12.12.12

Hár

Ég er með hár á heilanum þessa dagana. Ég var með mjög sítt hár en lét klippa mig stutt síðustu jól því ég var komin með algjöran viðbjóð af síða hárinu og það var líka orðið svo skemmt eftir litanir og "hitanir". Ég ákvað því að hætta alveg að lita á mér hárið og hef ekki litað það síðan í mars og er því með fína rót sem er komin niður að eyrum svo það eru bara nokkur ár þar til allt hárið á mér verður með mínum náttúrulega lit - JEIJ!

Hér eru nokkrir hlutir sem mig langar í (bráðvantar!!) og á sennilega eftir að fjárfesta í einhverju af þessu eftir jólin. Borgar sig víst aldrei að kaupa neitt rétt fyrir jól.

Bókin "Hárið" eftir Theodóru Mjöll. Fletti þessari bók um daginn og fannst margt áhugavert í henni og margar greiðslur þarna sem ég gæti hugsað mér að prufa. Svo er líka fróðleikur um umhirðu hársins.

 Carmen rúllur. Á reyndar eftir að athuga hvort að svona leynist ekki í einhverjum skápum hjá konunum í fjölskyldunni. Þetta er örugglega til á mörgum heimilum og ekki í notkun.

 Krullujárn. Mig langar í krullujárn sem er ekki með svona klemmu eins og mörg járn eru með í dag. Á þessu er til dæmis engin klemma svo þú bara vefur lokknum utan um og heldur þar til það er komin krulla. Ætlaði að kaupa svona í London í mars en hætti við, sé enn eftir því!

Síðast en ekki síst er gott sléttujárn. Ég er búin að ætla kaupa mér almennilegt sléttujárn í þónokkrun tíma en læt aldrei verða að því. Nú er ég búin að óska mér svona í jólagjöf frá Byggingarfræðingnum en ef það klikkar eitthvað þá verður nýtt og gott sléttujárn keypt strax á nýju ári þar sem mitt er alveg úr sér gengið eftir margra ára notkun :(




5 ummæli:

Rut R. sagði...

tékkaðu líka á bylgjujárni, það er algjörlega málið til að fá flotta liði :)

Kristín Alma sagði...

Já finnst það mjög flott, en næ eiginlega sama lúkki með að sofa með fastar fléttur svo mér fannst það svona síðast á forgangslistanum hehe ;)

Rut R. sagði...

er ekkert óþægilegt að sofa með fasta fléttu?
og þarna.... geturu kennt mér að gera svoleiðis :D

Kristín Alma sagði...

Nei alls ekki. Ég reyndar sef oftast með eitthva í hárinu þar sem mér verður svo heitt ef hárið er útum allt.
Get svo sannarlega kennt þér, þetta er ofureinfalt :)

Rut R. sagði...

já reyndar sef ég alltaf með snúð ofaná hausnum svo ég drukkni ekki í hári.
En þú mátt endilega kenna mér næst þegar við hittumst :) ég reyndi smá í gær, það gekk ekki alveg, en það komu flottar bylgjur samt í hárið :)