Almáttugur á himnum!
Ég tók einhverja voða svefntöflu fyrir tveim tímum og er búin að liggja andvaka síðan. Bara alveg í hörku stuði. Svo ég gafst upp. Veit ekki alveg hvernig ég á að tækla þessi svefnvandamál mín. Komst í lag í nokkra daga en núna virðist sama sagan ætla að endurtaka sig. Veit ekki hvort ég eigi að reyna að halda mér vakandi í sólarhring eða hvað. Kann ekki á þetta. Þetta er allavega ekki fyndið lengur. Ég ætlaði ekki að þurfa að díla við svefnleysi fyrr en ég eignast börn.
En nóg um það.
Það verður tekið maraþon í fólkshitting um helgina. Seisei já. Helgin er pökkuð með plönum um að hitta uppáhalds fólkið mitt. Vííj hvað verður gaman. Svo verða bara rólegheit og "sill" þangað til ég fer heim þann 26. mars.
Fór til Vejle á laugardagskvöldið. Datt nú ekki alveg í það eins og stóð til en Svanhildur reyndi samt sitt besta. Gaf mér þennan líka yndislega "kokteil". Frosin jarðaber og Bacardi. Skulum bara orða það þannig að næst ætla ég ekki að fá mér "kokteil" hjá sveitastelpu, heldur flóaða mjólk og kleinur :)
En það var nú svosem bara útaf því að klukkan var orðin svo margt og allt hráefni búið þegar við loksins létum sjá okkur í Vejle. Það sást líka vel á fólkinu sem var fyrir í partýinu.
Annars var stuð í Vejle bara. Fórum svo á Krokowski. Þar þarf maður að vera 24 ára til að komast inn. Við notuðum bara gamla góða, sendum Einar inn fyrst, því hann var með skilríki, settum brjóstin uppí höku og töluðum bara ensku. Redda sér. Þegar inn var komið fórum við svo og stigum trylltan dans á dansgólfinu með fertugum verðbréfamiðlurum og 18 ára kærustum þeirra sem voru úti að leika með nýju sílíkon brjóstin sín. Voða sætt.
Kannski ágætt að segja frá því líka að síðast þegar ég fór á þennan stað þá sá ég tvífara hans Þolla þarna á dansgólfinu í vægast sagt villtum og trylltum dansi. Það var fyndið.

Ágústa og ég andsetin!
Well, best að athuga hvort ég geti ekki sofnað smá áður en ég fer í skólann.
P.S. Þið þarna "gömlu" Hrossanesbúar?! Þurfum að plana föstudaginn..!
2 ummæli:
"Hefuru prófað flóaða mjólk? Prófaðu það, ef það virkar ekki þá bara kemuru aftur."
http://youtube.com/watch?v=TvJug6oKMgk&feature=related
Það getur nú verið gott að hafa þann eiginleika að geta haldið sér vakandi, þegar maður fer í svona helgargerð. Enda er svefn algerlega ofmetið fyrirbæri. Annars var Bjöggi að hafa samband, og sagðist vera með húsnæði ef við viljum hittast fyrir tónleika.
Skrifa ummæli