6.10.12

Inspiration of the day

Ég er ekki mikil tískudrottning. Allavega ekki svo að ég þurfi að fylgjast með því sem hefur verið að gerast á tískuvikunum undanfarið. En ég veit alveg hvað mér finnst flott og hér er smá dæmi um það :)



Elska þennan vínrauða lit
Love á vínrautt, leður og dýramynstur



Elsk á allt. Úrið, jakkann, klútinn, sólgleraugun og hárið!
Opi Oktoberfest
Verð að skella í einn góðan trefil!
Casual en samt smart



Held að næsta mál á dagskrá sé að fá sér prjónapeysu, blazer jakka, eitthvað vínrautt, góðan trefil, flott stígvél og Ray Ban aviator. Eða bíða með það þar til í útlöndunum í jólamánuðinum...


Drip dry OPI

Mig langar svo að prufa þetta Drip Dry dæmi. Setur 1-2 dropa á neglurnar þegar þú ert búin að setja naglalakk á þær og lakkið þornar! Ef þetta virkar þá ætti þetta nú að hennta svona brussulínu eins og mér ágætlega. Verð að kíkja á þetta í næstu bæjarferð. Geri ráð fyrir að þetta kosti um milljón eins og allt frá OPI, en kannski þess virði :)
Langar líka í ný falleg naglalökk og svo þyrfti ég að fá mér einhverja sniðuga hirslu undir nagladótið mitt sem er að sprengja utan af sér baðskápinn! 



5.10.12

Kross

Hef séð svolítið mikið af þessum hálsmenum uppá síðkastið. Þó ekki í búðum heldur um hálsinn á stórstjörnum í Hollywood. Mér finnst þetta agalega smart, sérstaklega lítil og nett úr gulli eða rósagullinu góða (ég er ekki enn búin að eignast neitt úr rósagulli!!!).
Hvar fær maður svona fínerí á Íslandinu góða?





Sko til, Kourtney Kardashian klikkar ekki!



4.10.12

Kökur

Æj mér finnst svo gaman að dúllast í kökubakstri og skreytingum. Hér er brot af því sem ég hef verið að dúllast í...

Hello Kitty
UMFG kaka fyrir einn harðan stuðningsmann :)

Brjóst!! 

Batman forever

Spiderman

Afmæliskaka fyrir eina 10 ára skvísu.

BLóm og hjörtu

Skírnarcupcakes

Mikki mús alltaf klassískur

Skírnarcupcakes

Þriggja hæða afmæliskaka með rósum og fiðrildum

3.10.12

Dásemd!

Mér finnst þetta viðtal algjört yndi. Það er eitthvað við tvíbura sem heillar mig, alltaf þótt eitthvað agalega sjarmerandi við að eignast tvö börn í einu. Held það sé alveg frábært. Hinsvegar myndi ég labba í sjóinn ef ég myndi eignast tvö börn með mjög stuttu millibili. ok ekki í alvörunni :) Börn eru alltaf blessun, það er nú bara þannig.

1.10.12

Bollakökur

Ég fæ oft spurningar um hvernig ég nái bollakökunum svona "beinum" sem sagt formið heldur sér alveg og þær "leka" ekki út um allt og verða skrýtnar í laginu eins og vill gerast. Svo ég ætla að sýna ykkur hvað ég geri þegar ég baka bollakökur/muffins/cupcakes - hvað þið viljið kalla þetta :)



 Ég nota alltaf svona sílikonmót. Fást í Hagkaup.

 Set venjuleg pappírs muffinsform ofan í

 Þessir einnota sprautupokar fást í Hagkaup - í pokadeildinni :)

Deigið komið í sprautupoka. Síðan þarf bara að klippa aðeins af endanum og sprauta ofan í muffinsformin. 

Deigið komið á sinn stað. Mér finnst þetta mikið snyrtilegri aðferð en að nota tvær teskeiðar. Líka mikið fljótlegra sem er gott, sérstaklega þegar maður þarf að gera mikið magn.

 Kökurnar komnar útúr ofninum voða jafnar og fínar. Þá er bara að skreyta!

 Afurðin fullunnin og á leið í 10 ára skvísuafmæli hjá litlu frænku Byggingarfræðingsins :)

Krúttkaka!

26.9.12

Haust

Haustið er alltaf voða notalegur tími finnst mér. Kertaljós og kósýheit einkenna oft þennan tíma sem og rútína vinkona mín mætir á svæðið. Ræktin 4 sinnum í viku, lærdómur við borðstofuborðið og göngutúrar með hundabarnið 4-5 sinnum á dag. Ég reyni að fara með Hrapp í sveitina á hverjum degi, þar fær hann að hlaupa um laus og njóta sín og ég fæ frískt loft í lungun.
Hér eru nokkrar haustmyndir sem ég tók um daginn..


