10.10.06

Ég held að ég ætti að fá nóbelsverðlaun fyrir leti.
Eða allavega fyrir það að nenna ekki neinu. Nenna ekki að læra, nenna ekki að fara út að hlaupa, nenna ekki að taka til, nenna ekki að elda mat. En gera þetta svo alveg tussu vel þegar að ég æði í verkið. (Oftast, allavega stundum)
Eldaði fyrir systikni mín á sunnudagskvöldið. Voða flókinn námsmannamat. Kjúklingaréttur með allskonar. Skammaðist mín smá þegar að systir mín (12 ára) sagði við móðurina að "Kristín væri nú ekkert svona ósjálfbjarga eins og þau hefðu haldið".
(Þess má geta að börnin átu eins og enginn væri morgundagurinn, meira að segja litla skrímslið.)

Ég þarf að eignast Sjálfshjálparbækur og Jamie Oliver.

9.10.06

Kominn tími á tuð.

Það var reið ung kona sem að mætti á æfingu í kvöld. Búin að vera rosalega vængbrotin,litil og móðursjúk eftir atburði og drama síðustu helgar, en allt í einu breyttist þetta bara í þvílíka reiði. Fór í einhvern ham þarna í "bútkampinu" mínu. Einhver auka orka sem að leystist úr læðingi og ég breyttist í villidýr þarna um tíma. Mjög gott, var líka búin á því eftir það, þar sem að það var eitthvað lítið innbyrgt af mat síðustu daga.
En allt komið í lag núna, eftir þessa æfingu. Læknaði líkama og sál.

Nú, ég og Lára skelltum okkur í bíó eftir æfingu. Ég meikaði ekki meira Uma Thurman/Meril Streep viðbjóð aftur, þannig að við skelltum okkur á World Trade Center myndina. Já, betur sleppt því. Hélt að ég væri aldeilis að fara að sjá góða ræmu, því þetta fjallar nú einu sinni um mjög merkilegann atburð. Nei, Amerískt tilfinningaklám gjörsamlega útí gegn. Tveir tímar af einhverju goddem "Tell Donna I love her" krappi. Bjóst við að ég myndi gráta voða mikið, því síðustu vikur er ég búin að grenja yfir ÖLLU sem ég sé í sjónvarpi. (Fór meira að segja að gráta yfir Go'aften Danmark hérna um daginn því að það var verið að sýna albinóabroddgölt) Ég grét á einum stað í þessari mynd. Það var í lokinn þegar að það var spítalasena. Mér fannst svo sorglegt hvað allar hjúkkurnar í Ameríku þurfa að vera í ógeðslega ljótum fötum.

Gangið hægt í gegnum gleðinnar dyr, börnin mín
- Bergmann er farin að sofa.

