Við, Arna og Íris ætlum að fara í Ikea og sjá hvort okkur batni ekki. Þó að ég til dæmis sé ekki búin að borða síðan á þriðjudaginn, svimi þegar ég stend upp og sé með hausverk. Eitthvað svipað á við um hinar tvær. En við tökum bara panodíl zapp og málið er dautt. Held að við verðum alveg fullfrískar þegar við komum til baka úr þessari svaðilför okkar.
Annars má geta þess að eftir rúmleguna er Arna orðin voða töffari.
Arna says:
okei sæki þig kl 12
Arna says:
be there or be square
Töffara skapurinn varði ekki lengi, því í næstu setningu kom þetta:
Arna says:
veistu um alvöru gardínubúð í horsens?
4 ummæli:
hei ég er samt ekkert kona þó að ég sé að leita af alvöru gardínubúð! ég er að fara að flytja í smábæ á Íslandi og þá þarf maður nauðsynlega góðar gardínur svo ég verði ekki tætt upp milli tannana á bæjarbúum...
Brekamamma
Hihi.........Arna mín....Stelton og gardínubúð..hvað næst. Verður terta með kaffinu á morgun ljúfan :-)
Fancy a cup of tea luv? Arna, þú verður nú líka að fara að drífa þig í að safna í alvöru testell - bjóða svo okkur Kristínu í blautu súkkulaðikökuna og tea luv....
sko það verður enginn terta með neinu kaffi!! og já Svanhvít á innkaupalistanum er tekannan frá Evu Solo og þá getur Stelton og Eva verið vinkonur.. annað mál er síðan að kunna að hella upp á þetta, það verð ég bara að læra þegar liðið mætir og ég get dregið niður gardínurnar þannig að hálfur bærinn er ekki að pæla hvaða aðkomufólk er í bænum ;)
Brekamamma
Skrifa ummæli