Ég lifi á drasli. Það er staðreynd. Enda bryð ég vítamín eins og smartís, til þess að hafa orku svo ég komist nú í gegnum daginn (Vantar meiri heilsutvennu frá lýsi ef einhver er á leiðinni út til DK). Matseðillinn samanstendur þó aðalega af sælgæti og stöku serjós disk.
Fólkinu sem er með mér í stjórn íslendingafélagsins hérna í Horsens hefur mikinn áhuga á þessum lífstíl mínum og finnst dásamlegt þegar ég lýsi því yfir að eina "eldhústækið" sem ég á er ristavél, sem hefur tvisvar hlotið þann heiður að fá að rista brauð. Og gott ef ég afþýddi ekki flatköku einn daginn á grindinni sem er ofaná henni. (Flatkökur eru étnar í neyð, þegar það er ekki til mjólk á serjósið.)
Núna er amma örugglega komin að því að froðufella úr áhyggjum af mér (Þakka guði fyrir að amma Ragga les ekki þetta blogg, hún myndi líklega koma út með det samme og gefa mér Skagabrauð með rúllupylsu) en svo að ég eyði nú þessum óþarfa áhyggjum, þá er ég alveg í góðu standi. Mæti í ræktina þegar ég nenni (kannski ekkert að segja frá því að það eru liðnir 9 dagar síðan síðast) og fer daglega í gönguferðir. Svo þarf nú varla að taka það fram að ég er ekki að veslast upp og deyja, síður en svo, ég er bara í mjööööööög góðum holdum, og er engin breyting þar á. Þrátt fyrir að ég og Brynja höfum fundið út einu sinni að maður grenntist mest á að éta eingöngu nammi.
Nú, ég er komin svo langt út fyrir efnið að það hálfa væri fínt bara. Ég ætlaði bara að sýna fram á það að það bergmálar sko ekkert í ísskápnum mínum.
Ehm, já ástæða þess að það eru 2 kassar af kóki í ísskápnum mínum, er sú að síðustu helgi fór ég "ÍðÍ" á grensuna. Þar fær maður 3 kassa af gosi á rúmar 100 kr danskar. Kom heim með 3 kassa af kóki, stóra flösku af bacardi Razz, Hubba Bubba tyggjó í stórum stíl og einhverjar god damn karamellur, ekki spurja mig hvað ég var að pæla.
Bjórinn er síðan Svanhvít fyllibytta var í heimsókn í ágúst. Ég er ekki enn búin að klára hann eins og ég lofaði að ég myndi gera.
4 ummæli:
Vá, ég vil búa hjá þér !! :)
æjj, karen helga sagði etta þúst ;)
ÚFF!! Var orðin mjög áhyggjufull þegar ég sá myndina úr ísskápnum. Það er þó orka í kókinu.
Kveðjur frá ömmu Stínu
Þetta er bara mjög girnilegur ísskápur! Vantar reyndar eitthvað súkkulaðikyns, eins og köööööku!
Skrifa ummæli