26.3.08

Æji ég er svo mikil barnagæla. Sjáiði bara hvað Aníta Ósk alveg malar eins og köttur í fanginu á mér.

Well, ætli maður myndi ekki brjótast um og og vera með læti ef að það kæmi allt í einu einhver ókunnug kjélling og rifi mann í fangið.

Annars er ég bara að græja mig fyrir flug. Pakka niður öllum ostunum og kókópöffsinu sem ég keypti í bónus til að taka með mér út. Þarf svo að klára eitthvað svona smásnatt í bænum í fyrramálið og svo bara bruna útá völl. Verð komin inn um dyrnar hjá mér klukkan 1 næstu nótt. En sem betur fer ætlar Villi að vera samferða mér til Horsens og ég keypti Fuglastríðið í Lumbruskógi til að horfa á í lestinni. Víjjj!
Ég er annars með blöðrubólgu fyrir allan peninginn. Get ekki setið. Verður gaman á morgun!
Einhver töfraráð til að koma blöðrubólgu fyrir kattarnef?

9 ummæli:

Brynja Björk sagði...

Drekka trönuberjasafa, hafa hlýtt á fótunum og reyna að drekka sem mest af vökva. Annars er nú besta leiðin alltaf bara sýklalyf:)

Nafnlaus sagði...

keyptu trönuberjatöflur í heilsuhúsinu og drekka vatn og vatn og vatn og vatn. Eða farðu á læknavaktina og fáðu sýklalyf og þetta lagast með fyrstu töflunni.

kv.
Brekamamma

Nafnlaus sagði...

Hef verið að lesa mig til. Gott getur verið að bera AB-mjólk útvortis, það kælir og slær á utanverðan sviða og eins vinna gerlarnir í henni á bakteríunum, gott að gera þetta fyrir nóttina og vera bara í bómullarbuxum.
Veit ekki hvort danska Yoggi mjólkin dugar, stóð ekkert um það en um að gera að smyrja henni á og prófa.

Nafnlaus sagði...

sofa á hliðinni með þykkan púða milli hnjánna og drekka trönuberjasafa.
þóra

Brynja Björk sagði...

LOL Villi minn, ég held að þú hafir fundið leiðbeiningar til að meðhöndla annars konar sýkingu:D

Kristín Alma sagði...

HAHA. Villi! Ég skil ekki af hverju þú ert á lausu. Kannt greinilega kvennafræðarann utanað :D

Nafnlaus sagði...

Nei get svarið það, þetta var við þessu. Í versta falli gerir hún skrýtinn hlut með jógúrt..
Kristín, þeim finnst e-h fríkí hvað ég veit mikið um þetta. Ég er eins og blokkagaurinn í fóstbræðum, ef þetta virkar ekki þá bara kemuru aftur;)

Nafnlaus sagði...

Held að Villi verði að lesa Kvennafræðarann aðeins betur en samt góð tilraun...

kv.
Brekamamma

Nafnlaus sagði...

ískalt kók og lakkríspoki virkar alltaf:D.. smá vottur af friends kannski lika:)