
Þjóðarátakið "Kristín heim um jólin" er í fullum gangi og hefur fengið frábærar viðtökur. Fólk er (mis) duglegt að leggja þessu frábæra málefni lið, enda vita það flestir að jólin koma ekkert nema ég sé á landinu. Nú þegar hafa safnast 4.000kr síðan á mánudag og þakka ég öllum sem að hafa lagt sitt af mörkum kærlega fyrir. Með þessu áframhaldi gæti bara vel verið að Kristín verði á Ísnum um jólin.
Nú svo vil ég biðjast afsökunar á að hafa tekið bílinn hennar mömmu í leyfisleysi eina nóttina til að ná í félaga mína haugadrukkin á djammið og fara með þau heim. Þetta voru bara tæknileg mistök
...eða eitthvað.
1 ummæli:
hehe ég laggði 3000 kall? Hver var svo örlátur að gefa þér 1000? hvar væriru án mín? Ég vona nú að fólk fari að vera duglegara að styðja þig þar sem að það verða engin jól án þín. Það vita allir sem hafa eytt jólunum með þér... Mannstu þegar við spiluðum friendsspilið hér arum áður. Mikið var gaman. ég og linda fundum einmitt myndirnar.. GOOD times:)
Skrifa ummæli