9.11.05

Stundum þá blossar upp eitthvað skap í mér sem að ég veit bara ekkert hvaðan kemur. Ég er frekar skapgóð manneskja, eins og sönnum fisk sæmir. En þegar að mér ofbýður eða eitthvað virkilega fær á mig þá get ég orðið alveg saltvond. Þá verð ég alveg brjáluð og fólk fær alveg að heyra það, ef að svo ber undir. En svo er þetta alveg jafnfljótt að renna af mér eins og þetta var fljótt að koma.
Stundum, þá væri ég alveg til í að vera með svona skap dagsdaglega, ekki það að mig langi að vera hraunandi yfir mann og annan alla daga, en finnst ég stundum bara óeðlilega róleg og yfirveguð yfir hlutunum. Getur maður ekki farið á svona skap námskeið? Það væri alveg bráð sniðugt fyrir mig að skella mér á eitthvað svoleiðis.
Stundum, þá væri ég líka til í að prófa að vera einhver önnur en ég er í svona einn dag, skipta algerlega um líkama, skapgerð, útlit, foreldra, búsetu, systkini, fjölskyldu og bara allt. Sjá hvort að ég gæti haft það eitthvað betra, en ég efast samt alveg um það. Ég er sátt við sjálfan mig og mína fjölskyldu eins og hún er, þó svo að fólk sé ekki alltaf sammála eða fólk geri hluti sem að maður er ekki sáttur við þá eru þau alltaf best.
Stundum þá langar mig til þess að labba niður í séð og heyrt, hér og nú og DV og hrækja framan í þetta skítapakk, hvort sem að það hefur verið að ræða um mína fjölskyldu eða ekki, það kemur ekki málinu endilega við - En kannski eru þessi blöð bara orðin svo öflug að þetta virðist vera eina leiðin til að fá einhverjar fréttir yfir höfuð?? Ég ætla að vona svo sannarlega ekki, því að þetta er ekki sá fréttamáti sem að ég vil tilkynna fólki það að ég sé að fara að gifta mig eða eitthvað. Eða er það kannski bara einfaldast? Flytja bara til Sri Lanka og senda svo tilkynningu í séð og heyrt ef að eitthvað merkilegt gerist?
Tjah maður spyr sig!
Stundum er erfitt að vera froskur!

5 ummæli:

Inga Rós sagði...

kristín mín þú ættir kannski bara að skipta um líkama við spongebob squarepants...þá væri örugglega lífið miklu auðveldara fyrir þig hahaha :D

Kristín Alma sagði...

HAHA!!
Já held það bara :)
Annars á ég ekkert bágt sko, bara væri gaman að sjá hvað myndi ske..:)

Nafnlaus sagði...

Þú mátt sko alveg fá slatta af mínu skapi :P

Dísa skvísa bráðum jótlandsgella...

Kristín Alma sagði...

Æji takk :) mússímússí :)

Nafnlaus sagði...

Vá þetta var djúpt (kannski er sálfræðin bara fagið fyrir þig)