Vá hvað ég hlýt að vera að gera ykkur geðveik á að tala bara um veðrið.
Það er brjálað þrumuveður hérna og búið að vera í allt kvöld. Þegar eldingarnar koma lýsist allt upp hérna inni eins og ég sé með einhverja svakalega ljóskastara. Svo er að sjálfsögðu alveg kolvitlaus rigning líka. Ég þakka bara fyrir að vera uppá þriðju hæð núna, annars væri ég líklega drukknuð.
Annað fieldtrip með skólanum á morgun. Við erum að fara uppí Århus að skoða Handelshøjskolen þar. Svaka stuð. Förum á einhverja kynningu um hvaða framhaldsnám er í boði þarna, en eins og gefur að skilja er það Viðskiptafræði og þessháttar fög. Sem er reyndar alveg spennandi. Þó að ég ætli ekki í framhaldsnám í Danmörku. Allavega ekki eins og planið er núna. (Það heitir kannski ekki framhaldsnám á Ísl?)
Allavega, ég ætla svo að láta skilja mig eftir í Århus því að Svanhvít er einmitt í Danmörku núna og við ætlum að hittast og kaffihúsast aðeins og hugga okkur að hætti innfæddra ;)
Á föstudag er svo planið að kíkja aftur uppí Århus og þá á að djamma. Ætlum við að hitta Per Poulsen (sem var með okkur á Þjóðhátíð) og taka púlsinn á næturlífinu þarna uppfrá. Verður örugglega mikið grín og mikið gaman.
Á laugardaginn er svo háskólafólkið mitt væntanlegt til baka frá Íslandi. Skilst að það eigi að halda uppá það með tjútti. Middelalderfestival hérna í Horsens og ýmislegt að ske. Hver veit nema maður skelli sér bara á Crazy Daisy, enda ekki farið þangað síðan kvöldið sem við Íris fórum á hælaskóm á varðeld...good times :)
P.S. Nú þori ég ekki að fara í sjónmælingu. Ég er svo hrædd um að ég þurfi gleraugu. Hræðilett.
7 ummæli:
Svona svona núðlan mín.....það eru líka til Dolce&Gabbana lesgleraugu...meira að segja purple :-)
Hæ
Það er cool að hafa D&G brillur!!
Ef þú vilt vera cool eins og ég, þá ferðu í sjónmælingu!
gleraugu eru ekkert nema töff! Mér langar í svoleiðis!!!
Þú ert ekkert að lýsa Dk neitt ofsalega vel núna Kristín...manni verður bara kalt við að lesa þetta.
Annars vildi ég bara kvitta fyrir mig, það er alltaf gaman að lesa bloggið þitt þar sem þú ert mjög skemmtilegur penni.
Bkv, Ásta Emilíumamma
Hælask+oa djammið fræga það var allsvakalegt!!!!! Það var svaka stuð á lau en þú hvarfst bara!!!!!
Skrifa ummæli