
Katla kom, sá og sigraði!
Fæddist rétt um átta leytið í morgun!
Pabbi hringdi og sagði:
"Katla er komin, 15 merkur og kafloðin"
(rím)
Ég var svolítið hrædd um að hún væri þá kannski svipuð og kisan okkar eða eitthvað slíkt, ætlaði varla að þora að taka sængina af barninu þegar að ég fór í heimsókn í hreiðrið í dag.
Sá nefninlega alveg kafloðinn koll glitta undan sænginni, en varð voða fegin þegar að ég sá að þetta var nú bara á höfðinu. En barnið er eiginlega týnt í hári. Katla Lokkaprúða. Kolbikasvart, sítt og þykkt hár.
Ég og Inga Rós fórum í smáralind og versluðum á Kötlu.
Ótrúlega grúví galla, röndóttur.
Hún verður svo mikill töffari í þeim galla, með makkann útum allt.
Og enn meira flott þegar að hún fær restina af sængurgjöfinni á morgun.
Hún verður töff.
6 ummæli:
Knúsaðu nú Kötlu og mömmu hennar frá mér og litlunni minni!! Ég hlakka sjúklega mikið til að hitta þessa hárprúðu vinkonu lokkaprúðarinnar minnar :)
p.s. já og fínt að hafa hana fisk líka eins og mína (og þú)...hrútar eru víst of erfiðir :P
Thíhíhí.
við fiskarnir erum svo geðgóðir :)
En ég geri það, ég verð svo líka að fara að kíkja á ykkur og sjá baby born, sem ég er búin að heyra sóldísi eik mikið tala um ;)
Til hamingju með litlu systur :)
Til hamingju með Kötluna, Stína mín.
Það er nú bara svona með börnin í "familíunni"....öll svo loðin þegar að þau fæðast ;-)
Skilaðu kveðju til pabba og Þóru.
til lukku með Kötluna
Skrifa ummæli