Ég er svo sjúk.
Það kom hingað ungur herramaður og hennti inn á tölvuna allri fyrstu seríu af Anna Pihl. Þetta var milli 00.00 - 01.00. Honum var svo nánast hennt út svo ég gæti farið að glápa. Núna er klukkan að slefa í 4 og ég búin með 3 þætti og langar hrottalega að kíkja aaaaðeins á næsta þátt. En ætla nú ekki að gera það. Hvílík sjálfstjórn sem ég hef.
Ég er skelfileg með þetta. Hver man ekki eftir því þegar Kristín Alma tók Grey's Anatomy session-ið hérna í vor. 3 seríur á einhverjum 10 dögum - þetta á ekki að vera hægt.
Skal veðja að eftir svona 35 tíma verð ég búin með seríuna. Get ekki hætt..
4 ummæli:
Þetta er fíkn, ert þú svona týpa sem getur ekki drukkið einn bjór heldur verðuru að klára kippuna, eða kassann ef því er að skipta hahaha..... Held samt að ég hafi tekið eins seríu af 24 í þremur pörtum ssssshhhhhhittttttttt!!!
jabb, þetta er fíkn, maður geeetur ekki slökkt á sjónvarpinu, við Linda tókum einmitt Heroes maraþon! serían var ekki lengi að klárast!
Engillinn minn... Þekki þetta, hef mjög gaman af Bold and beautiful..hehe. Ef við verðum ekki´"húkkt" á neinu verra, erum við í góðum málum. Bestu kveðjur frá ömmu Stínu
Iiiiss, eru ekki allir svona ? hehehe
Best í heimi var samt OC á nokkrum kvöldum, rautt M&M og tár niður kinnar, miss those great old times !
-Karen Helga
Skrifa ummæli