4.10.06

Hætt að dissa Bootcamp

Í dag fengum við Lára mjög sniðuga hugdettu, að okkur fannst. Eftir að hafa setið á kaffihúsi allan eftirmiðdaginn, slúðrað, étið og drukkið datt okkur í hug að fara og kíkja á boxklúbbinn hérna í bænum. Sem við gerðum.
Komum inn í svona típískan boxsal, svona eins og maður sér í bíó. Allt svona frekar sjabbí, en samt ákveðinn sjarmi. Stóðum þarna og sáum svo einn þann stærsta, sköllóttasta, tattúveraðasta mann sem að ég hef augum mínum litið. Hann rumdi eitthvað um hvað hann gæti nú gert fyrir okkur. Við mjálumuðum eitthvað um að við værum bara að kíkja og sjá hvort það væri eitthvað sniðugt í boði fyrir okkur. Hann rumdi eitthvað um að það væri "boxerobikk" eftir einn og hálfan tíma og við gætum bara komið og fengið frían prufutíma ef við vildum. Sagði að þetta væri nú bara svona hopp og skopp, armbeygjur og magaæfingar. Bara svona kellingatími, eins og hann orðaði það svo smekklega. Þar sem að hvorug okkar gat komið með afsökun fyrir að mæta ekki, þá ákváðum við að við skildum bara drífa okkur. Sem við gerðum.
Mættum klukkan 18.15 til að geta nú græjað okkur fyrir leikfimina. Löbbuðum í gegnum salinn til að komast í búningsklefann, mikill sviti í loftinu sem við Ojuðum yfir. Hættum því fljótt þegar að við löbbuðum aðeins lengra þar sem að nokkrir strákar voru að æfa, já berir að ofan og eitthvað svo eins og karlmenn (Sem ég hef bara ekki séð síðan í fór frá íslandi þann 8 ágúst). Jæja fórum inní búningsklefan og ég hélt, án djóks að ég væri kominn í karlaklefann. Þarna inni var sama sjón, nema þetta voru víst konur, vaxnar eins og karlmenn. Mér leist nú ekki alveg á þetta, en lét mig hafa það. Nú svo byrjaði ballið. Kellingingatíminn var nú bara hreinasta helvíti. Ég var byrjuð að grenja í upphituninni takk fyrir. Og get sagt ykkur það að þetta var ekki bara eitthvað því að ég er í svo lélegu formi. Nei, konukallarnir öskruðu í armbeygjunum og hvað þessar æfingar nú heita. Svo hjálpaði ekki að maður var með annan svona stórann, massaðann, tattúveraðann gæja (var reyndar með hár, á hausnum allavega) standandi yfir sér öskrandi á mann að maður skildi bara drullast til að klára þetta á "full fart" annars gæti maður bara fokkast heim til sín!
Svo boxuðum við líka. Í svona púða. Guð minn góður hvað ég fílaði það. ímyndaði mér að púðinn væri sá stóri, tattúveraði og varð ýkt reið og brjáluð. Þvílík útrás. En það var líka drulluerfitt, fann ekki fyrir fótum og höndum eftir boxhálftímann. Samtals var þetta einn og hálfur tími af keyrslu, eða pynntingu eins og ég kýs að kalla það.
Ég hef nú prufað margt um dagana, en þetta var ekki neitt í líkingu við, spinning, bodypump eða hlaup. Sem ég sjamma alveg eins og ekkert sé, belive it or not.
Nú sit ég hér, get varla pikkað því að ég titra í öllum líkamanum af áreynslu, hugsa að ég geti því miður ekki mætt í skólann á morgun, alla vega hjóla ekki, það er nokkuð ljóst.
Ætla á morgun að fara og skrá mig sem meðlim í boxklúbbinn og mæta samviskusamlega í þessa tíma, aftur og aftur og aftur. Finnst þetta geggjað!!

Bergmann Miljón dollarabarnið.

Ein yfirlýsing í lokinn, bara fyrir Lindu og Helgu.

"Ég ætla aldrei á klósettið aftur með annari manneskju, sérstaklega ekki í miðjum tíma."

3.10.06

Ég vil pásu núna!

1.10.06


Tillykke með afmælið elsku Lindan mín.

Ég er ekkert í mikilli fílu þó að ég hafi misst af partý-i aldarinnar.

Hafðu það gott, sjáumst eftir 15 daga ca.







Kannski ekki okkar besta móment, en heldur ekki það versta ;)

29.9.06

Heyrt í skólanum...

Kenneth: Jenne kaffekanne
Janne: Jeg er sku da ikke kaffekanne
Omar: Jenne Yogurt
Janne: Ej, det er jeg altså ikke
Kenneth: jo du er
Janne: NEJ!

Omar: Hello, Kristín
Kristín: Ja
Omar: Spiser i så is på Island?

Ég hef eitthvað misskilið, hélt að ég væri í Handelsskole en ekki Vuggestue.
Þroskað lið.

