Er maðurinn eitt af sköpunarverkum Guðs?
Eða er Guð eitt af sköpunarverkum mannsins?
- Nietzsche
Fann þetta "kvót" á netinu og finnst þetta alveg þess vert að velta sér uppúr. Ég persónulega trúi því að Guð sé eitt af sköpunarverkum mannsins.
Bara alltof margt sem að bendir til þess að hann sé ekki til.
Mér finnst mjög skrýtið að maður eyðir öllum 8.bekk í kirkju og fermingarfræðslu til að læra um guð og jesú, svo fermist maður, alveg kominn á þá skoðun að guð og jesú séu cool og bara góðir gæjar. Jæja, maður lifir á þessu þangað til í 9. bekk þegar að maður lærir það í náttúrufræði að guð hafi ekki skapað heiminn, heldur hafi jörðin orðið til með miklakvelli og að dýrin og við hefðum bara þróast svona eins og við erum í dag.
Frekar skrýtið að það sé farið að þessum málum á þennan hátt. Eða það finnst mér allavega...
Jæja, útí léttara hjal.
Ég var að skoða mbl.is í gær (nótt á ykkar tíma) og sá að það voru -2 gráður í reykjavík, og snjór sumstaðar á landinu!
Ég væri löngu dauð ef að ég væri á íslandi, því að hérna á kvöldin fer hitinn niður í 22 stig og ef að við sitjum úti á kvöldin, þá er ég alltaf í þykkum peysum og með heitt kakó við hendina.
Skil bara ekki hvernig maður getur orðið svona háður þessum hita. Enda hef ég alltaf sagt að ég sé "dårlig Islending"!
Annars er ekki mikið að frétta frekar en fyrri daginn. Þau fóru í gær á einhvern svona búgarð to pick a pumkin, ég nennti ekki með, var ekki alveg að nenna einhverri svona ferð þar sem að mauður velur grasker, dröslast um í 35 stiga hita í einhverju heyi og matar kiðlinga. Svo að ég og Alexandra vorum heima að chilla, horfðum á laguna beach og the real world Austin og höfðum það bara nice saman.
Ég er alltaf að pæla svo mikið, en er alltaf búin að gleyma öllum pælingunum þegar að ég sest niður til að blogga. Verð að gera eitthvað í þessu, því að þetta eru oft mjög áhugaverðar pælingar sem að ég ætti að deila með ykkur. Því að þetta blogg er orðið svo slakt eitthvað...
6 ummæli:
þú þarft að læra þetta allt til að geta svo myndað skoðanir um málið...ekki satt?
jújú!
En af hverju ekki að hafa þá þessa þróunarkenningu í námsbókum fyrr, eða fermingarnar seinna??
Skrýtið að þetta sé svona, meina ég var búin að ferma mig þegar að ég fékk að vita að guð hefði bara ekki skapað mig!
er biturleikinn alveg að fara með þig elskan?:D
neinei segi nu bara svonna.. en ja eg er alveg sammála þer með þetta sambandi við ferminguna! eg er alveg á báðum áttum sjálf! ég held að það sé verið að reynað rugla okkur i hausnum kristin! sendum forsetanum e-mail! ofreynsla á heilann er eflaust ekki eitthvað ssem við viljum! ónósurríbob!
en jæja eg er herna i skolanum..að plebbast! er að fara i próf eftir klukkutima ur "Snorra-Eddu"! sem þu víst "færð ekki" að læra þarna uti i útlandinu! ahh..what a shame! hehe..en þessi bók er nu samt skemmtilegri en eg helt..bara svo að þu vissir það! svo ef að þu ert að spa i að farað lesa góða bókk svonna fyrir svefninn;) þá mæli eg með snorra eddu! gott að kynna sér svonna efni kristin! vera svoltið íslensk;)
en nog af sýru! farðu að láta mig vita hvenær í des ég má koma i heimsókn;) boj pumpkin;*
hehe bara vertu með litla vasabok alltaf með þér og þegar u finnur þér pælingu..writ it down..HAHA vóvó Karen Helga..ÖFLUG..!!!=D=D
-KarnHelga
ætlaði einmitt að fara að segja það sama:) hafðu bara litla bók með þér.... svona pælingabók;)
en jám.. hvenær:D en ohhh hvað þú ert "óheppin" að vera ekki í skóla stelpa! alveg hreint vorkenni þér svoooooo;D hahah þetta er að gera útaf við mig!!! þúst hvernig á ég að vita hvað (3 + a+9x)í 6.veldi X (7+9/6a/4x +y)í 6 veldi eru?? já nei.. það á maður ekki að vita:S
ja..og hver er tilgangurinn með svona SVAKA dæmum..eru einhverjar líkur á að maður eigi eftir að nota þeta í framtíðinni?=O naahh held ekki..!
-KarenHelga
Skrifa ummæli