Gerði mér lítið fyrir í gær og labbaði heim úr skólanum. 66°norður bjargaði lífi mínu enn einu sinni. Hefði líklega ekki komist þessa 4 km án þess að vera í úlpunni frægu. Á meðan ég arkaði þetta, með Ipodinn í eyrunum þá hringdi síminn. Sem er kannski ekki frásögur færandi, nema hvað að það voru 10 missed calls og 4 SMS þegar að ég kom heim. Auðvitað 5 úr leyninúmeri, 2 frá Íslandi og svo SMS og 3 símtöl frá rugluðum dönskum vinum mínum.
Biðst afsökunar á þessu. Vona bara að enginn sé dáinn.
Annars er allt í góðu. Helgin var skuggaleg. Væj hvað var gaman. Þetta er kvöldið sem að fólk tapar sér gjörsamlega og það var yndislegt að sjá þessa ódjammglöðu dani sleppa fram af sér beyslinu og fá sér bjór, svona for engangs skyld. Svo sjaldan sem að þeir lyfta sér upp, eins og allir vita.
Næstu helgi er svo komið að okkur Íslendingunum að halda partý. Íslendingaball á laugardaginn, veit ekki hvort að maður taki upphitun fyrir það á föstudaginn, fer eftir því hvort að fólk ætli að partýast eitthvað.
Svo ætla ég að mæla með því að þið sem eigið eftir að sjá BORAT skellið ykkur í bíó. Sjúklega fyndin mynd.
5 ummæli:
Kristín Alma Sigmarsdóttir. Fátækur námsmaður í Danalandinu, sem á alltaf fyrir bjór.
Snillllllld hahah :)
Kannski ein sein var að taka eftir þessu núna hehe.
Thetta er satt Ragga mín.
Ertu ekki stolt af litlu frænku?
Ó jú svo sannarlega ;)
You go girlí !!!!!!!!!!
Borat er besta mynd í heimi!! Gipsy, give me your tears! If you will not give them to me, I will take them from you! Ahahahaha :D
Skrifa ummæli