Danir eru ruglaðir. Var að fá stundarskrána mína fyrir viku 40,41,42,43. Segir mér ekki rass. Veit ekki hvenær þessar vikur eru.
Nú föstudaginn í viku 40 er dagur sem að allur skólinn fær að velja sér einn hóp til að vera í allan daginn, m.a. spila fótbolta, handbolta blómabindingu eða botsía. Frá átta til tólf verðum við í þessu. Svo klukkan tólf er reyndar barinn settur upp og fyllerí í skólanum og vetrarfríinu startað.
Föstudaginn eftir vetrarfríið erum við svo að fara í hjólatúr. 17 kílómetra út fyrir bæinn og aftur til baka. HALLO - Haldiði að mér finnist þetta stuð?
Ég var eitthvað að tjá mig við kennarann að þetta væri nú eiginlega dáldið barnalegt. Nei, þetta verður svo hyggeligt. Hyggeligt er svar við öllu hjá þessu liði. Pirrandi, þar sem ég sé ekki mikið huggulegt við það að hjóla með öllum á fyrsta ári 34 kílómetra, allir sveittir og viðbjóðslegir. Ef einhver sér hyggið í þessu, látið mig vita.

Þar sem að ég orka ekki meira svona danskt kjaftæði í dag, þá tók ég stóra ákvörðun. Ekki djamm í kvöld. Ætlaði á L.O.C. tónleika, ákvað að vera heima og slaka á. En nei, eina sem er í sjónvarpinu er SEXSKOLEN!? Danskt fólk að geraða. Újé...

28.9.06

Hef ég einhverntíman sagt ykkur hvað mér finnst móðir mín í föðurætt ógeðslega fyndin?

Allavega, hún er massa fyndin...

Tjékk it: www.sigmarg.blogspot.com

Gó Þóra!


Svo má til gamans geta að ég kom sá og sigraði, þegar að ég mætti í skólann í morgun. (Þrátt fyrir að vera með púffý augu, úfið hár og mjög ósofin) Mér tókst nefninlega að fatta þetta helvíti sem ég var að slást við til klukkan 3 í nótt. Með Ipodinn í eyrunum og kaffi á kanntinum þá massaði ég þetta, sat í tvo tíma og leysti fullt af verkefnum og reiknaði hellings. Ég er náttúrulega bara djíníus.
Nú er það bara markaðsfræðin og svo er komin helgi áður en maður veit af.
Jibbí skibbí!

27.9.06

Klukkan er hálf tvö um nótt.
Ég er ekki farin að sofa ennþá.
Ekki það að ég sé eitthvað þekkt fyrir að vera farin uppí rúm á skynsamlegum tíma, en ég er heldur ekki þekkt fyrir að vera að lesa Rekstrarhagfræði fram á nótt.
Langar að skæla núna, er búin að vera að lesa sama kaflann í tvo tíma og skil ekkert í þessu. Þarf að mæta í tímann á morgun og væla í kennaranum að útskýra þetta fyrir mér. En hann nefninlega fer yfir þetta á ljóshraða, mér finnst allir vera að kvarta yfir því hvað þetta sé erfitt og hann fari hratt yfir þetta og blabla. Engar glósur, engar útskýringar, bara keyrsla. Verkefni, verkefni, verkefni. Veit ekki hvort að það sé verið að æfa okkur í að skilja fagið eða bara hversu hratt við getum gert verkefnin.
Bara tveir tímar af Rekstrarhagfræði á morgun. Er búin með markaðsfræðiverkefnið í ensku þannig að ég slepp við tvo heila klukkutíma af ensku, búin í skólanum klukkan 10.05. Æði. Þá þarf ég að vera lengur í skólanum til að gera markaðsfræðiverkefni, á dönsku. Sem á að framleggja á föstudag. Reyndar skemmtilegt verkefni, miklar pælingar í svona einhverju sem ég nenni að pæla í.
Ahhhh verð að fara að soooofa!!!

Froggie Bergmann er farin að gráta sig í svefn.

26.9.06


Nú sakna ég aldeilis vinkvenna minna, þeirra Kötlu og Ronju. Veit að þær eru yfir sig spenntar fyrir því að ég láti sjá mig á klakanum. Ekki eru þið hin að rifna úr spenningi, svo ég kem bara til Íslands og Ignora alla nema Kötlu og Ronju.

Við saman í sólbaði í sumar...

25.9.06

Are you ready Iceland?

