20.11.07

jól

Engar áhyggjur. Ég er bara í smá blogglægð. Kalla þetta að púlla pabba.
En svona að öllu gríni slepptu þá er hið árlega jólaþunglyndi að bresta á. Gaman að því. Alveg merkilegt hvað mér finnst þetta kjánalegur tími. Alltaf svo mikið stress og læti. Jújú, svosem fínt að fá jólafrí, smákökur, heitt kakó, pakka og góðan mat. En held að ég hafi aldrei verið þetta jólabarn, sem allir virðast vera. Man allavega ekki eftir þvi að hafa verið að tapa mér yfir pökkum eða jólasveinum þegar ég var krakki - eða hvað, mamma?

Núna er ég samt með valkvíða hvar ég á að vera á jólunum. Hver vill hafa mig?

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

HORSENS!!!

Nafnlaus sagði...

AMMA OG AFI 'A NESINU!!! Við myndum dekra við þig. Annars verðum við bara tvö í kotinu á aðfangadagskvöld. Kannski ekki mjög líflegt hehe.
Bestu kveðjur

Nafnlaus sagði...

Hvað áttu við, var þetta ekki komið á hreint?? Hjördís og Guðráð eru að búast við þér, eru meira segja búin að kaupa fullt af túmatsnakki fyrir þig...

Nafnlaus sagði...

já spurðu um fleiri valmöguleika þegar þú ert komin með valkvíða nú þegar :)
þú ert velkomin á Fjordsgade, við erum búin að æfa jólamatinn og allt

kv.
Brekamamma

Nafnlaus sagði...

PANT ÉG.....ÉG LOFA AÐ VERA STILLT OG PRÚÐ OG ÞAÐ VERÐUR BARA EINN HALLÆRISLEGUR JÓLALEIKUR :-)