Heldur ekki peninga.
Nú er ég tildæmis ástfangin. Fangi ástarinnar. Mjög dramatískt.
Fjarband eins og er, kikna í hnjánum alltaf þegar ég sé mynd af henni.
Alltaf.
Verð að fá hana til mín, hún þarf að koma til mín og hjálpa mér í gegnum skólann.
Halda á bókunum, pennaveskinu, tyggjóinu, glossinu, gemsanum og hjólalásalyklinum fyrir mig, ég er ekki fær um að gera það ein, ekki með stíl allavega. Núverandi reyndar er sæmileg, en ekki nógu góð. Enda er hún bara Topshop, samt viss klassi yfir henni en engin Gucci eins og ástin.
Dusta rykið af vísanu og þakka fyrir að ég á ekki börn sem ég þarf að fóðra.
Hér er orginalið, þessi elska

Ég hef ekki fundið feikið á netinu (kaupanlegt), þannig að ef einhver er að fara til fakemerkjalanda eins og Tyrklands, Búlgaríu eða kína þá má hinn sami kontakta mig og taka vísað mitt með (samt á það bara að notast til að kaupa þessa elsku).
Langaríana núna!
5 ummæli:
Er að reyna að festa dýrðina inni í minninu en þú veist að það er allur gangur á hvað festist þar.Kíki í kringum mig í Búlgaríu og sé hvað ég finn. Hjartans kveðjur, engillinn.
Amma Stína
Prentar bara ut myndina ;)
Ómægod hvað hún er geðveik...ég er orðin ástfangin líka. Eigum við að slá í púkk og kaupa hana saman? Eina viku hjá þér og eina hjá mér ;)
ohh dúllan mín, ég er hrædd við að segja þér þetta..
en eg held eg hafi séð svona úti, ég er ansi viss um það .. í Tyrklandi.. áttir að tala við mig vitleysingur :p hehehe
-KarenHelga
Ég á svona svarta.. ekta gucci.. Það er ást!! hbs
Skrifa ummæli