14.2.07

Here i go again on my own..


Prísa mig sæla að búa ekki í Bandaríkjunum í dag. Leiðinlegasti dagur ársins er einmitt haldinn hátíðlegur í dag, með sykurplómum, candyfloss og hvítum dúfum. Já börnin góð, það er kominn Valentínusardagur. Dagurinn sem fær mig til þess að kasta upp eins og kona sem er á áttundu viku meðgöngu. Dagurinn sem fær Amor sjálfann til þess að vilja hengja sig.
Kaninn er ruglaður, en voðalega hlýtur það að hafa verið veruleika firrt manneskja sem ákvað að hafa einn dag í febrúar til að halda uppá ástina. Í minni sveit er talað um að ef að maður er ástfanginn þá er það eitthvað sem að manni þykir vert að halda uppá á hverjum degi. En ég er kannski bara gamaldags?
Fyrir mér er Valentínusardagurinn bara eitthvað til að minna einhleypa fólkið á að það er einhleypt. Allavega upplifir maður það þannig í US and A. Bara svona dagur sem er skylda að vera þunglyndur.
Ég er búin að undirbúa mig fyrir þetta. Deginum verður eytt uppí sófa, með kíló af ostapoppi, Titanic og kleenex.

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hvernig væri nú að móðursystur þínar í föðurætt fengju linka á síðuna? -Er viss um að lesendur þyrstir í femínísk fræði en nú standa einmitt yfir u.þ.b. sjöhundruð námskeið í þeim á heimasíðum Maraþonsystranna síkátu. Skelltu inn slóðum kona!

p.s. er abbó að þú skulir hafa séð tönnslu á undan mér!

Nafnlaus sagði...

Þú ert yndisleg!!!

Amma Stína

Nafnlaus sagði...

Hahaha nú hló ég upphátt!!