Eg thjaist af svo miklum valkvida ad eg get ekki gert markadsfrædiverkefnid sem ad eg a ad vera ad gera nuna. Reyndar er eg eiginlega buin med thad thvi ad thetta er a ensku. Eg er svo dugleg.

Valkvidi dagsins: Vetrarfriid er ad ad dukka upp handan vid hornid. 13-23 oktober. Helgina 12-15 okt er eg reyndar i sma djobbi. En 16-23 okt er bara fri hja mer. Sem thydir thad ad ef ad eg fer til Islands, tha næ eg Airwaves ef ad eg timi ad borga milljon fyrir thad thad er ad segja. Næ ad hitta alla og komast i annad umhverfi og svona.
Hitt er ad thessi vika herna i DK er su besta sem ad er allt arid. Magnad helviti. Tvhiverdur ekki lyst med ordum.

Er Island til i ad fa stelpuna a klakann??

Orlog min eru i ykkar hondum...Vote now!

24.9.06

Systur mínar eru farnar að vera ansi kræfar á fataskápinn minn. Núna til dæmis eru þær á leið í afmæli, önnur í buxum af mér (sem eru ekki nema 5 nr of stórar á hana. Toff) og hin í skóm af mér. Svo heimta þær að nota sléttujárnið mitt, sjónvarpið mitt, geisladiskana mína, skartgripina mína og auðvitað misstu þær lappirnar og strætó hætti að ganga þegar að ég fékk bílpróf.
Magnið af dóti sem ég fæ frá þeim; Ipodinn fæ ég stundum lánaðann þegar að ég fer út með hundinn OKKAR, D&G belti sem önnur á hef ég fengið einu sinni, í nótt svaf ég í bol af systir minni, en hún var líka í AC Horsens bolnum mínum, skrúfblýantur og strokleður.
Af hverju stel ég ekki fötunum þeirra? Því þau eru ekki nógu töff. Sem er einmitt af hverju þær taka mín föt.
Mjög fegin að Katla og Salka séu enn svona litlar. Þó að Þóra sé mjög kræf á sokkana mína.
Ok, gleymið færslunni hérna á undan.
2 sek eftir að ég var búin að ýta á "publish post" þá fékk ég símtal. Á hinum enda línunar var spurt "ertu ekki að koma?" Þá var auðvitað partý í hvíta húsinu og ég vissi ekkert af því. En hennti mér í pils, aðra hæla, hrissti faxið, setti Cult í poka og keyrði í hinn enda bæjarins.
Þar fann ég meðal annars fólk sem að ég talaði dönsku við, fann svo út að þau voru Íslensk, ætlaði að tala íslensku en fékk svar á dönsku. Já, Krakkar sem kunnu ekki Íslensku eftir að hafa búið hér í 4 ár. HALLÓ? Hálf-fullorðið fólk sem að talar ekki sitt eigið tungumál.
Jæja, ég sat og þambaði Cult þar til að ég sá stjörnur og koffein magn líkamans var orðið óbærilega mikið, þá dróg ég liðið í bæinn. Fólk þorði ekki með mér í bílinn því að það hélt ég væri full. Sem ég var jo ekki.
Mættum í bæinn, ég blikkaði alla sem að ég gat hugsanlega blikkað og kom mér inná staði þar sem að ég átti ekkert að vera. Gott að vera vinkona dyravarðanna.
Mikið stuð. Dansað og malað. Kíkt á "kremfressin" eða stelpustrákana.
Drakk Cult, var í Friis og Co frá toppi til táar, (einhver sem vill kannast við þetta tvennt?) Stúderaði hversu mikið meik væri hægt að spassla framan í sig, hversu mikið af hárgeli/vaxi væri hægt að hafa á hálfum fermetra, hversu mikið silicon væri hægt að hafa í einu brjósti án þess að það myndi springa og hvernig maður getur orðið svona appelsínugulur og aflitaður...
Já gott fólk í nótt var ég á Pravda Danmerkur. SKÁL.

