3.3.08

9 dagar

Það eru 9 dagar í að ég komist heim til Íslands. Er of snemmt að byrja að pakka núna?

Við vorum að fatta að við verðum í loftinu þegar ég á afmæli. Lendum held ég klukkan 00.30 þann 14. mars. Þannig að ég get stokkið beint út og keypt tollinn!
Er á fullu að reyna að plana þessa Íslandsferð. Þarf nefninlega nauðsynlega að fara í Grundarfjörð. Í ökumat. Og bara mat. Er svo stressuð fyrir því, vandræðalegt að falla á ökumati lengst útí sveit!!

Ég er að reyna að ákveða mig hvort að ég eigi að vera að hafa kökuboð fyrir famelíuna. Það er nú bara hægara sagt en gert með þessa huges famelíu mína :) En langar svo að hitta alla, þannig að það verður nú líklegast samt eitthvað smá kökukaffi. Bara á eftir að finna stað til að hafa það á. Kemur í ljós. Væri náttúrulega sniðugast að við Salka myndum bara halda uppá 25 ára afmælið okkar. Þar sem litla sponsið mitt verður 5 ára 25. mars. Hræðilegt hvað þessi börn stækka.

---

Fékk snemmbúna afmælisgjöf á sunnudaginn. Abba showið frá London var hérna í Horsens í einhverja 10 daga og Villi var svo sætur að bjóða mér á það. Svo ég þyrfti nú ekki að fara til London(s) í leikhús. Var ekkert smá flott, maður var með tár í augunum og gæsahúð til skiptis.
Svo kíktum við á Svanhildi í Vejle. Fórum á Konrads og kjöftuðum þar fram að lokun. Voða gaman hjá okkur. Er búin að fatta það núna að það er ekkert langt að fara til Vejle í heimsókn.

Well, best að fara að horfa á Juno. Unglingaklúbburinn minn hérna í Horsens er með Video-kósý kvöld á miðvikudaginn og ég þarf að athuga hvort þessi mynd sé nokkuð ógeðsleg. Ætla ekki að fá símhringingar frá brjáluðum mosamömmum á fimmtudaginn :)

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ég ætla að fá Sjána til að syngja afmælissönginn með mér. Svo vonandi tekur fólkið í vélinni undir, það gæti orðið svaka gaman fyrir þig...og minnisstætt

Nafnlaus sagði...

hehe.......ég skal reyna að hjálpa :)