Já, get nú aldeils sagt að ég hafi tekið framförum í dag. Náði að festa svefn að verða 7 í morgun og svaf til 10:45 í einum rykk. Ekki slæmt það. Fannst ég líka úthvíld þegar ég vaknaði.
Maður verður dáldið geðveikur á svona svefnleysi og held ég að það sé kominn tími til að láta athuga þetta eitthvað, svo það verður farin læknisferð í vikunni, ef ég fer ekki að ná að sofa, enda ekki alveg eðlilegt að tvítug og hraust stelpa hætti að sofa allt í einu! Kannski er þetta ellimerki..?
Verð allavega að vera búin að sofa eitthvað áður en ég kem til Íslands, því annars eru mikil hætta á að ég sofi bara útí eitt í sveitinni, svo rólegt þar.
Já, það er kannski rétt að benda dyggum lesendum frosksins á að jólarósin dó drottni sínum í vikunni. Enda ef eigandinn er eins og liðið lík, þá verður blómið það líka.
Hélt lífinu í blessuðu blóminu í rúma 3 mánuði! Núna get ég fengið mér gæludýr og prufað að halda lífinu í því, ef það gengur upp og ég skola ekki gullfiskabúrið með sápu þá er mér óhætt að fara að hrúga niður börnum. Það er víst reglan.
Svo vill pabbi líka verða afi fyrir fertugt þannig að það er eins gott að fara að haska sér!!!
Djóóók :)
Jæja, best að pilla sér, er að fara í matarboð til Stjána. Hann býr í Köben og þetta var ákveðið fyrir korteri að við myndum fara. Elska skyndiákvarðanir :)
8 ummæli:
stille og rolig nu........ ÉG vil verða amma eftir fertugt :/
Ömmur eru ekki spurðar !!
nú þá má spyrja mig....ég er ekki amma...
Verðandi ömmur eru ekki spurðar!!!!
Nafnlausir fá engu ráðið..!
já en verðandi afar ??? Á ekkert að spyrja þá ??
veit ekki til þess að ég hafi verið spurð hvort að ég vildi verða mamma!
kv. Brekamamma
HAHAHA!!
Arna mín, illa farið með þig!
Skrifa ummæli