Janúar:
- Nýkomin heim frá Bandaríkjunum með mikla yfirvigt.
- Fór til Íslands að til að vinna.
- Hitti nýju tjéllinguna hans pabba og Kötlufóstrið.
- Samþykkti þetta uppátæki
- Fór í fyrsta skipti í lífinu útá vinnumarkaðinn, 7.30 - 16.30 5 daga vikunnar.
- Fílaði ekki að vakna svona snemma, en var alveg að slá í gegn hjá köllunum í vöruskemmu Samskipa.
- Lærði að keyra bíl útá Álftanesi.
- Varð fullorðin 14.mars.
- Katlan kom í heimin 19.mars
- Salkan mín varð hálf stór líka 25.mars. 3 ára skvís.
- Fékk grænt æfingarakstursskilti aftan á pabbabíl.
- Hætti í karlaveldinu í Samskip
- Byrjaði að vinna á Stelpuvinnustaðnum BabySam
- Pabbi 37 ára
- Páskarnir komu svo, með 30 páskaeggjum og frið á jörð eða einhverju krappi.
- Pabbi fór til Aþenu með Silvíu Nótt.
- Júróvísjónpartý í Kórsölum (Þess vegna fann pabbi bjórdós undir sófanum sem ég neitaði að eiga, enda var ég edrú í partýinu.)
- Kom í Séð og Heyrt- Á fokkíngs Forsíðuna!!
- Áramótaheitinu náð.
- Mamma 36 ára
- Guðmundur Óskarsson (móður)bróðir minn varð 30 ára
- Partý á S1 - Og það ekkert litla partýið. Það verður talað um það þangað til að ég á stórafmæli 2008.
- Á þjóðhátíðardaginn skellti ég mér til danmerkur, lagði lykkju á leið mína og kom við í Osló í tvo tíma - Því ég er með flugvallafettis.
- Þegar ég komst til Danmerkur tóku Kristín og Gummi á móti mér og við keyrðum í gegnum Danmörku þvera og endilanga, framhjá Horsens og næstum til Álaborgar.
- Þar tók við afslöppun í sumarhúsi, með ömmu, afa, mömmu og co og Óskari og Co.
- Sund, Legoland, H&M, Skógarlýs á hundinum og lygasögur um að sólgleraugun hafi kostað undir 20 þúsund einkenndu þessa ferð.
- Fékk mér eitt bílpróf
- Komst inní skólann
- Fór á SigurRós á klambró. Ótrúlega kósý og krúttlegt.
- Road trip til Akureyrar um verslunarmannahelgina
- Mikið ævintýri, SigurRós í Ásbyrgi, sofið í bílnum, Sálin í sjallanum og Sund.
- Komið heim á Sunnudegi og farið í miðbæinn um kvöldið.
- Truntaðist til Danmerkur
- Byrjaði í skólanum og var gjörsamlega málheft eftir að hafa verið í ár í burtu frá Baunaveldinu og líklega gleypt kartöfluna í millitíðinni.
- Námsmannalífið hófst fyrir alvöru.
- Sagðist ætla að fara að mæta á fótboltaæfingar
- Hef ekki enn mætt á eina einustu.
- Bjór um helgar og bækur á virkum dögum.
- Byrjaði að sakna Íslands.
- Tók ákvöðrun um að fara til Íslands
- Fór til Íslands
- Á airwaves og það var alveg tussugaman.
- Djamm.
- 30 ára mömmustrákar
- Famelíutjill í Kórsölum.
- Keypti úlpu sem kostaði augun úr.
- Deitmánuður
- Saknaði Íslands.
- Saknaði Íslands meira
- Var óglatt fram til 24 des.
- Þoli ekki aðventuna.
- Fór til Íslands
- Vann eins og mófó
- Fékk pakka, gaf pakka.
- Hitti fólkið mitt.
- Borðaði á mig göt.
- Fór út aftur, ósofin og úrill.
- Gamlárskvöldið var líklega það skemmtilegasta sem ég hef upplifað.
Soddann.
4 ummæli:
Ég skil vel að gamlárskvöld hafi verið skemmtilegt enda með svo skemmtilegu fólki.
Breki er sármóðgaður að ekki sé minnst á hann í þessu uppgjöri! enda er hann stórmerkilegur...
og hvað þá foreldrar hans þetta skemmtilega fólk sem þú kynntist á árinu :)
Brekamamma
Stjáni: Jaaa eitthvað var það :)
Breki: Þú hefur engann tíma til þess að vera með eitthvað þannig vesen. Þú ert of upptekin við að sakna mín til þess.
Mammans og Pabbi: Þið eruð á gráu svæði ef að á að fara út í eitthvað svona kjaftæði.
Hver er það sem að er að fórna MIKLU til þess að vera í mömmuleik næsta laugardagskvöld, svo foreldrarnir komist á fyllerí? HA?
Vertu bara stillt Arna mín, annars missiru pössunina. :)
Verslunarmannahelgin 2006 verður seint toppuð! Þetta var aðeins of gaman hjá okkur :D
Kv. Brynja Rún
Skrifa ummæli