Sjáiði hvað ég er sjúklega frumleg og artý á Myspace. Var að breyta til. Snjóhúsið var ekki alveg að gera sig og ég ákvað að skipta yfir í egg vegna þess að ég er nú einu sinni að vinna í þessu yndislega mötuneyti í Samskip. Love my job!!
Jájá, þetta er svona gaman af þessu.
Allt að verða klárt fyrir Þjóðhátíð 07. Ég er búin að vera óþolandi þessa vikuna, ekki búin að tala um annað og búin að blasta "Í brekkunni" 24/7. Miða við hversu mikið og hátt þessi diskur hefur verið spilaður í Kórsölum eru nágrannarnir eflaust líka bara komnir í Þjóðhátíðargírinn.
Faðir minn röflaði yfir þessari tónlist í nokkur skipti. Síðan tilkynnti hann mér að hann ætli að koma "með" til eyja. Segist vera að fara að vinna, en ég trúi því ekki. Gæti reyndar verið að hann sé bara svona hræddur um frumburðinn, rúllandi fullann í brekkunni..
Ég skreið um háaloftið hjá ömmu og afa í gær og fann til sjógalla (ekki nema 8 sett) og annan nauðsynlegan búnað. Síðan er bara að henda gúmmítúttunum og lopasokkunum í tösku og þá er maður klár. Móðir mín búin að fara í ríkið fyrir mig og þar með búin að garentera að ég verði þunn fram í september.
Ég gerðist voðalega séð og fékk símadömurnar í Samskip til þess að hnýsast aðeins fyrir mig hverjir frá fyrirtækinu væru að fara á Þjóðhátíð. Þar sem ég þarf að mæta í vinnuna á þriðjudag og miðvikudag eftir Þjóðarann þá vil ég vita hversu mikið ég get gert af mér og hversu mikið ég get drukkið. Ætla ekki að vera búin að hrauna yfir forstjórann og síðan kemur hann í mat á þriðjudaginn. Vandræðalegt.
Símakonurnar eru hins vegar ekki að standa sig. Þær eru búnar að hafa alla vikuna til þess að finna þetta út, en einungis búnar að segja mér frá einum strák sem er að fara. Fyrir vissi ég um einn ungann mann og einhverja pjakka úr vöruhúsinu. Þetta er nú allt karlkyns, svo ekki fer ég að ræða við svoleiðis, hversu drukkin sem ég nú verð.
Annars er planið samt að haga sér vel, enda er það ég sem þarf að hafa vit fyrir Stjána, JP og helvítis útlendingnum.
Vona að ég komist lifandi frá þessu öllu saman, annars bið ég ykkur bara vel að lifa, þetta hefur verið skemmtilegur tími hérna á jörðinni og ykkur er öllum boðið í jarðaförina.
Bless.
6 ummæli:
Farðu vel með pollagallann minn!!
Eitthvað held ég að þú sért að misskilja hver þarf að hafa vit fyrir hverjum, já og líka hver fór í Ríkið fyrir þig hmmm.
Gummi ég efast um að þú viljir pollagallann þinn aftur eftir þetta ævintýri.
hmmmm.........fór ég í Ríkið fyrir þig :-s Simmi hún bullar bara stelpan.
Þú færð að fara á þjóðhátið litla mín, af því að þú ert í umsjá heimalingana minna....og hana nú.
Hef það á tilfinningunni að dagurinn í dag verði pínku eftirminnanlegur, hjá ykkur, sjóurunum. Thíhí.
Mamma þín í ríkið, fyrir þig....jeah right. Það er ljótt að plata Kristín mín.
séðig á eftir skvís!!!
góða skemmtun.
pabbi þinn ÞURFTI ekki að fara að vinna í Vestmannaeyjum um helgina. hann bað um það!
Skrifa ummæli