23.12.05

Gullkorn og eitthvað meira

Linda vinkona mín er búin að vera í heimsókn hjá okkur hérn aí heila viku og búið að vera mikið stuð á okkur stöllum :) - Takk fyrir samveruna sæta mín, við sjáumst svo þegar að ég kem á klakann.

Annars verð ég bara að segja ykkur frá tvennu ógeðslega fyndnu sem að skeði hjá okkur þessa vikuna. Held samt að þeir sem að þekkja okkur finnist þetta fyndið, en ekki hinum ;)

Fyrsta kvöldið hennar Lindu þá vorum við í Partý-i hjá Láru og Gauja. Ég og Gauji vorum eitthvað að spjalla og þá rek ég augun í Nýja Robbie Williams diskinn, en fyrir þá sem ekkivita þá erum við Guðjón Valur harðir Robbie aðdáendur.
Samtalið varð svona:

KA - Nau, bara búin að kaupa nýja diskinn með Robbie sætasæta?!
GV - Já, maður en hann er samt alls ekki góður
KA - Ha? Í alvöru?
GV - Já, Ég allavega bjóst við meiru frá honum, það eru svona nokkur lög sem eru allt í lagi.
KA - Dísess, en samt, maður var auðvitað að búast einhverju svakalegu þar sem að diskurinn sem kom út í fyrra var svo geðveikt góður!

Þori varla að segja það en diskurinn sem að kom út í fyrra var BEST OF Robbie Williams! Og ég var blá edrú!
Note to self; Think before you speak woman!

Annað nokkuð skondið gerðist þegar að ég og Linda vorum í Djúpum samræðum um hvað hún væri fyndin og vorum að fíflast eitthvað með það. Þá heyrist í Lindu: Já, ég er svo fyndin að ég verð bara seld á E-bay þegar að ég dey...
Já, elskan, ÖRUGGLEGA!

Einhverra hluta vegna var verið að ræða um selfoss og alla hnakkana sem að búa þar.(Sem okkur finnst miður skemmtilegir drengir) Þá segir Linda uppúr þurru: SKo, það eru til Margar Hondur, en bara ein Honda Cific...
ÞAr hafið þið það :)

Annars gengur allt sinn vanagang fyrir sig í Danmörku, bara same old same old.
Hlakka mikið til að koma til Íslands og láta gamminn geysa, Það verður nú gaman fyrir ykkur að fá mig til þess að lífga uppá skammdegið, svo líður ekki að löngu þangað til að Stelpan Drullist til að taka þetta bílpróf sem að er búið að trassa í 9 mánuði. Þá myndi ég reyndar halda mig innandyra ef að ég væri þið, ekkert sniðugt að vera að væflast úti, vitandi af mér keyrandi á rauða drekanum um götur Reykjavíkur - Óþarfa slysahætta!

3 ummæli:

Inga Rós sagði...

HAHAHAHAHA þið eruð svo ruglaðar! hlakka til að fá þig hingað krong :P
og já gleðileg jól einu sinni enn!

Nafnlaus sagði...

hahaha takk fyrir ÆÐISLEGA viku ástin;*! eg er að skoða myndirnar frá ferðinni, þetta er fáránlegt! við erum að tala um 430 myndir og 23 myndbönd frá vikuferð? viiið strákarnir erum nu meiiiruuuu túristarnir!;)

og svonna bæþívei... stórefa að þu hafir skrifað honda cific rétt;) ...en eg veit ekkert hvenrig það er skrifað ...svooooo .... nevermind;) hahaha bara ennogaftur takk fyrir góðar stundir hons! ferða fleiri þegar þu kemur svo á klakann;) love you;*

Nafnlaus sagði...

hóst hóst***

verða fleiri þegar þu kemur á klakann;) bara svonna til að hafa þetta á hreinu;) haha;*