Fjölskyldudagurinn verður haldinn í Egebjerghallen í Egebjergskolen. Boðið verður upp á skemmtilega dagskrá fyrir alla fjölskylduna. Fyrir yngstu börnin verður boðið upp á dagskrá í anda Latabæjar. Fyrir þau sem eru aðeins eldri verður boðið upp á Boot Camp.
Allri fjölskyldunni verður svo boðið í ekta sunnudags vöfflukaffi.
Við hvetjum alla til að koma saman þennan dag. Nýjir félagsmenn eru sérstaklega hvattir til að mæta.
Við bendum fólki á að hægt verður að greiða félagsgjöldin á staðnum.
Með kveðju,
Stjórnin
3 ummæli:
Ég bendi þér á að þetta er lúðalegasta færsla sem skrifuð hefur verið á Froskinn.
Enda skrifaði ég hana ekki. Þetta er bara Copy/Paste baby :)
Auðvita minnir stjórnarkonan á félagsgjöldin......gott hjá þér!!
Kveðjur frá ömmu Stínu
Skrifa ummæli