Dásamleg helgi að baki. Fórum með góðum vinum í Borgarnes og gistum á Icelandair hótel Hamri sem var mjög gott, alltaf gott að fara á hótel :)
Við fórum í mjög skemmtilegan leik sem gekk útá að leysa hinar og þessar þrautir. Við stelpurnar áttum meðal annars að finna Bjössaróló og taka mynd af okkur þar og kaupa trúðaís fyrir fullorðinn einstakling í Hyrnunni. Strákarnir þurftu að mynda mannlegan pýramída með tveimur öðrum, ganga um í fötunum sínum á röngunni og fleira fyndið.
Fórum út að borða um kvöldið á Landnámsssetrið og mér fannst maturinn ÆÐI en fræðingurinn minn var ekki á sama máli en við erum líka eins og svart og hvítt. Ég allavega mæli með þessum stað, en ekki fræðingurinn.. ;)
 |
| Að gefa manni trúðaís í Hyrnunni :) |
 |
| Að finna Bjössaróló |
 |
| Allur hópurinn úti að borða! |
 |
Elsku litli Hrappurinn minn átti svo þriggja ára afmæli á laugardaginn. Hann eyddi afmælisdeginum í Ólafsvík hjá Ásdísi og fjölskyldu meðan við foreldrarnir höfum það huggulegt á hóteli og drukkum freyðivín :) |
2 ummæli:
var svoldið kalt þegar þið voruð úti að borða? :)
Haha nei, vorum að fara þegar við föttuðum að það ætti eftir að taka mynd ;)
Skrifa ummæli