Hundarass

Spegilslétt vatn og Hrappur



Bekkur sem byggingarfræðingurinn smíðaði

30 ára brúðkaupsafmælisgjöf - ekki amalegt :)

Snjór í fjöllunum!

Rúmið, því mér finnst aldrei betra að sofa en á haustin/veturna

Rúmið fær að fylgja með því að ég er að taka mig á og hætta að fara með iPadinn uppí rúm. Núna eru það bara bækur og er ég að reyna að berja mig í gegnum 50 gráa skugga. Er bara ekki alveg að meika þessa bók, held ég sé of mikil tepra hreinlega! Sem er slæmt því amerískar fótboltamömmur tættu þessa bók í sig þegar hún kom út og var oft talað um bókina sem mömmuklám í USA.. Mig langar ekki að vera meiri tepra en hin ameríska húsmóðir svo bókin skal lesin!

24.9.12

Djúpið


Fórum að sjá Djúpið um helgina. Mæli með þessari mynd. Ég grét reyndar úr mér augun, fólkið sem sat í kringum okkur var farið að gefa mér illt auga undir lokin á myndinni því ég sat þarna með ekka og réð ekkert við tárin sem runnu niður kinnarnar og ofaní popppokan - vel gert kas!
Mögnuð mynd og ég vona að sem flestir sjái hana. Viðurkenni samt að ég átti óvenju erfitt með að kveðja Byggingarfræðinginn minn áður en hann fór útá sjó í gærkvöldi...


18.9.12

Óskalisti haustsins

eða brot af honum.

Ég hef ætlað að fá mér þessa í nokkur ár!
Mér finnst þessi trefill æði

Átti svona en hún brann á þjóðhátíð!


Kósý kragi



Góð sólgleraugu eru líka must, uppá lúkkið :)

17.9.12

Íþróttaálfur og Solla Stirða

Litlu frændsystkini mín halda mér svo sannarlega á tánum þegar kemur að kökuskreytingum. Ég er allavega ánægð með þessar kökur sem ég gerði fyrir þau og skilst að þau hafi líka verið kát :)



Stundarskrá

Þá er Byggingarfræðingurinn farinn á sjó eins og byggingarfræðingar gera :) Líkamsræktin komin á fullt og lífið komið í góða rútínu eftir sumarið. Hrappur litli farinn að sætta sig við að við séum bara tvö heima og hann sér um að drösla mér út í göngutúra, sem er gott!
Ég þarf að búa mér til einhverja smá stundarskrá svo eitthvað verði úr dögunum hjá mér (ég vakna til lífsins á kvöldin og geri þá allt sem venjulegt fólk gerir á daginn).
Datt því í hug hvort maður þyrfti ekki að hafa eitthvað meira skipulag á hlutunum, eins og þrifum, lærdóm og slíku. Er sem sagt ekki að tala um að negla hvern klukkutíma, heldur bara setja raunhæft plan svo maður sé ekki allt í einu að skíta á sig í skólanum, allt í drasli og ekkert búið að þvo þvott eða baða hundinn..
Þið haldið eflaust að ég sé geðveik, því ég er ein heima hérna á daginn og við erum tvö í heimili aðra hvora helgi en mér finnst alltaf betra að sjá það sem ég þarf að gera, skrifa t.d tossalista yfir ALLT.

Er einhver sem les þetta með plan yfir heimilisstörf og nám sem hann vill deila með mér?

Og sjáið þetta, Kim vinkona bara í skónum sem mig langar í.

Love á litinn..

Grænu eru líka fínir. Tannkremsgrænir.. fílaða!



11.9.12

Íþróttaskór

Er að verða komin með tærnar út úr asics skónum mínum svo það þyrfti að fara fjárfesta í betri skóm. Eru þessir Nike free aðal málið í dag? 





5.9.12

Frost

Langar að sjá þessa. Einhver til í bíó á föstudaginn?


Nótt

Klukkan er að verða fjögur og ég alveg glaðvakandi. Kannski því ég drakk líter af vanillukaffi hjá Rakel í kvöld. Kannski því ég lagði mig í 3 tíma eftir hádegið í dag. Kannski bæði. Ég vissi að ég myndi ekki sofna á skikkanlegum tíma þannig að ég ákvað að taka smá lærdómssession. Veitir víst ekki af, gæti mögulega farið að drukkna í þessum blessaða skóla og það eru tvær vikur búnar af honum..
Hressandi.