23.9.06

Konulíf

Ómæ.
Vaknaði klukkan 10.30 í morgun, þykk þrátt fyrir djamm kvöldið áður. Tók til, náði í Gumma&Kristínu á lestarstöðina, fór í bakaríið í spandexinu svo allir myndu nú örugglega vera með það á hreinu að ég hefði verið búin að skokka 5 km fyrr um morguninn.
Átum, kjöftuðum, héngum í sófanum, ég var pínd, bitin, klóruð og kitluð af ástkæra (móður)bróðir mínum.
Lagði mig. Vaknaði, fór í sturtu og blés hárið fyrir matinn. Borðaði mat með 5 settum af hnífapörum og með servíettu í kjöltunni. Fór með unga í bíó, át haribo.
Nú er mér illt í maganum, með maskara, gloss, blásið og sléttað hár í mjög dýrum stígvélum, klukkan er 23.44 á laugardagskvöldi og ég er ekki búin að opna bjór. Það sem meira er þá sit ég fyrir framan tölvuna og nenni ekki einu sinni að kíkja á SMS-ið sem ég var að fá.
Líður illa.
Ég er að verða kona!!!!!!

-Bergmann

22.9.06

Ohh, ég nenni ekki að blogga á ykkur.
áðan sjoppaði ég þangað til ég droppaði.
Keypti bara lífsnauðsynlega hluti eins og vanalega. Rótaði á útsöluslám í H&M ótrúlegt en satt. Gerði nokkuð góð kaup verð ég að segja, nærbuxur á 20kr, hlíraboli á 30kr og svona hitt og þetta. Svo var ég búin að vera svo hagsýn, allir hlutirnir sem ég keypti í H&M eru hlutir sem að eru mjög praktískir nefninlega, þá fór ég í Friis og Co og kaupti stígvél fyrir aleiguna. Ég og Afgreiðslukonan vorum báðar að réttlæta þessi stígvélakaup fyrir mér. Að þau pössuðu nú við allt, buxur, gallabuxur, pils og kjóla. Voða gott að labba í þeim því að hællinn er ekki of hár og blabla. Endaði með að ég straujaði kortið.
Nú þarf ég bara að æfa mig að labba á þeim og líka æfa mig að melta loft því að það eru engir peningar til að kaupa mat út mánuðinn.

Gleðilegt djamm.

Bergmann Out

16.9.06

Tár, bros og takkaskór

Fór á Aðalfund Íslendingafélagsins áðan.
Tróð mér ekki í neinar nefndir, kaus bara í stjórn og rétti upp hendi þegar að mér fannst það viðeigandi. Tróð mér og annari í fótboltalið kallana. Sé til hvort ég nenni að mæta svo, sagðist ætla að keppa á klakamótinu og allt, því að þetta væri bara eitt stórt helvítis pulsupartý. Sjáum til hvort að ég mæti á æfinguna á þriðjudag.
Á einhver legghlífar og takkaskó?

Byrja íþróttaferil minn á því að fara á djamm í kvöld. Íslendingaball og læti.

Rock on dudes!

15.9.06

Veiii!!!

Eg var spurd um hvort eg væri uppalin i Danmorku....!

Tala kannski ekki eins og spassi eftir allt???

14.9.06

Ofurskipulogdu danirnir eru svo miklir kjanar.
Af hverju i fjandanum er eg til dæmis med tvær stundaskrar fyrir næstu 3 vikur? (onnur stundaskrain min sidan eg byrjadi)
Adalstundaskrain segir ad eg eigi ad mæta klukkan 10.00 a manudogum. En hin segir ad eg eigi ad mæta klukkan 8.00 Semsagt adalstundaskrain segir ad eg se med eydu einhversstadar, eigi ad mæta seinna eda buin fyrr. tha verdur madur alltaf ad kikja a hina stundaskrana til ad sja ef ad madur eigi kannski bara ad vera i tima a thessum stodum. Their geta ekki sett bara thessar tvær stundaskrar saman, nei thad er ekki hægt.
Nu eftir 3 vikur fæ eg svo nyja stundaskra og thad verdur spennandi ad heyra hvernig programmid verdur tha. Meeeen hvad eg hata thetta ad thad se ekki bara ein stundaskra fyrir hverja onn, ekki 3 timabil og 2 stundaskrar i gangi a sama tima. Thad er natturulega ekki nogu erfitt ad muna i hvada fogum madur er hvada dag, i hvada stofu thad er, a hvada hæd, innum hvada inngang er best a fara til ad komst ad stofunni, hvada krokkum madur er med og allt thetta. Nei best ad flækja thetta nu og lata okkur gera thetta 3 a onn. Kulijo!

