Ég keypti mér náttbuxur fyrir nokkru síðan, sem er ekki frásögufærandi nema hvað þetta eru æðislegar náttbuxur. En um daginn þá var ég að brjóta þær saman (ohh ég er svo húsmóðurleg) og var svona að snúa þeim við rek ég augun í einhverja litla miða sem eru saumaðir inní brækurnar. Ég var ekkert að pæla í þessu fyrr en í fyrradag, þá sé ég hvað stendur á miðunum. Miðinn sem að var framan á þar var stórt "F" og stórt "B" aftan á. Og ég fór að pæla hvað í fjáranum getur þetta verið?!
Ég pældi ekki lengi og þá var ég komin með svarið...F-ið stóð auðvitað fyrir FRONT og B-ið náttúrlega fyrir BACK!
Sko só sorrý en hver er svona heimskur? Ég vil líka benda á að ég er búin að vera í buxunum rétt allan þennan tíma, þó að ég hafi ekki kíkt á miðana, er ég kannski bara svona rosalega gáfuð??
5 ummæli:
vissi alltaf að þú værir báð greind
kristín það ert bara þú sem ert svona gáfuð...vá sko þú hlýtur að vera gáfaðsta manneskjan í USA eða e-ð! stupid people...:P
Vá!
Þetta var nú meira egóbústið!
Já ætli ég sé ekki bara með þeim greindari..
hahahahha fólk fer kannski í buxurnar öfugar... það getur komið fyrir besta fólk;D en þú ert bara svo gáfuð að þurfa ekki að nota þennan miða :D
Þetta er nú alveg fyrir mig ... "litlu" dönsku ljóskuna .. hehehehe Front and back miðar í allar buxur hjá mér, og kannski miði sem segir að buxurnar séu á röngunni ... hehehe
En innilega til hamingju með gamla síunga settið .... þau fá stórt knús frá mér næst þegar ég hitti á þau :)
Skrifa ummæli