Það eru yfir 1000 manns búnir að skoða síðuna mína á tæpum mánuði, greinilegt að einhver nennir að lesa þetta bull manns, en það eru sko ekki nærri því eins margir sem nenna að kommenta eða skrifa í gestabókina, en það er nú allt annar handleggur á málinu skal ég segja ykkur.
Það er allt gott að frétta af mér, á góðri leið með að vera búin að klára þessi 10 kíló af Halloween nammi sem að ég fékk, en þá er ekkert annað að gera að en fara að skella sér í ræktina og svitna út þessum 10 kílóum af nammi, sem er búið að stúta á tveimur dögum. Krakkarnir eru búnir að vera uppum alla veggi í bókstaflegri merkingu, og tel ég það aðalega vera vegna sykuráts, en sem betur fer er ég búin að vera í fríi síðustu tvo daga þannig að ég hef ekki þurft að hafa afskipti af þessum kolbrjáluðu börnum sem þjóta hérna á milli veggja. Ég er ekki búin að gera neitt í fríinu nema bara SOFA, svaf í 13 tíma í nótt og 11 tíma nóttina þar áður, og vá hvað þetta var ljúft. Í gær skrapp ég reyndar til tannlæknis, sem var svosem alltí lagi, nema það að ég þurfti að fylla út endalaust af eyðublöðum og skrifa undir fullt af dóti áður en að ég fékk að setjast í stólinn. Þessar spurningar voru ekkert lítið asnalegar, byrjað á að spurja bara eitthvað týpískt eins og hvort maður væri með ofnæmi fyrir einhverju og hvort maður væri heill heilsu og svona, svo komu þessar þvílíkt weird spurningar eins og hvort að kynþroskaskeiðið væri byrjað og hvort að maður væri byrjaður á blæðingum - Ég bara skil ekki hvað þetta kom tannlækninum við, en svo hugsaði ég bara; ég er í Ameríku svo að maður veit aldrei hverju maður á von.
Jæja, ætli þetta sé ekki komið gott í bili og ég ætla að skjóta mér í sturtu og skreppa svo út að gera eitthvað.
Froskurinn sem er kominn á kynþroskaskeiðið og með nýstrekktar tennur kveður!!!
3 ummæli:
það er nú betra að vita hvort þér eigi eftir að blæða í stólinn, á meðan er verið að skoða túllann, hahahha ameríka ahaha
Þú ættir kannski að hafa smband við tannlækninn hæerna í Danmörku, sem bíður eftir þér:(
hahahah..þetta folk í amerikunni er alltaf með ekkerjar svaðalegar spurningar..! hvar sem maður kmr..hehhehehe
Og ég vil bara þakka fyrir mi aftur..;) ÆÐISLEGT...ég ligg alltaf umkringd m&m PEANUTBUTTER og læt minningarnar um okkur strumpana fljota um í kollinum minum..!!!
-KarenHelga
Skrifa ummæli