Sjitt.
Ég var búin að ákveða að koma bara um páskana til Íslands. Hugsaði að það væri stutt í páskana, tæki skólann með einhverju í líkinu við tromp þangað til og fengi svo gott páskafrí. Var ákaflega góð hugmynd þangað til ég kíkti á dagatal..
Páskadagur er 13 apríl! Sem sagt í viku 16! Við erum sko í viku 2 núna, takk fyrir pent.
Greinilegt að það var ógeðslega góð ástæða fyrir aðskilnaðarkvíðanum mínum. Ó yndislega fjarsamband. Jæja, þýðir víst ekki að væla yfir þessu, maður valdi þetta sjálfur.
Próflestur gengur. Bara gengur. Það er betra en að hann gangi ekki neitt en kannski verra heldur en ef hann gengi vel. Ég sit á bókasafninu og er svona að hrökkva í gang. Ótrúlegt hvað ég er lengi að asnast í gang. Reyndar læri þá fram á nótt en mér er sama. Væri alveg til í að vera gaurinn sem sprettur upp úr bælinu við fyrsta hanagal og er mættur í skólann korteri seinna og er þar til 17.00.
Mig langar líka að vera þessi sem borðar alltaf hollan og góðan morgunmat, þessi sem getur ekki lifað án líkamsræktar, finnst súkkulaði ógeð og mætir í kirkju á sunnudögum. Og þessi sem á nóg af peningum.
Svona er lífið. Heyrði reyndar einhversstaðar að það tæki mann 21 dag að breyta svona venjum. Gera hlutinn í 21 dag og þá ætti maður að vera orðinn háður.. mesta sem ég get er ein vika...
4 ummæli:
14 vikur í kæró er svolítið langur tími! En ef þú venur þig á þessa hluti í 3 viku þá eru ekki nema 11 vikur í kæró, hugsaðu það þannig, síðan geturu eytt þessum 11 vikum í að vera í ræktinni og borða hollan morgunmat og svona... ekki alvitlaust:)
Helga Lovísa
haha já sæll Helga. Nei ertu að sjá það gerast?
Koddu í heimsókn mongó.
ég var í heimsókn fyrir 3 mánuðum! Helduru að ég skíti peningum eða??:D langar samt rosa, þarf að sjá bachelor íbúðina þína líka....
helga
Nei, komdu bara í Grundó og sjáðu hjónaíbúðina :)
Skrifa ummæli