Þá er að koma að því sem að foreldrar mínir hafa hlakkað til síðan ég leit dagsins ljós fyrir nokkrum árum síðan. Litla barnið ég er að fara að flytja að heiman. Reyndar ekki alveg á morgun, en þetta er allt í fæðingu. Undirbúningstímabilið er að byrja og hef ég nú þegar eldað kvöldmat, boðið vinkonum mínum í matarboð, sett í þvottavélar, tekið úr uppþvottavél og hvað eina. Það sem er líka gert á undirbúningstímabilinu er að sanka að sér allskonar drasli í búið. Fyrsti hluturinn kom reyndar þegar að ég var 4 ára á einhverri plastboxa kynningu með móður minni og fékk hveitiskóflu. Síðan þá hefur eitt og annað safnast í búið. Ég á allavega nóg af glösum, þar sem að ég hef lagt það í vana minn að stela flottu bjórglösunum á Koks síðan einhvern tíman á síðasta ári. Og einhverntíman fyllti ég glasaskápinn í Kórsölum með ferlega ljótum glösum með myndum af svínum á. Endurspeglar heimilisfólkið. Þess má geta að þessi glös voru ekki keypt því það vantaði glös, heldur vegna þess að ég nennti ekki að vaska upp.
Áðan kíkti ég svo aðeins í bæinn til að kíkja á útsölurnar. Fannst ég vera orðin smá klikkuð þegar að ég var búin að fara í 4 búðir til að leita af Rosendahl hvítlauskpressu eins og amma og afi eiga.
5 ummæli:
jeesssssss.......
það er einmitt hlutirinn sem er bráðnauðsynlegastur í búskapnum... hvítlaukspressa frá Rosendahl!! Ráðlegg þér að byrja á hnífapörum :)
Brekamamma
Það hérna stráheilt matarstell sem bíður eftir þér.
Hvert ertu að flytja dúlla ???
Ég á líka ónotað matarstell handa þér svo lengi sem ég þarf ekki að senda það til danmerkur :(
Luvs ;)
hvað varð um kristínu ofurbloggara
Skrifa ummæli