8.7.13
Kría jewelry
Væri alveg til í að eignast þetta hálsmen frá Kria. Langaði meira í þetta gyllta þar til ég sá verðið á því, þá skipti ég bara um skoðun og langaði meira í silfurlitaða :) En falleg eru þau og margir aðrir skartgripir þarna á síðunni sem ég gæti hugsað mér að eiga.
1.7.13
Palmers
Ég skil ekki af hverju Palmers vörurnar fást ekki á Íslandi! Ég hef verið að nota bumbukremið frá þeim og mér finnst það æðislegt, myndi mæla með því við allar ófrískar konur. Ég keypti 4 brúsa af þessu kremi þegar ég var í Glasgow í byrjun mánaðarins og svo sendi mamma mér einn brúsa svo ég ætti að vera vel sett fram í september.
Ég hef reynt að leggja mikið uppúr því að hugsa vel um húðina mína núna meðan ég er ófrísk því eins og flestir vita þá teygist rosalega mikið á húðinni á meðgöngu. Mér finnst því mikilvægt að bera á mig krem/olíur til að hjálpa henni að teygjast þó svo að það komi kannski ekki í veg fyrir að maður fái slit. Ég skrúbba allann kroppinn ca 2svar í viku til að losna við dauðar húðfrumur og koma blóðinu á smá hreyfingu og svo hef ég líka verið dugleg að drekka vatn og reynt að innbirgða omega fitusýrur þar sem það er talað um að slit komi innan frá. Ég er reyndar ekki hrædd við það að slitna (og á alveg von á því að fá slit þegar líður á meðgönguna) en mér líður einhvern veginn betur eftir að ég er búin að bera á mig og dúllast þetta :)

18.6.13
Uglur
Ég væri svo til í að eignast eina svona uglu eftir Heiðdísi Helgadóttur. Þessar myndir fást í Mýrinni og eru ekkert smá flottar. Reyndar hef ég líka séð fleiri teikningar eftir hana og þær eru alls ekki síðri, en uglur eru bara svooo fallegar :)
12.6.13
Rimmel London
Ég keypti mér naglalakk frá merkinu Rimmel London þegar ég var í Glasgow í síðustu viku. Get svo sannarlega mælt með þessum lökkum! Ég lakkaði á mér neglurnar fyrir viku síðan og lakkið hefur varla haggast af nöglunum á mér (ég vinn á leikskóla svo ég er ekkert að prinsessast allan daginn) og ég notaði ekkert base eða topcoat. Svo skemmir ekki fyrir að það var orðið þurrt á einni mínútu :)
Bara verst að ég held að þetta merki sé ekki fáanlegt hér á landi en ef þið eigið leið erlendis í sumar þá mæli ég með að þið kíkið eftir þessu merki þar.
Bara verst að ég held að þetta merki sé ekki fáanlegt hér á landi en ef þið eigið leið erlendis í sumar þá mæli ég með að þið kíkið eftir þessu merki þar.
23.5.13
Barnaherbergi
Eftir að við komum úr 20 vikna sónarnum þá get ég ekki hætt að hugsa um hvernig ég vil innrétta barnaherbergið. Get ekki beðið eftir að eyða sumarfríinu mínu í að dúlla mér við að koma því í stand. Þó svo að barnið komi til með að sofa inni hjá okkur fyrst um sinn þá ætla ég að hafa skiptiaðstöðuna inni í barnaherberginu og allt þetta dót sem fylgir svona litlum börnum þar inni, svona fyrst að herbergið er til staðar.
Ég sé fyrir mér einn vegg í mildum grænum eða brúnum tón og hvít húsgögn. Ætla að fá mér eitthvað skiptiborð sem nýtist svo sem hirsla inni í barnaherberginu þegar bleiutímabilinu lýkur og svo fallega kommóðu. Svo vonast ég til að finna einhverstaðar Juno rúmið en ég gæti ekki hugsað mér fallegra barnarúm. Ef einhver sem les þetta veit hvar ég get fengið svoleiðis þá má sá hinn sami láta mig vita :)

![]() |
| Juno rúmið góða sem stækkar með barninu :) |
4.4.13
Borgen
Bara segja ykkur (þeim sem eru jafn eftir á og ég) að Borgen eru frábærir þættir. Það er verið að sýna þriðju (að ég held) seríuna á RUV núna en ég hef verið að horfa á 1 seríuna núna í veikindunum og skil ekki af hverju ég var ekki byrjuð að horfa á þetta fyrr. Sem betur fer er ég með aðra seríuna hérna tilbúna á kanntinum :)
2.4.13
Ég fer hamförum hér á blogginu eins og vanalega. Hef reyndar góðar ástæður fyrir bloggleysi að þessu sinni en stefni nú á að rífa þetta allt upp á næstunni.
