Hver setti glerbrot í vaselínið??
Já þetta er skemmtilegt lag sem 1/4 af öllum íslendingum er greynilega með á heilanum.
Ég hef ekki fengð neina skýringu á þessari pælingu sem að ég var að pæla í hér að neðan, ég er ennþá að bíða, annars er ég bara að pæla í að setja þetta í umræðuna á barnaland.is hlýt að fá svör þar. Allavega ekki hægt að treysta á ykkur sem að eruð vön að kommenta hjá mér, hvar eruð þið annars, það eru allir hættir að kommenta hjá mér, er ég kannski bara gleymd og grafin af því að ég sit hérna í makindum mínum í annari heimsálfu? Mér finnst allir eitthvað vera að yfirgefa mig, skil þetta ekki. Þetta er kannski svona "revenge of the nerds" því að ég er alltaf að yfirgefa alla, búin að flytja til 2ja landa á 10 mánuðum. Þannig að núna eru allir að yfirgefa mig, er ekki einu sinni búin að heyra í minni eigin móður, (þið vitið konunni þarna sem að fæddi mig og reyndi að ala mig upp, þið megið sjálf dæma hvernig henni tókst það til...) í yfir 48 klukkustundir, þetta er hræðilegt!
Vá báðir aðilarnir sem að lesa þetta blogg eru örugglega löngu hætt að lesa þetta núna, eða jafnvel er ég búin að drepa þá úr biturleikanum í mér.
Ok, út í aðra sálma, þá er alltaf jafn mikið stuð hérna í Ameríkunni, en Danmörk togar rosalega í mig, og stundum (sérstaklega þegar að ég tala við vini mína í DK) langar mig að skreppa aðeins heim, en mig langar samt alls ekki að fara burt héðan og aldrei koma aftur. Mér finnst samt alveg merkilegt að ég hafi ekki fengið neina svona heimþrá, svona alveg égvilfaraheimnúna-dæmi, en hins vegar þá er ég farin að taka eftir því að ég grenja yfir ÖLLU, sem að ég var ekki vön að gera áður. En þá erum við að tala um sjónvarpsefni eða bíómyndir, þar má tildæmis nefna: The Notebook, the O.C. og svo The real world: Austin..en það erverulekaþáttur, já ég sat og hágrenjaði yfir einum þættinum í því. En þetta er allt bara gott og blessað, maður verður nú einhverntíman að láta tilfinningar sínar í ljós.
Annars þá er ég nýbúin að uppgötva stórmerkilega uppfinningu, sem er vatnsheldur maskari, ég er ekki búin að mála mig einu sinni hérna í USA þvi að það var svo heitt að maskarinn rann bara útum allt þegar að maður svitnaði, og svo fer ég eiginlega á hverjum degi í sund, svo að það hefur aldrei verið inní myndinni að vera máluð. Svo var ég að pæla í um daginn þegar að Christian Karl var óþekkur um daginn, hann mátti ekki vera með garðslönguna því að hann var að sprauta á fólk í fullum klæðum (sjálfur var hann allsnakinn) og mamma hans sagði, Christian Karl! slepptu slöngunni núna, og hann bara nei! labbaði að mömmu sinni og sprautaði beint framan í hana (þetta er ótrúlega stríðin famelía sko, þannig að svona hlutir eru bara daglegt brauð) en maskarinn hélst á! ótrúlegt, já og ég fór sko med det samme út í wal mart og keypti mér svona undratæki, svo núna er maður alltaf svona líka flottur á því þegar að maður fer í sund, með augnhár dauðans, þó að maður fari í kaf, sniðugt ekki satt?
Já, í sambandi við jólafríið mitt, þá verður það líklega alveg í heilan mánuð. En nú þarf ég víst að fara að safna money, svo að eg komist heim,svo að ef að þið viljið vera sponserar þá bara ná mér á msn:
kristinalma@hotmail.com, eða e-mail
kristinalma@torg.is því að það kostar alveg slatta að fara þetta, ég þarf nefninlega að fljúga til íslands (ég á þann miða) frá íslandi til DK, (þetta verður bara millilending í klst á íslandi) svo þegar að ég fer til baka þá fer ég Danmörk-ísland-USA (stoppa þá á íslandi í ca viku) þetta ferðalag mitt verður að öllum líkindum einn mánuður, eða það er það sem að þetta er áætlað núna. Svo er óljóst hvenær ég kem heim aftur á næsta ári, en ég verð allavega í 3 mánuði eftir að ég kem heim úr jólafríinu.
Vááá, þetta blogg er orðin tóm steypa, enda klukkan hérna hjá okkur vestanhafs orðin 11:20 pm og ég búin að vera vakandi síðan klukkan 7:30 am í morgun...
Lifið heil