigu, bækur og allt það sem þarf að borga. Danir eru rosalega almennilegt fólk, flestir taka manni mjög vel, þrátt fyrir að maður sé útlendingur og eru voða duglegir að skilja íslensku dönskuna.
Eitt og annað fer samt voðalega í taugarnar á mér við þessa annars yndislegu þjóð og það er þegar danir þykjast kunna á tölvur. Þeir eru nefninlega dáldið í fornaldarstílnum á sumum sviðum ennþá, en vilja ekki viðurkenna það. Jú, ágætt að það sé ekki nýjasta tækni við allt, ef að "gamla" aðferðin gengur vel. Fínt, það er í góðu lagi mín vegna. En almáttugur minn, þegar á að fara að rembast við nýjustu tæknina þá er það saga til næsta bæjar skal ég segja ykkur.
Núna var ég til dæmis að ljúka við 1 önnina núna á föstudaginn. Á mánudag mæti ég í skólann til þess að fara inná Elevplan-ið (Vefsíða sem menntaskólakrakkar í DK nota ti að skipuleggja sig, sækja stundaskrár og fá einkunnir) og sjá hvort að ég væri fallin í einhverju og til þess að ná í nýju stundarskrána með nýju fögunum. Nei liggur ekki bara allt heila draslið niðri og ekki sjéns að komast inná það vegna álags á vefnum. Það var þannig á mánudaginn og svo í gær. Þannig að við vissum ekki í hvaða tímum við áttum að vera, hvar við áttum að vera eða hvort við værum fallin og fengjum yfir höfuð að halda áfram á næsta stig. Ég komst inn seint í nótt, sá þá að ég hafði náð öllu (að sjálfsögðu) en að stundarskráin mín var í bölvuðu rugli. Ég var með tíma sem ég átti ekkert að vera í og á einhverjum A og B stigum, sem námið mitt hefur ekki einu sinni. Talaði við skólann klukkan 7 í morgun og þeir sögðu að það þyrfti að finna útúr þessu og ég gæti bara komið á skrifstofuna klukkan 9, þá væri rétta stundarskráin komin og ég gæti byrjað önnina. Mætti í skólann klukkan 9 og þá var eitthvað að tölvunum þar, þannig að enginn vissi hvar ég átti að vera, ég var skráð á nafnalista inní einhverjum efnahagstíma (A stig) hjá HHX útskriftarkrökkunum á international línunni, sem gæti ekki verið meira útí hróa hött. Ég var beðin um að afsaka þetta og sagt að það væri verið að vinna í að laga tölvukerfið svo þau yrðu búin að þessu klukkan 10, áður en að næsti tími ætti að byrja. Klukkan 10.15 var loksins búið að finna útúr þessu og ég komst loksins í Samfundsfag á réttri línu og réttu ári.
Þegar að kennarinn var búin að reyna 50 sinnum að segja nafnið mitt var okkur svo sagt að í dag ættum við að horfa á mynd með hinum tveim bekkjunum. Átti að sýna þessa blessuðu mynd via tölvu. Við tók 30 mín. bið eftir að kennararnir fyndu útúr hvernig ætti að tengja hátalarana. Endað með því að það var hringt í tölvudeildina. Inn kom rauðhærður maður með krullur, horfði á vélina og hljóðið kom á. Skal veðja að hann er Írskur þessi gæji, allavega ekki danskur...

12.1.07

Búið

Spikfeit nía!! Gekk fínt. Sofa. Núna. bæ