Páskarnir voru ljúfir. Ég og Jón Pétur erum búin að vera í löngu páskafríi og nýttum það vel í afslöppun hér heima og útí bústað með góðum vinum og góðum mat! Líkamanum mínum ofbauð samt allar steikurnar og sósurnar sem ég át í páskafríinu og ákvað að skella á mig fjórðu gubbupestinni síðan í janúar! Svo nú er ég heima að reyna að ná upp einhverju þreki (hef ekki borðað neitt af viti síðan á páskadag) og að reyna snúa við maganum sem er gjörsamlega á hvolfi eftir þessa ógeðispest. Ég vona að þetta gubbustand fari að klárast því mér finnst ég alveg vera búin að vera með hausinn nógu mikið ofaní klósettskálinni á þessu ári - nenni ekki meira svona!
Kem með eitthvað aðeins meira krassandi næst - lofa ;)

25.2.13
28.1.13
Litli api..
23.1.13
Sniðugt!
Ég var að skoða kommóður í sakleysi mínu á ikea.is og rakst þá á þessa ofur krúttlegu servíettustanda. Sniðugt að mála/spreyja í hvítu og festa svo uppá vegg í barnahergbergi og geyma kannski bókina sem er verið að lesa fyrir háttinn þá stundina. Standarnir kosta ekki nema 395 krónur. Ekki dýr hilla það ;)
20.1.13
Halló Halló!!
Við Byggingarfræðingurinn fórum til Köben milli jóla og nýárs í kærustuparaferð. Ferðin var frábær í alla staði og við stefnum á að fara aftur á sama tíma á þessu ári. Það skemmdi svo sannarlega ekki fyrir að útsölurnar byrja 27 desember í Danmörku svo við neyddumst til að kíkja aðeins í búðir :)
Ég var búin að ákveða áður en við fórum út að láta loksins verða að því að byrja safna Royal Copenhagen stelli, en ég er búin að horfa á þessi stell lengi en aldrei látið verða að því að byrja safna. Við þræddum því búðirnar í Köben sem selja þessar vörur og urðum svo sammála um að blanda saman tveimur stellum, einu hvítu (White Fluted/Hvid Riflet) og einu með stóru bláu munstri (Blue Fluted Mega/Blå Mega Riflet), mér finnst þau passa rosalega vel saman og virkilega fallegt að sjá þau saman á borði (Já ég mátaði þetta allt sundur og saman í búðunum :)) Við keyptum okkur tvær thermo krúsir með bláa mynstrinu í Köben og svo áttum við svo ótrúlega mikið af dönsku klinki þegar við vorum komin á Kastrup á leiðinni heim að við keyptum okkur eina hvíta krús til viðbótar fyrir klinkið! Þegar ég kom heim þá stillti ég þeim svo ofaná stofuskenkinn svo ég gæti notið þess að horfa á þær þegar ég er hér heima. Nú er bara að safna sér í rólegheitum og markmiðið er að ég og JP getum borðað jólamatinn af svona diskum næstu jól :)
17.12.12
iPhone hulstur
Ég er búin að vera leita mér að fallegu hulstri utan um símann minn. Hingað til hef ég notað svokallaða bumpera en langaði núna að fá mér fallegt hulstur. Ég fann þessa síðu um daginn og heillaðist alveg. Rosalega falleg hulstur en mér sýnist því miður ekki vera nóg vörn fyrir framhlið símans, því er ég ekki alveg viss hvort ég eigi að fá mér svona. Ekki nógu gott ef hulstrið gerir ekkert gagn ef maður missir símann í gólfið.
Ef ég panta mér þá verður annað hvort þessara fyrir valinu:
Ef ég panta mér þá verður annað hvort þessara fyrir valinu:
16.12.12
Tom Dixon
15.12.12
Fjörðurinn fagri
Við Hrappur fengum okkur gönguferð í góða veðrinu í gær og ég mátti til með smella af nokkrum myndum á símann minn þar sem útsýnið útá fjörðinn var svo dásamlegt :)
14.12.12
Ef ég ætti svona dáldið marga peninga sem ég þyrfti að eyða þá myndi ég skunda í Pennann og versla mér smá. Þeir eru með jólatilboð á Eames stólunum til dæmis.
Myndi alveg vera til í tvo Eames stóla með tréfótunum við eldhúsborðið mitt. Veit bara ekki alveg hvort ég myndi fá mér hvíta, dökkgráa eða svarta, þarf að hugsa það betur áður en ég fer og versla fyrir ímynduðu peningana mína ;)

13.12.12
Svefnrugl
Ég veit ekki alveg hvað er í gangi með svefninn hjá mér þessa dagana. Annað hvort er aldurinn farinn að segja til sín eða þá næturvaktirnar sem ég er búin að vera taka uppá síðkastið. Ég hallast að þessu síðarnefnda.
