Ég þarf að búa mér til einhverja smá stundarskrá svo eitthvað verði úr dögunum hjá mér (ég vakna til lífsins á kvöldin og geri þá allt sem venjulegt fólk gerir á daginn).
Datt því í hug hvort maður þyrfti ekki að hafa eitthvað meira skipulag á hlutunum, eins og þrifum, lærdóm og slíku. Er sem sagt ekki að tala um að negla hvern klukkutíma, heldur bara setja raunhæft plan svo maður sé ekki allt í einu að skíta á sig í skólanum, allt í drasli og ekkert búið að þvo þvott eða baða hundinn..
Þið haldið eflaust að ég sé geðveik, því ég er ein heima hérna á daginn og við erum tvö í heimili aðra hvora helgi en mér finnst alltaf betra að sjá það sem ég þarf að gera, skrifa t.d tossalista yfir ALLT.
Er einhver sem les þetta með plan yfir heimilisstörf og nám sem hann vill deila með mér?
Og sjáið þetta, Kim vinkona bara í skónum sem mig langar í.
![]() |
| Love á litinn.. |
![]() |
| Grænu eru líka fínir. Tannkremsgrænir.. fílaða! |


1 ummæli:
Fáðu þér svona skó
og settu plan uppí Exel eða dagbók :)
ég er planleggjari dauðans... reyndar ekki með heimilisstörf :) það gerist bara þegar ég nenni, en allt annað er nelgt niður í dagbókina, bæði skrifað í dagbók og sett í dagbókina í iphoneinum :)
Það hefur pottþétt enginn tapað á því að vera smá skipulagður :)
Skrifa ummæli