6.3.06

Mánudagar eru heilsuspillandi.

Mánudagar eru svo leiðinlegir að ég gæti dáið.
Og ekki skemmir þetta YNDISLEGA veður fyrir og brjáluð umferð fyrir.
Gaman að vera til.
Ég gæti bölvað öllu á mánuduögum, en geri það ekki- oftast ekki allavega.
En ég hins vegar bít fólk ef mér misbýður.
Núna til dæmis myndi ég ekki hika við að klippa hendurnar af danska fokking tannlækninum mínum.
Útaf heimsku hans þá þarf ég að fara til tannlæknis á íslandi að láta líma saman á mér tanngarðinn, það er allt á fljúgandi ferð uppí mér og ég fæ frekjuskarð á endanum.
Þetta mun kosta mig milljón held ég, sem ég á ekki.
Heimska íslenska kerfi!

Helgin var samt fín.
Ég djammaði meira að segja og þá er nú mikið sagt, fór sumsé með Ingu Rós á staffadjamm í vinnunni hjá Binna, Kai og Sveppa. Það var nú alveg nettur stemmari þarna, fyrir utan svona 30 slagsmál og hnífstungur. Annars var þetta sæmilegt, hitti fullt af fólki sem að ég hef ekki hitt lengi, meðal annars stelpa sem var með mér í 10. bekk og hætti fyrr þar vegna þess að hún var ófrísk, hún á semsagt 18 mánaða stelpu í dag og allt gengur vel hjá henni. Það fannst mér gott að heyra.
En væri maður til í þennan pakka núna? Neibb.

Í gær var ég svo viðhald.
Helga vildi ólm fá mig í bíó, komst svo að því að það var bara vegna þess að Hörður nennti ekki.
En hvað um það, ég fékk allavega að sjá hana og fara í bíó.
Við fórum á Broke back mountain.
ÚFF hvað hún er falleg.
Ég hef aldrei séð svona fallega mynd held ég, hún var kannski ekki beint svona "Frosti í mínus falleg" En meira svona "Gay falleg"
Svo þarft að koma með einhverja svona mynd. En váááá hvað við grenjuðum. Úff ég var miður mín í allt gærkvöld eftir þessa mynd, svo falleg og sorgleg, ég bara grét og grét.
Svona er þetta.

7 ummæli:

þórhallur sagði...

Hvað... er alveg hætt að minnast á mig??

Kristín Alma sagði...

Þú ert bara old news.

Nafnlaus sagði...

þú veist að þú ert uppáhalds viðhaldið mitt:) ok? sátt?;D

en úff.. þessi mynd.. þetta er mynd sem ég þarf að EIGA og horfa a vikuelga! klárlega

þórhallur sagði...

ja ég vissi að ég yrði ekki spennandi lengi

Nafnlaus sagði...

Þórhallur....hver ert þú? Ég verð bara að fá að vita það.;-)

Nafnlaus sagði...

Verulega falleg mynd..ég fór með fólki sem gerði grín af mér á myndina vegna þess að mér fannst hún svo falleg og rómantísk einhvað..vildi að ég hefði farið með strumpnum mínum á hana, vantar aldrei tárin hjá okkur..hvað sem við horfum á..! heheh

-KarenHelga

þórhallur sagði...

Ég? ég er frábær einstaklingur með fallegar axlir