7.12.12

Kona fer með hund til læknis

Eins og báðir sem lesa bloggið mitt (halló Rut og mamma!) vita þá skrifaði ég um það þegar ég beraði brjóstin fyrir ólæknalegan lækni um daginn. Þið getið lesið um þá hræðilegu lífsreynslu hér. Svo virðist vera sem ég ætti bara að hætta að fara á staði þar sem læknar eru. Það er orðið ansi slæmt ef dýralæknar eru orðnir "off limits" líka.
Ég fór nefninlega með Hrapp í "þriggja ára skoðun"(förum með hann í skoðun, bólusetningu og ormahreinsun einu sinni á ári) til dýralæknis í vikunni, ætlaði ekki með hann strax en þar sem hann var farinn að klóra sér svo mikið í eyrun þá grunaði mig að hann væri að byrja að fá eyrnabólgu og ákvað að drífa mig með hann og láta tjékka á eyrunum í leiðinni. Það passaði, dýrið var byrjað að fá í eyrun svo það var ekki hægt að bólusetja hann þannig að læknirinn ákvað að geyma bólusetninguna í smá tíma og setja hann á sýklalyf við eyrnabólgunni og gefa honum frekar sterasprautu til að hjálpa eyrunum og losa um bólgurnar í eyrnagöngunum. Allt í góðu. Nema hvað að þarna erum við búin að vera frekar lengi inni hjá lækninum og Hrappur orðinn frekar kvekktur á þessu öllu saman enda búið að vesenast mikið með hann, kíkja ofaní eyrun á honum, þreyfa hann allan og gefa honum ormalyfin svo eitthvað sé nefnt og ofaná allt þá var hann nýkominn úr klippingu og sennilega alveg kominn með nóg af svona veseni :) Jæja læknirinn gerir sig líklega til að sprauta sterunum í hann, klípur í bakið á honum og þá kippist hundurinn eitthvað við þannig að hún missir takið á sprautunni sem hendist uppí loft og lendir að sjálfsögðu á bólakafi í ristinni á mér!!! Þetta var eins og atriði í Mr. Bean eða einhverju álíka, en ekki bara venjuleg heimsókn til dýralæknisins á þriðjudegi..!!
Nú ég lippast niður úr hlátri, greyið dýralæknirinn heldur að ég sé hágrenjandi og horfir á mig með stórum augum og ég skellihlægjandi ofnaí skoðunarborðið með sprautuna standandi reisnarlega uppúr ristinni á mér. Hún sér væntanlega loksins að ég er að hlægja og tekur sprautuna úr ristinni á mér og svo hlógum við bara saman að þessu þegar hún var búin að fullvissa mig um að hún hefði ekki verið búin að sprauta neinu í hundinn þannig að það ættu hvorki að vera sterar né hundablóð í fætinum á mér. Það blæddi náttúrulega eins og ég veit ekki hvað svo blóðið var komið í gegnum sokkana mína og skóna - mjög góður dagur til að vígja ljósu Converse skóna mína!
Þau á dýralæknastofunni voru náttúrulega miður sín yfir þessu og sögðu að þetta hefði aldrei komið fyrir áður og allt það. Þau báðu mig líka um að láta sig vita ef ske kynni að sárið myndi bólgna eða eitthvað slíkt en það hefur ekkert verið um það. Ég sagði líka við þau að ég myndi hringja ef ég færi að gelta óvenju mikið. Svona er ég fyndin og sniðug... ;)
Það endaði nú samt með að Hrappur fékk sprautuna og útskrifaðist frá lækninum í bili með sýklalyf og fleira "góss" í poka og reikning uppá 18.500 krónur - Já það er mjög dýrt að eiga dýr, sérstaklega ef þau veikjast ;)

Þetta með sprautuna er eitthvað sem kæmi bara fyrir mig. Svo mér datt í hug að þið hefðuð gaman af þessum hrakförum okkar Hrapps.

Nýklipptur hjá dýralækninum :)

3 ummæli:

Rut R. sagði...

þegar ég byrjaði að lesa, þá datt mér í hug að þú hefði berað þig fyrir dýralækninn :)

En shit, þetta er mjög mikið þú hahahha... vonandi er allt í góðu með ykkur hund og að nýju skóna!!!

Kristín Alma sagði...

Haha nei það var nú ekki svo gott. Ég hátta mig ekki ALLTAF þegar ég hitti lækna á förnum vegi sko, bara stundum.
En já allt í lagi með alla, mikið búið að hlægja af þessu :)

Unknown sagði...

Múhahahahahaha :)