taka þátt í heilsuátaki, óbeint. Geri þetta eiginlega mín vegna samt, því að ég veit að þegar að ég kem til íslands næst, þá má ekki borða sælgæti eða drekka gos í sama sveitarfélagi og faðir minn er staddur í á þeirri stundu. Ef einhver vogar sér að stinga uppí sig einhverju sem er ekki lífrænt ræktað og með spelti í þegar hann er í heilsuátaki verður hann önugur og jafnvel fer í fýlu. Svo þetta er best fyrir mig að stunda heilbrigt líferni þangað til að heilsuátakið í Kórsölum gengur yfir. Bara svona uppá fjölskylduandann.Nú þangað til að það gerist þá hef ég tamið mér betri og bættan lífstíl. Nú er hér stundaðir hnefaleikar af kappi, þar svitnar maður þangað til að allur vökvi er búinn í líkamanum. Svo eru hlaupin langhlaup í tíma og ótíma, en það erum við Fróði sem að stundum það hérna seint á kvöldin þegar að það sér okkur örugglega enginn. Þess á milli eru ávextir og grænmeti innbyrgt í óhóflega miklu magni ásamt vítamínum og nokkrum lítrum af vatni á dag. Maður hefði haldið að maður myndi sofa betur eftir að heilbrigði lífstíllinn var tekinn upp, en svo er ekki. Manni kemur varla dúr á auga, enda er pissublaðran undir ótrúlega miklu álagi með allt þetta vatn í kropnum. Þetta þarf að fara út og það verður að sjálfsögðu að vera á meðan maður sefur, eða gerir tilraun til þess.
Nú líkamleg heilsa er ekki það eina sem að þarf að rækta heldur er það blessaða geðheilsan líka. Til þess að gera það hef ég reynt að koma fjármálunum svona á nokkurnvegin réttan kjöl. Borga gamlar skuldir og þess háttar. Finna aðferðir til að spara, eins og kaupa nýtt Wildcard, en þá fæ ég afslátt af lestarmiðum. Grófar brauðsneiðar með ógurlegri hollustu sem
álegg, vatn í flösku, bananar, vínber og agúrkur hafa fengið að fljóta með í skólann, enda dýrt og óhollt að éta skólamatinn. Einnig hefur mér tekist að spara fleiri þúsundir á e-bay. Keypti nefninlega Gucci töskuna frægu á mun lægra verði en gengur og gerist. Á von á að fá hana í hendurnar eftir viku. Maður verður nú að verðlauna sig þegar að maður er í svona miklu átaki.Áfengi hefur ekki komið inn fyrir mínar varir og hef ég ekki djammað síðan á gamlárskvöld. Gæti verið að maður kíki aðeins í bæinn annað kvöld og á föstudaginn, en þá verður maður keyrandi og með vatn í flösku.
Til þess að fullkomna heilbrigða lífernið hefur lestur bóka verið mikilvægur þáttur í daglega lífinu, nú er farið uppí rúm klukkan 22.30 og lesið smá í góðri bók. Svo eru ljósin slökkt klukkan 23.00 og Bubbi spilaður þangað til að maður svífur inní svefninn.
Svona hefur þetta gengið í 2 vikur núna. Ég spái því að ég endist fram á föstudag, þetta er nefninlega alltof langt, vanalega hef ég haldið út í 2 tíma í mesta lagi.
Eina sem er eftir af áramótaheitunum er að læra að elda, hvernig ég á að kenna sjálfri mér hver munurinn er á sleif og steikarpönnu er mér enn hulin ráðgáta. Hjálp, einhver?!
1 ummæli:
Stína mín, þetta með sleifina kemur fljótt eftir að stokkið er útí djúpu laugina. Kveðjur úr snjónum á Nesinu
Skrifa ummæli