Ég er búin að vera tussuleg í maaaarga daga. Komið á aðra viku núna, mikið gaman. Búin að reyna allt. Afneita þessu og mæta í skólann. Búin að reyna að taka verkjatöflu og sofa þetta úr mér. Búin að liggja uppí rúmi heila helgi og hvílast vel og búin að reyna að hlaupa þetta úr mér í ræktinni. Amma hefur glumið í hausnum á mér allan tíman sem ég er búin að vera svona, því ég man alltaf eftir því þegar ég var lítil og lasin þá hringdi amma í mann spes til þess að segja að maður eigi að vera í sokkum og ekki láta sér verða kalt, sérstaklega ekki á tásunum. Vera með trefil og slappa af.
Endaði með því þegar ég var næstum því búin að hósta upp lifrinni í þriðja sinn þann klukkutímann að ég hringdi í lækninn. Hún vildi, mér að óvörum endilega fá mig í heimsókn og hlusta mig. Lungun á mér möluðu eins og kettlingur þannig að ég hélt að ég yrði bara send heim með panodil og sagt að sofa. Neinei, ég send í flýti uppá spítala í allskyns rannsóknir og pot.
Byrjaði á því að stripplast um allt þarna á nærbuxunum einum fata til þess að fara í röntken. Er mjög viss um að konan hafi verið lesbísk og að nota sér aðstöðu sína, því ég var að fara í röntken til að finna út hvort að það væri eitthvað að lungunum í mér. Síðast þegar ég vissi þá voru þau staðsett í brjóstkassanum, en ekki rasskinnunum.
Jæja, ég lifði þetta af, enda mjög svo ekki spéhrædd og fannst þetta því lítið mál að vippa mér úr öllu til þess að græja þetta. Fór bara að pæla í þessu eftir á að þetta gæti nú varla átt að vera svona.
Næst var ég send í blóðprufu. ég var búin að reikna út að það tæki svona 10 mínútur tops, og ég myndi ná strætó uppí skóla korteri seinna. Bjartsýni, myndi ég kalla þetta.
Fyrst þurfti maður að taka númer! Bara eins og á pósthúsinu. Jæja, ég tek númer og það eru 10 á undan mér. Það líður nú ekki svo langur tími, þá er ég kölluð upp og beðin um að setjast á stól. Bretti upp peysuna og kellingin strekkir ól utan um hendina til þess að fá æðina fram. Það gekk ekki. Þá prufaði hún að strekkja betur. Það gekk ekki. Þá prufaði hún að stinga og hún hefði fengið meira blóð með því að stinga nál í stein. Jæja, hún gefst ekki upp og reyndi að fá æðina fram á hinum handleggnum. Það gekk ekki svo ólin var strekkt betur. Gekk ekki neitt svo hún náði í aðra ól til að strekkja utanum hendina á mér. Þegar þarna er komið við sögu þá leið mér eins og hendin á mér væri að springa. Loksins stakk konugreyið og það gekk ekki neitt að stinga. Hún stakk og stakk þangað til að ég var orðin eins og gatasigti þarna og ekkert gekk. LOKSINS náði hún að stinga á helvítis æðina og þá var partý! Glasið fylltist á núll einni og hún tók nálina út. Þá sprautaðist blóð yfir allt þarna og konu greyið réði ekki neitt við neitt og þær voru komnar 3 þarna til að reyna að stoppa þessi ósköp. Meðan var ég í hláturskasti og gat ekki hjálpað.
Núna er ég enn marin á hendinni. Ég hef aldrei fengið annað eins mar! Ég er eins og gæjarnir þarna í blueman show, marið er svo stórt.
En ég fékk pensilín og er held ég aðeins byrjuð að skríða saman. Tími kominn til, er ekki að nenna þessum slappleika lengur.
Ég kem heim til Íslands 11 desember. Langar mikið á Frostrósatónleika. Hver vill með? (Langar nú mest í höllina, en kyngi kannski stoltinu og fer í Ólafsvík bara..)
4 ummæli:
Elsku kerlingin mín, þú hefur ekki alveg hlustað. Það á að passa uppá að vera með SILKI klút. ( slæðu ) ekkeert annað dugir við hósta. Látta þér batna og passaðu að þér verði ekki kalt.
Hlakka til að sjá þig.....amma Stína
hahaha vá hvað ég myndi hlæja líka, nenniru að semja eina skemmtilega færslu fyrir síðuna mína, þú ert svo góður penni og það skiptir engu um hvað þú talar, kemur mér alltaf í gott skap ;)
-Karen Helga
haha litla grey! en mamma sagði mer líka alltaf að vera í sokkum og með slæðu. annars þýðir ekkert að afneita slappleikanum, hann verður bara verri við það.... maður á bara að vera heima undir sæng og hafa það notó=)
Það sem skiptir máli er að þú verðir á Íslandi þann 26. desember næstkomandi.
Skrifa ummæli