23.11.07

Íslendingar í Horsens og nágrenni!!

Sunnudaginn 25. nóvember nk. kl. 11:00 bjóðum við öllum Íslendingum í Horsens og nágrenni á fjölskyldudag.

Fjölskyldudagurinn verður haldinn í Egebjerghallen í Egebjergskolen. Boðið verður upp á skemmtilega dagskrá fyrir alla fjölskylduna. Fyrir yngstu börnin verður boðið upp á dagskrá í anda Latabæjar. Fyrir þau sem eru aðeins eldri verður boðið upp á Boot Camp.

Allri fjölskyldunni verður svo boðið í ekta sunnudags vöfflukaffi.

Við hvetjum alla til að koma saman þennan dag. Nýjir félagsmenn eru sérstaklega hvattir til að mæta.

Við bendum fólki á að hægt verður að greiða félagsgjöldin á staðnum.

Með kveðju,
Stjórnin

3 ummæli:

Brynja Björk sagði...

Ég bendi þér á að þetta er lúðalegasta færsla sem skrifuð hefur verið á Froskinn.

Kristín Alma sagði...

Enda skrifaði ég hana ekki. Þetta er bara Copy/Paste baby :)

Nafnlaus sagði...

Auðvita minnir stjórnarkonan á félagsgjöldin......gott hjá þér!!
Kveðjur frá ömmu Stínu