Margt hefur drifið á daga mína síðustu 9 dagana. ætli það sé ekki aleg kominn tími til þess að segja frá því núna.
Daginn eftir að ég bloggaði síðast þá fór í á starsailor tónleikana í boði Pabba ehf. Brynja sá sér ekki fært að mæta, þvílíkt svekkelsi! en ég fór í Staðinn bara með Bjarka og Elíasi, vegna þess að það var 20 ára aldurstakmark. Og ekki sé ég eftir að hafa farið því að Starsailor voru Geggjaðir!! Ég var svolítið lengi að ná mér niður eftir þetta..þannig að ég bara fór heim og hlustaði á þá snillingana í tölvunni:P
Daginn eftir það, (laugardagur) fórum við mamma í kringluna og ég fékk: buxur tvo boli og stívél..Thíhí. Svo fórum við í útskriftarveislu til guðrúnar frænku sem að var að útskrifast úr kennó.
Á mánudeginum byrjaði ég svo bara að vinna. Sem var bara alltílæ, ég er á leikslóla og held að það sé kannski aðeins skárra en að vera að reyta arfa allan daginn.
Þriðjudagskvöldið var sko heldur betur skrautlegt..þá var hringt í okkur Kristínu J og við beðnar um að koma að leika í Kalla Bjarna Myndbandinu, við nýja lagið hans sem að er nýkomið í spilun. við auðvitað slógum til. enda ekki á hverjum degi sem að maður fær að leika í myndbandi hjá Idolstjörnunni sjálfri:P
ÞEtta var svaka fjör,en við áttum að vera í einhverri Garðveislu. þetta var reyndar frekar kalt en alveg þess virði, maður kynntist fullt af fólki og svona:P en jámm svon er bara að vona að við vinkonurnar sjáumst eikkað...
Svo á Fimmtudaginn var 17 júní og þá áttum við að sýna atriði úr hárinu, Svo að við vorum mætt á æfingu kl 13:00 og æfðum þetta og allt gekk eins og í sögu.en svo þegar atriðið sjálft var sýnt þá klikkaði allt sem að klikkað gat nema við..það vakti ekki mikla kátínu meðal okar leikenda.
Um kveldið var þetta allt gleymt og grafið og ég skellti mér í bæjinn með nokkrum kátum kunntum. Þá var sko tekið á því! Við erum sko sannir íslendingar og létum kuldann ekkert á okkur fá og skemmtum okkur alveg konunglega.
Núna er ég bara að finna út hvað ég á að mér að gera um helgina.Þar sem að ég er í fríi á mánudaginn í vinnunni. En kannski að maður kíkji á kringlukastið eða eitthvað bara. Who knows..
Njótið hors annars...
1 ummæli:
bara stuuuud a ther kelling :D hehe tharr allva stuuud her...erum bara i mongo kostum alltaf hehehehe :D eniveis takk fyrir ad skrifa a siduna mina og eg hlakka til ad sja thig :*
Skrifa ummæli