Systur mínar eru farnar að vera ansi kræfar á fataskápinn minn. Núna til dæmis eru þær á leið í afmæli, önnur í buxum af mér (sem eru ekki nema 5 nr of stórar á hana. Toff) og hin í skóm af mér. Svo heimta þær að nota sléttujárnið mitt, sjónvarpið mitt, geisladiskana mína, skartgripina mína og auðvitað misstu þær lappirnar og strætó hætti að ganga þegar að ég fékk bílpróf.
Magnið af dóti sem ég fæ frá þeim; Ipodinn fæ ég stundum lánaðann þegar að ég fer út með hundinn OKKAR, D&G belti sem önnur á hef ég fengið einu sinni, í nótt svaf ég í bol af systir minni, en hún var líka í AC Horsens bolnum mínum, skrúfblýantur og strokleður.
Af hverju stel ég ekki fötunum þeirra? Því þau eru ekki nógu töff. Sem er einmitt af hverju þær taka mín föt.
Mjög fegin að Katla og Salka séu enn svona litlar. Þó að Þóra sé mjög kræf á sokkana mína.
4 ummæli:
ef þúkemur heim skal ég fá dótið þitt lánað.. EF þú kemur heim:( Skal svosem lána þér mín föt á móti.. EF þú kemur heim!
Bið að heilsa famelíunni!:)
Þegar ég kem, kem ég bara með tannbursta og auka naríur.
Það verður það eina sem verður eftir af dótinu mínu.
Ég var í rauðri hettupeysu í dag sem mig grunar að þú eigir. Svo var ég aldrei þessu vant í gráum og hvítum sokkum.. því sokkarnir hans Sindra, sem ég fór fyrst í, voru fullir af sandi. Í morgun notaði ég eplahárnæringu sem sumir skildu eftir í Kórsölum og spreyjaði svo hárið með illalyktandi bónusvökva sem sami sumi skildi líka eftir. Settist svo uppí hvíta drekann og fannst ég vera á stolnum bíl. Mundi svo að það var ég sem átti hann fyrst.
hehe? eg held eg passi á að fá það lánað.. allavena það síðarnefnda=)
Skrifa ummæli