6.3.05

Ókei.
Held að núna gæti verið komið að því að ég ætti að fara að druslast út að reyna að finna mér eitthvað mannsefni. Það er greinilega að fara í taugarnar á fólki að ég skuli vera að verða 17 ára og ekki "gengin út"!
Af hverju er þetta að trufla fólk eitthvað?
Ég hef ekki áhuga á því að vera 17 ára og í einhverju voða sambandi. Allavega er það ekki á planinu en ef að Adam eða einhver álíka kemur til mín þá er ég tilbúin í að skoða málið´.
Annars er móðir mín alveg búin að planleggja hver er draumaprinsinn minn, og heimtar að fá hann fyrir tengdason daginn út og daginn inn, sjáum hvað setur mamma mín...
Annars er fínt að frétta af mér.
Held meira að segja bara ekkert meira heldur en þetta kærastaleysi mitt.
Blogga aftur seinna. Og þið þarna sem að eruð að reyna að koma mér saman við einhverja danska gaura: It's not gonna happen!

6 ummæli:

Inga Rós sagði...

veistu ég held að þú eigir þér glæsta framtíð með rasmus, kasper eda soren :D

Kristín Alma sagði...

Haha!
Ég myndi ekki vera skemmtileg við þá. Því að danskt "ástarmál" er síður en svo fallegt!
Eiginlega bara fyndið sko!
En hey, sonur hans sörens hérna á móti er komin með kærustu! Heldurðu að það sé nú...

Inga Rós sagði...

ég held nú að danskt ástarmál getur ekki verið verra en þýskt....ohhhh ich liebe dich hans, ich liebe deine kindersprache hahahahah :D bryndís leitaði að tippi í þýsku orðabókinni út á ítalíu og það kom kindersprache sem ég hefði haldið að þýddi barnatal en já mikið ruuuuugl!

en hvað er að syninum hans sorens....hann er að skemma sápuóperuna...þú verður að spilla þessu sambandi kristín og það sem fyrst!!!

Kristín Alma sagði...

Já ég verð að fara yfir og fá lánaðan djús!
Einhverjar aðrar hugmyndir?

Inga Rós sagði...

nei þetta er prýðishugmynd...þú tekur bara the old bend and snap fyrir framan hann og þá verður hann eins og smjör eða whatever hahahah :D

Kristín Alma sagði...

Ohh já!
Garg, ég negli bara pabbann og strákin á staðnum sko!