Jæja, 10 min i ad ensku timinn byrji. Hvar ætli stofa 601 se??

12.9.06

Svona er maður fyndin!

Þrjár íslenskar stelpur setjast við barinn á dönskum skemmtistað, spjalla, flissa kíkja eftir einhverju góðu.
Eftir 5 min kemur barþjónninn og spyr hvaðan þær séu. Íslandi segi ég. Hann hefur komið til Íslands og finnst það æðislega fallegt og blabla.
Stuttu seinna kemur strákur og spyr hvaðan þær séu. Svona gengur þetta og þessar píur nennar nú ekki að vera að eyða kvöldinu í að tala við einhverja lúða. Ákváðu að fyrst þær vöktu svona mikla athygli fyrir að vera frá öðru landi, þá skyldu þær nú skála bara við alla gæjana sem voru þarna.
Þeir voru til og spurja hvernig maður segi "Skál" á Íslensku. Þær svara og þeir reyna að segja það en það gegnur ekkert vel fyrst, en eftir langa og stranga kennslu tekst þeim að segja það. Allt kvöldið koma fleiri strákar og tala við þessar útlensku stelpur og þær kennar þeim að segja skál á íslensku.
Svo fengu þær nú nóg af því að sitja eins og heftaðar við barinn, kvöddu barþjóninn vin sinn og héldu út.
Á leiðinni í gegnum barinn heyrðist "SÍMASKRÁ!" og glösum lyft úr öllum áttum þegar að þær löbbuðu fram hjá.

Love this..!!

P.S. Vona bara að enginn þeirra þekkji aðra Íslendinga..muhaha

10.9.06

Að grípa gæsina meðan hún gefst?

Ég á mjög erfitt með að læra það.
Kunni það einu sinni og var íkt góð í því.
Núna uppá síðkastið er ég búin að horfa á eftir of mörgum gæsum fljúga burt.
Fucking gæsir!

En men hvað var gaman í gær, takk fyrir kvöldið allir.

(Sé til hvort að það sé hægt að þurka út það versta af því sem gerðistá djamminu um helgina og setja það innan í internetið án þess að amma fái hjataáfall fyrir aldur fram)

7.9.06

Ástin...

Spyr ekki um aldur, nöfn né skóstærð.
Heldur ekki peninga.
Nú er ég tildæmis ástfangin. Fangi ástarinnar. Mjög dramatískt.
Fjarband eins og er, kikna í hnjánum alltaf þegar ég sé mynd af henni.
Alltaf.
Verð að fá hana til mín, hún þarf að koma til mín og hjálpa mér í gegnum skólann.
Halda á bókunum, pennaveskinu, tyggjóinu, glossinu, gemsanum og hjólalásalyklinum fyrir mig, ég er ekki fær um að gera það ein, ekki með stíl allavega. Núverandi reyndar er sæmileg, en ekki nógu góð. Enda er hún bara Topshop, samt viss klassi yfir henni en engin Gucci eins og ástin.
Dusta rykið af vísanu og þakka fyrir að ég á ekki börn sem ég þarf að fóðra.

Hér er orginalið, þessi elska


















Ég hef ekki fundið feikið á netinu (kaupanlegt), þannig að ef einhver er að fara til fakemerkjalanda eins og Tyrklands, Búlgaríu eða kína þá má hinn sami kontakta mig og taka vísað mitt með (samt á það bara að notast til að kaupa þessa elsku).

Langaríana núna!