Allavega þá vaknaði ég klukkan 06.00 og gat ekkert sofnað aftur svo ég ákvað að fara bara framúr og taka daginn snemma. Brjóta saman þvott og fá mér svo góðan morgunmat. Hella uppá gott kaffi og kveikja á kertum. Núna ætla ég að baka eins og tvær smákökusortir og nýta daginn í að jólast aðeins hér heima :)
12.12.12
Hár
Ég er með hár á heilanum þessa dagana. Ég var með mjög sítt hár en lét klippa mig stutt síðustu jól því ég var komin með algjöran viðbjóð af síða hárinu og það var líka orðið svo skemmt eftir litanir og "hitanir". Ég ákvað því að hætta alveg að lita á mér hárið og hef ekki litað það síðan í mars og er því með fína rót sem er komin niður að eyrum svo það eru bara nokkur ár þar til allt hárið á mér verður með mínum náttúrulega lit - JEIJ!
Hér eru nokkrir hlutir sem mig langar í (bráðvantar!!) og á sennilega eftir að fjárfesta í einhverju af þessu eftir jólin. Borgar sig víst aldrei að kaupa neitt rétt fyrir jól.
Bókin "Hárið" eftir Theodóru Mjöll. Fletti þessari bók um daginn og fannst margt áhugavert í henni og margar greiðslur þarna sem ég gæti hugsað mér að prufa. Svo er líka fróðleikur um umhirðu hársins.
Carmen rúllur. Á reyndar eftir að athuga hvort að svona leynist ekki í einhverjum skápum hjá konunum í fjölskyldunni. Þetta er örugglega til á mörgum heimilum og ekki í notkun.
Krullujárn. Mig langar í krullujárn sem er ekki með svona klemmu eins og mörg járn eru með í dag. Á þessu er til dæmis engin klemma svo þú bara vefur lokknum utan um og heldur þar til það er komin krulla. Ætlaði að kaupa svona í London í mars en hætti við, sé enn eftir því!
Síðast en ekki síst er gott sléttujárn. Ég er búin að ætla kaupa mér almennilegt sléttujárn í þónokkrun tíma en læt aldrei verða að því. Nú er ég búin að óska mér svona í jólagjöf frá Byggingarfræðingnum en ef það klikkar eitthvað þá verður nýtt og gott sléttujárn keypt strax á nýju ári þar sem mitt er alveg úr sér gengið eftir margra ára notkun :(
11.12.12
Mikil ósköp sem sundferð getur bjargað deginum hjá mér. Ég var eitthvað agalega öfugsnúin í dag svo ég ákvað að tríta mig og skella mér í sund inní Hólm og kom endurnærð til baka. Það er bara eitthvað svo ótrúlega notalegt við að fara í sund, sérstaklega í svartasta skammdeginu. Synda nokkrar ferðir, liggja í pottinum og hlusta á gamla menn tala um pólitík og bókmenntir og bara anda að sér fersku lofti. Maður (allavega ég) nær svo svakalegri slökun og líður bara eitthvað svo vel þegar maður kemur uppúr. Kannski er ég bara svona skrýtin. Mér hefur alltaf fundist gott að fara í sund en held samt að ég kunni extra vel að meta sundlaugarnar okkar hér á Íslandi eftir að hafa búið í DK í mörg ár.
En áður en ég fór í laugina þá kíkti ég í eina búð sem selur House Doctor vörurnar. Sá nú margt fínt og fallegt en hef ekki getað hætt að hugsa um þennan púða sem ég sá. Hann er svo fínn og á svo góðu verði. Auðvitað keypti ég hann ekki en er búin að hugsa um hann alveg síðan ég kom heim. Spurning um að bjóða Byggingarfræðingnum í sund þegar hann kemur í land ;)
![]() |
| Agalegt krútt |
10.12.12
Kókoskúlur
Ég hef ekki fengið kókoskúlur í mörg ár. En ég var ansi dugleg við að búa svoleiðis til þegar ég var lítil, enda auðvelt að gera, þarf ekkert að baka og smakkast mjög vel. Svo fór ég í heimsókn til Gumma frænda og Kristínar um daginn og þá bauð hún Auður litla dóttir þeirra mér uppá kókoskúlur og ég hef ekki getað hugsað um annað síðan. Í gær ákvað ég að búa til nokkrar kúlur og hef ákveðið að gera aðra uppskrift núna á aðventunni til að eiga í frystinum yfir jólin því ég hef grun um að skammturinn sem ég gerði í gær eigi eftir að klárast fljótt. Mér finnst þessar kúlur betri en besta konfekt. Hér kemur uppskriftin sem ég notaði.
Kókoskúlur
100 g smjör
1 dl sykur
3 dl haframjöl
2 msk. kakó
½ tsk. vanilludropar
2 msk. kalt kaffi
Setjið allt saman í skál, blandið saman og rúllið í litlar kúlur. Veltið síðan kúlunum upp úr perlusykri eða kókos. Setjið kúlurnar í ísskáp í stutta stund.
Ég setti aðeins meira af kakó og kaffi því ég vil hafa kúlurnar mjög bragðmiklar. Svo skellti ég þeim í frystinn og geymi þær þar. Mér finnst þær bestar alveg ískaldar með góðum kaffibolla. Mæli með að þið prufið, tekur korter að útbúa þetta gúmmelaði :)
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)