Dáldið skondið að ekki einu sinni foreldrar barnana á myndnum kommentuðu á þær.. Við erum kannski bara svona ljót.
Ég er komin í Grundó. Er svona að venjast tilhugsuninni að ég sé ekki að fara út aftur. Fékk mikið hræðilegt þegar ég kvaddi mömmu og var með stein í maganum alla leið til Íslands eða þar til ég sofnaði í flugvélinni og var nánast vakin þegar okkur var hennt frá borði.
Okkur finnst báðum eins og það sé frí bara, því ég hef alltaf komið í frí heim eða um helgi þannig að það er pínu spes að það sé ekki þannig núna!
Á morgun fer ég að tala við skólann. Pínu skerí. Vona að mér verði hleypt í einhverja áfanga svo ég verði ekki ALVEG aðgerðalaus þangað til ég byrja að vinna. Verður nú örugglega voða fínt bara.
Ég er andvaka. Sofnaði fyrir tólf í kvöld og vaknaði svo bara hress klukkan 3. Um 4 nennti ég ekki að bylta mér lengur inní rúmi og fór fram. Er þar ennþá að deyyyyja úr hungri. Aldrei þessu vant er allt stútfullt af mat hérna og ég með valkvíða.
Ætli ég skríði ekki bara uppí aftur...
3 ummæli:
Leiðinlegt að ná ekki að kveðja þig Kristín mín en gangi þér vel þarna á Grundó.....
Kíkjum í heimsókn eftir 3 ár eða svo hehehehe segi svona...
kv Íris
Kristín mín. Þú ert alltaf velkomin til ömmu...veit það vantar m fyrir framan en gæti samt stundum verið gott.
Veist hveð mér þykir undur vænt um þig, elsku kerlingin mín. Kveðjur frá ömmu Stínu
Hvernig er það...á ekkert að blogga meira??
Kveðjur frá ömmu Stínu
Skrifa ummæli