20.1.13

Halló Halló!!

Við Byggingarfræðingurinn fórum til Köben milli jóla og nýárs í kærustuparaferð. Ferðin var frábær í alla staði og við stefnum á að fara aftur á sama tíma á þessu ári. Það skemmdi svo sannarlega ekki fyrir að útsölurnar byrja 27 desember í Danmörku svo við neyddumst til að kíkja aðeins í búðir :)
Ég var búin að ákveða áður en við fórum út að láta loksins verða að því að byrja safna Royal Copenhagen stelli, en ég er búin að horfa á þessi stell lengi en aldrei látið verða að því að byrja safna. Við þræddum því búðirnar í Köben sem selja þessar vörur og urðum svo sammála um að blanda saman tveimur stellum, einu hvítu (White Fluted/Hvid Riflet) og einu með stóru bláu munstri (Blue Fluted Mega/Blå Mega Riflet), mér finnst þau passa rosalega vel saman og virkilega fallegt að sjá þau saman á borði (Já ég mátaði þetta allt sundur og saman í búðunum :)) Við keyptum okkur tvær thermo krúsir með bláa mynstrinu í Köben og svo áttum við svo ótrúlega mikið af dönsku klinki þegar við vorum komin á Kastrup á leiðinni heim að við keyptum okkur eina hvíta krús til viðbótar fyrir klinkið! Þegar ég kom heim þá stillti ég þeim svo ofaná stofuskenkinn svo ég gæti notið þess að horfa á þær þegar ég er hér heima. Nú er bara að safna sér í rólegheitum og markmiðið er að ég og JP getum borðað jólamatinn af svona diskum næstu jól :)







Engin ummæli: